Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Vorráðstefna Þjóðskjalasafns Íslands 2026

13. maí 2026

Rafræn skil og varðveisla rafrænna gagna – Lærdómar, áskoranir og leiðin fram á við.

Árleg vorráðstefna Þjóðskjalasafns fer fram miðvikudaginn 3. júní næstkomandi á Berjaya Reykjavik Natura Hotel. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er Rafræn skil og varðveisla rafrænna gagna – Lærdómar, áskoranir og leiðin fram á við

Ráðstefnan fer fram á milli kl. 10:00 – 13:00. Hún verður einnig send út í streymi.

Skráning er hafin og eru upplýsingar um dagskrá og skráningu að finna hér.

Sérstakt snemmskráningargjald verður í boði til 22. maí.

Rafræn skil hafa færst í aukanna hér á landi síðustu ár samhliða aukinni stafvæðingu og meðvitund hjá afhendingarskyldum aðilum um rafræna skjalavörslu, gildi góðrar skjalastjórnar og mikilvægi afhendinga á rafrænum gögnum. Aðferðarfræði rafrænna skila hér á landi hefur frá upphafi tekið mið af aðferðum danska ríkisskjalasafnsins sem er leiðandi í langtímavarðveislu rafrænna gagna í heiminum.

Ráðstefnan í ár verður helguð þessari vegferð og tækifærið notað til að kynnast lærdómum sem dregnir hafa verið í báðum löndum, þeim áskorunum sem blasa við og í hverju leiðin fram á við felst.