Við leitum að kerfisstjóra
2. janúar 2026
Þjóðskjalasafn Íslands auglýsir laust til umsóknar starf kerfisstjóra. Leitað er að drífandi einstaklingi í spennandi og fjölbreytt starf hjá öflugri menningar- og stjórnsýslustofnun sem varðveitir heimildir um sögu þjóðarinnar og leiðir skjalavörslu og skjalastjórn hins opinbera. Um fullt starf er að ræða og er kerfisstjóri hluti af öflugu teymi á skrifstofu rekstrar.

Um 50 manns starfa hjá Þjóðskjalasafni. Um þessar mundir standa yfir miklar breytingar í starfseminni og því um spennandi tækifæri að ræða fyrir kraftmikinn aðila.
Starfshlutfall er 100% og umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2026.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rekstur og viðhald upplýsingatæknikerfa
Rekstur hugbúnaðarkerfa í samvinnu við hýsingaraðila
Uppsetning og viðhald á tækjabúnaði
Þjónusta, tæknilegur stuðningur og fræðsla fyrir starfsfólk
Verkefnastýring verkefna á sviði upplýsingatækni
Samskipti við birgja og aðra samstarfsaðila
Úrbætur á sviði upplýsingaöryggis
Hæfniskröfur
Haldbær reynsla af sambærilegu starfi á að minnsta kosti síðustu þremur árum er skilyrði
Menntun sem nýtist í starfi, svo sem tölvunarfræði, tæknifræði, kerfisstjórnun eða önnur sambærileg menntun
Þekking á stýrikerfum netþjóna og útstöðva skilyrði
Þekking á gagnagrunnum kostur
Grunnþekking á rekstri netkerfa og þráðlauss aðgangsbúnaðar
Reynsla af öryggisvöktun (SIEM) og samstarfi við öryggisvöktunarsetur (SOC) æskileg
Skipulagshæfni, frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og umbótasinnuð hugsun
Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
Krafa um mjög góða íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið, hæfniskröfur og umsókn má finna á Starfatorgi ríkisins.