Greitt á nýársdag
29. desember 2023
Greiðslur fyrir janúar 2024 verða greiddar fyrsta dag mánaðarins eins og alla aðra mánuði ársins.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1AGuSiZPffij03q5ALWg42/134a9b74dc84372f9e38cb38d00c1570/TR-Header.png?w=50&fm=webp&q=80)
![Tryggingastofnun - hausmynd](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1AGuSiZPffij03q5ALWg42/134a9b74dc84372f9e38cb38d00c1570/TR-Header.png?w=774&fm=webp&q=80)
Okkur berast gjarnan fyrirspurnir um greiðslur í kringum áramót og því viljum við upplýsa hér um að greiðslur í almannatryggingakerfinu eru greiddar fyrirfram fyrsta dag hvers mánaðar lögum samkvæmt, það á við hvort sem um hátíðisdaga er að ræða eða ekki. Því munu greiðslur fyrir janúar 2024 berast á nýársdag, 1. janúar. Gert er ráð fyrir að greiðslum verði lokið seinni hluta dagsins.