Fara beint í efnið
Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

Bráðabirgðagreiðsluáætlun 2024 birt - hækkun 5,6% frá 1. janúar 2024

27. desember 2023

Bráðabirgðagreiðsluáætlun fyrir árið 2024 hefur verið birt á Mínum síðum TR og þar er reiknað með 5,6% hækkun fjárhæða hjá TR á næsta ári.

TR logo

Tillaga að tekjuáætlun 2024 hefur einnig verið birt á Mínum síðum og hvetjum við viðskiptavini til að fara vel yfir hana.

Um er að ræða bráðabirgðagreiðsluáætlun fyrir árið 2024,  miðað er við staðgreiðsluhlutfall skatta á árinu 2023. Gert er ráð fyrir að greiðsluáætlunin fyrir árið 2024 með endanlegu staðgreiðsluhlutfalli verði birt á Mínum síðum fyrri hluta janúarmánaðar.

Tillaga að tekjuáætlun 2024 var birt á Mínum síðum 6. desember sl., en greiðslur til einstaklinga á árinu 2024 byggja á henni. Hægt er að gera leiðréttingar á tillögu að tekjuáætlun ef við á og þannig getur hver og einn stuðlað að því að greiðslur frá TR verði sem réttastar á næsta ári. 

Sjá nánar um tekju- og greiðsluáætlanir hér.