Fara beint í efnið
Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

Lokað hjá TR 30. september vegna afmælisráðstefnu

10. september 2026

Í tilefni af 90 ára afmæli almannatrygginga verður haldin opin ráðstefna í Norðurljósasal í Hörpu kl. 9.00 – 16.00 miðvikudaginn 30. september. Starfsfólk TR mun sitja ráðstefnuna og því verður lokað hjá okkur í Hlíðasmára 11 miðvikudaginn 30. september.

Minnum á að Mínar síður á Ísland.is eru alltaf opnar. Sömuleiðis er opið hjá umboðsmönnum hjá sýslumönnum um land allt.

Á vefnum okkar tr.is eru gagnlegar upplýsingar, sömuleiðis viljum við benda á Netspjallið þar sem hægt er að fá svör við almennum spurningum.

Hér má sjá dagskrá ráðstefnunnar, skráningar eru opnar til 20. september næstkomandi.