Eingreiðslan greidd í dag
19. desember 2023
Alls munu 26.031 einstaklingar fá eingreiðslu síðdegis í dag þegar Tryggingastofnun afgreiðir eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/4f04rxUnPW2MkZicJjLHnB/04a1ff03c203313320b21fb21b8b9702/TRY-Teikning-Gjallarhorn.png?w=50&fm=webp&q=80)
![TRY-Teikning-Gjallarhorn](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/4f04rxUnPW2MkZicJjLHnB/04a1ff03c203313320b21fb21b8b9702/TRY-Teikning-Gjallarhorn.png?w=774&fm=webp&q=80)
Alþingi samþykkti frumvarp þess efnis síðastliðinn laugardag 16. desember og hefur allt kapp verið lagt á það hjá TR að greiðslan berist svo fljótt sem auðið er.
Eingreiðsluna fá þau sem eiga rétt á greiðslu örorku- eða endurhæfingarlífeyris á árinu 2023 og er hún 66.381 kr. Hafi lífeyrisþegi fengið greitt hluta úr ári er eingreiðslan í hlutfalli við greiðsluréttindi viðkomandi á árinu.
Eingreiðslan telst ekki til skattskyldra tekna lífeyrisþega og leiðir ekki til skerðingar annarra greiðslna.