Boð um þátttöku í könnun á vegum ÖBÍ
27. febrúar 2026
Um 19.300 einstaklingar sem voru með réttindi til að fá örorkulífeyri eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur fengu í gær boð um að taka þátt í könnun um húsnæðismál fatlaðra sem Félagsvísindastofnun HÍ gerir fyrir ÖBÍ réttindasamtök.

TR leggur þessu verkefni lið með því að senda boð um þátttöku í könnuninni og viðskiptavinir okkar geti þannig veitt upplýst samþykki um þátttöku. Framkvæmd könnunarinnar og úrvinnsla gagna er í höndum Félagsvísindastofnunar.
Á vef ÖBÍ má sjá nánari upplýsingar um rannsóknina, en sambærileg rannsókn var síðast gerð árið 2022.
Farið verður með öll gögn samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (lög nr. 90/2018).
TR telur mikilvægt að bæta þekkingu á aðstæðum einstaklinga sem fá greiðslur frá TR og hvetur öll sem hafa fengið boð um þátttöku í rannsókninni til að taka þátt.