Fara beint í efnið
Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

Almannatryggingar í 90 ár

14. ágúst 2026

"Framtíðin er núna og huga þarf að almannatryggingum framtíðarinnar. Við þurfum að velta upp spurningum um greiðslur, réttindaávinning og lagaumgjörð. Jafnframt þarf að huga að hvatningu til þátttöku á vinnumarkaði, öldrun þjóðar, samspili atvinnulífs og hins opinbera, og hvernig við nýtum tæknina. Allt eru þetta þættir sem hafa áhrif á framgang kerfisins og hvernig við sem samfélag ætlum að haga öryggisneti framtíðarinnar.“ Segir Huld Magnúsdóttir forstjóri TR meðal annars í grein sem birtist í Morgunblaðinu í gær. Þar fjallar hún um upphaf lagasetningar um almannatryggingar, þróun ásamt því að horfa til framtíðar.

Huld Magnúsdóttir, forstjóri TR.

Tilefnið er að á þessu ári eru 90 ár liðin frá því að Lög um alþýðutryggingar tóku gildi og sama ár var Tryggingastofnun ríkisins sett á laggirnar. Í áranna rás hefur almannatryggingakerfið þróast og breyst í takt við breytt samfélag og breyttar áherslur. Með tímanum varð Tryggingastofnun ríkisins að þremur stofnunum; Tryggingastofnun, Sjúkratryggingum Íslands og Vinnumálastofnun. Í upphafi fjölluðu lög um alþýðutryggingar um slysatryggingar, sjúkratryggingar, elli- og örorkutryggingar og atvinnuleysistryggingar. Það má því í raun segja að 90 árum síðar er grunnurinn að almannatryggingum sá sami þó áherslur og útfærslur hafi breyst

Það var mikil framsýni hjá fámennri þjóð að setja lög um ýmis konar tryggingar fyrir landsmenn og byggja þannig grunn að öryggisneti fyrir þá sem þurfa á að halda af ýmsum ástæðum. Þegar lífeyri var fyrst úthlutað samkvæmt hinum nýju alþýðutryggingalögum haustið 1936 voru íbúar landsins tæplega 160 þúsund talsins og voru greiddar samtals 942.420 krónur til 5.860 einstaklinga. Nú 90 árum síðar eru íbúar um 390 þúsund og greiðslur frá TR árið 2025 námu tæplega 250 milljörðum króna.

Afmælisráðstefna 30. september

Við munum minnast afmælisins 30. september næstkomandi með ráðstefnu þar sem fjallað verður um almannatryggingar á Íslandi og farið yfir sögu, þróun og framtíð kerfisins. Þá verður fjallað um samspil almannatrygginga við atvinnulíf, stéttarfélög, lífeyrissjóði og fræðasamfélag. Það verða erlendir gestir meðal annars frá OECD, ISSA alþjóðasamtökum almannatryggingastofnana, félags- og fjölskylduráðuneyti Möltu auk forstjóra almannatryggingastofnana á norðurlöndunum. Við munum kynna ráðstefnuna nánar á næstunni.