Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Við leitum að forverði

24. júní 2024

Þjóðskjalasafn Íslands auglýsir laust til umsóknar starf forvarðar. Hér er spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullan sérfræðing á sviði varðveislu.

Forvarsla

Þjóðskjalasafn Íslands auglýsir laust til umsóknar starf forvarðar. Um er að ræða spennandi starf fyrir metnaðarfullan sérfræðing á sviði varðveislu hjá stofnun sem er leiðandi á sviði opinberrar skjalavörslu og skjalastjórnar. Starfshlutfall er 50%. Þjóðskjalasafn Íslands gegnir hlutverki framkvæmdaaðila opinberrar skjalavörslu og skjalastjórnar og er opinbert skjalasafn. Nú standa yfir mestu breytingar í starfsemi Þjóðskjalasafns um langt skeið, þar sem áhersla er lögð á stafræna umbreytingu, örugga varðveislu, gott aðgengi og sjálfbærni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Styrkjandi forvarsla

  • Fyrirbyggjandi forvarsla, ástandskannanir, mótun, innleiðing og skipulagning í varðveislurýmum

  • Ráðgjöf og fræðsla til starfsfólks um varðveislu og fyrirbyggjandi forvörslu

  • Þátttaka í mótun innanhússferla, verklags og stefnu í varðveislumálum Þjóðskjalasafns

  • Þátttaka í uppsetningu sýninga, innan safns og utan

Hæfniskröfur

  • Háskólagráða í forvörslu skilyrði, framhaldsmenntun í faginu kostur

  • Markverð reynsla af forvörslu er nauðsynleg

  • Reynsla af sambærilegu starfi hjá skjalasöfnum eða öðrum varðveislustofnunum æskileg

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti er áskilin

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Færni í mannlegum samskiptum, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í september eða eftir samkomulagi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Þjóðskjalasafns við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Þjóðskjalasafns

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 08.07.2024

Nánari upplýsingar veitir

Ólöf Jóna Tryggvadóttir, olof.j.tryggvadottir@skjalasafn.is Sími: 590 3300

Karen Þóra Sigurkarlsdóttir, karen@skjalasafn.is Sími: 590 3300

Sækja um starf