Auðlesið - Almennt um nýja kerfið
Nýtt kerfi hjá Tryggingastofnun byrjaði 1. september 2025.
Nýja kerfið er einfaldara.
Nýja kerfið hjálpar fólki að vinna.
Flest eiga að fá meiri pening í nýja kerfinu.
Til dæmis fólk sem vinnur.
Nýja kerfið á að styðja fólk í endurhæfingu.
Hverju breytir Tryggingastofnun í nýja kerfinu?
Í nýja kerfinu eru 4 flokkar af greiðslum frá Tryggingastofnun.
Flokkarnir heita Greiðsluflokkar.
Greiðsluflokkarnir eru:
Örorku·lífeyrir
Hluta·örorku·lífeyrir
Hluta·örorku·lífeyrir er nýr flokkur.
Sjúkra- og endurhæfingar·greiðslur
Sjúkra- og endurhæfingar·greiðslur koma í staðinn fyrir endurhæfingar·lífeyri.
Virknistyrkur
Virknistyrkur er nýr flokkur.
Örorkumat
Í nýja kerfinu eru líka breytingar á örorkumati.
Í örorkumatinu stendur hvað þú ert með mikla örorku.
Örorkumatið veitir þér rétt á peningum frá Tryggingastofnun.
Í nýja kerfinu kemur samþætt sérfræði·mat í staðinn fyrir örorkumat.
Þá er það samþætt sérfræði·mat sem veitir þér rétt á peningum frá Tryggingastofnun.
Smelltu hér til að lesa um samþætt sérfræði·mat á auðlesnu máli.
Ég fæ peninga frá Tryggingastofnun. Breytist eitthvað hjá mér?
Kannski.
Flestir fá meiri pening frá Tryggingastofnun í nýja kerfinu.