Desemberuppbót greidd 1. desember
28. nóvember 2025
Desemberuppbót vegna elli- og örokulífeyris og sjúkra- og endurhæfingargreiðslna verður greidd 1. desember með mánaðarlegum greiðslum til viðskiptavina okkar.

Ellilífeyrir
Desemberuppbót ellilífeyris er 78.626 krónur á þessu ári og tekur mið af fjölda mánaða sem viðkomandi fékk greidda á árinu. Þau sem fá greiddan hálfan ellilífeyri fá helming fjárhæðarinnar. Desemberuppbót er tekjutengd eins og aðrar greiðslur til ellilífeyrisþega.
Örorkulífeyrir og sjúkra - og endurhæfingargreiðslur
Desemberuppbót vegna örorkulífeyris og sjúkra- og endurhæfingargreiðslna er 30% af mánaðarlegu meðaltali tekjutryggingar á árinu 2025 og 30% af mánaðarlegu meðaltali af greiddri heimilisuppbót. Uppbótin er greidd í samræmi við fjölda mánaða sem viðkomandi fær greiðslur frá TR á yfirstandandi ári. Miðað við fulla tekjutryggingu er desemberuppbót 63.146 krónur, en upphæðin breytist í samræmi við það hlutfall sem viðkomandi er með í tekjutryggingu. Þau sem eru með heimilisuppbót allt árið fá 21.344 krónur greiddar í desemberuppbót. Bendum á að reikniaðferð er sú sama og verið hefur síðastliðin ár.