Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

Aldursviðbót ellilífeyris greidd í fyrsta sinn

26. febrúar 2026

Aldursviðbót ellilífeyris hefur verið greidd til þeirra sem eiga rétt á henni fyrir tímabilið janúar til febrúar 2026 og greiðsluáætlanir hafa verið uppfærðar. Um 1.400 einstaklingar eiga rétt á aldursviðbót ellilífeyris sem er nýjung sem tók gildi 1. janúar síðastliðinn.

Aldursviðbót ellilífeyris greiðist þeim sem áttu rétt á aldursviðbót örorkulífeyris við ellilífeyrisaldur og voru á aldrinum 18-43 ára við fyrsta örorkumat eða þegar skilyrði endurhæfingarlífeyris voru fyrst uppfyllt.

Bent er á að ef viðkomandi var eldri en 43 ára þegar skilyrði endurhæfingarlífeyris voru fyrst uppfyllt eða við fyrsta örorkumat er ekki réttur á aldursviðbót ellilífeyris.

Upphæðir

Aldursviðbót elliífeyris getur verið að hámarki 32.917 kr. hjá einstaklingum sem fengu sitt fyrsta örorkumat á aldrinum 18 – 24 ára. Fjárhæðin lækkar um 5% frá og með 25 ára aldri fram að 44 ára aldri.

Aldursviðbót er tekjutengd. Samanlögð fjárhæð lífeyris, heimilisuppbótar og aldursviðbótar lækkar um 45% af tekjum umfram frítekjumörk, þar til aldursviðbót fellur niður.

Aldursviðbót ellilífeyris var komið á með lögum nr. 95/2025.