Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

Greiðslur almannatrygginga fylgja launavísitölu frá 1. janúar 2027

20. mars 2026

Ný lög voru samþykkt á Alþingi í gær sem fela í sér breytt viðmið við að ákveða árlegar hækkanir almannatrygginga.

Árlegar launa- og verðlagsbætur lífeyrisgreiðslna sem koma næst til framkvæmdar 1. janúar 2027 munu taka mið af nýju lögunum.

Breytingin felur í sér að greiðslur almannatrygginga eiga að taka mið af þróun launavísitölu sem Hagstofa Íslands reiknar út og birtir, í stað þess að taka mið af spá um launaþróun.

Sjá frétt á vef Stjórnarráðsins, hér.