Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Desemberuppbót til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna

11. desember 2024

Foreldrar langveikra eða alvarlega fatlaðra barna sem fengu foreldragreiðslur í desember hafa fengið greidda desemberuppbót.

Desemberuppbótin er 81.006 krónur til þeirra foreldra sem hafa fengið mánaðarlegar greiðslur allt árið 2024.  Foreldri sem hefur fengið þessar greiðslur skemur en tólf mánuði á árinu 2024 á rétt á hlutfallslegri uppbót í samræmi við þann tíma sem foreldrið hefur fengið greiðslur á árinu. Uppbótin verður þó aldrei lægri en sem nemur 20.252 krónur.

Desemberuppbótin er greidd á grundvelli reglugerðar um desemberuppbætur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna árið 2024.