Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Tímamót í starfsemi Þjóðskjalasafns: Björk Ingimundardóttir kvödd með útgáfu ritsins Mál og vog

19. júní 2025

Björk Ingimundardóttir skjalavörður hefur kvatt Þjóðskjalasafn Íslands eftir 54 ára starfsævi. Björk fór á eftirlaun árið 2013 en hefur starfað sem gestafræðimaður hjá safninu síðan þá þar til hún lauk störfum í lok maí síðastliðinn.

Síðustu árin hefur hún einkum unnið að vefnum Orðabelg – Sögulegu hugtakasafni Þjóðskjalasafns Íslands en á löngum ferli sínum sem skjalavörður í Þjóðskjalasafni Íslands hefur Björk grafist fyrir um innihald ýmissa hugtaka og fyrirbrigða, skýrt orð og orðasambönd og fundið merkingar tákna og skammstafana í margvíslegum skjölum og gögnum sem hún hefur farið höndum um og rýnt í um dagana. Þessari þekkingu hefur hún haldið samviskusamlega til haga og er hún birt á vefnum.

Eitt af flóknari viðfangsefnum Bjarkar síðastliðin ár hefur verið að leita uppi og skrifa skýringar á mælieiningum fyrri alda. Hennar síðasta verk á Þjóðskjalasafni var að taka saman skýringarit um þessi efni og við þetta tækifæri var gefið út ritið Mál og vog. Mælieiningar fyrri alda, bæði á prenti og í rafrænni útgáfu. Ritið er opið og aðgengilegt á vef Þjóðskjalasafns og má lesa eða sækja hér. Allar orðskýringarnar eru jafnframt aðgengilegar í Orðabelg og verða vafalítið til að létta mörgum fræðimanninum lífið.

Björk Ingimundardóttir

Björk Ingimundardóttir.

Mál og vog - mælieiningar fyrri alda

Ritið Mál og vog - Mælieiningar fyrri alda.

Björk Ingimundardóttir kvödd

Þjóðskjalasafn Íslands

Heim­il­is­fang

Laugavegi 162

105 Reykjavík

kt. 710269-1149

Síma­tími sérfræð­inga

Mánudagar kl. 10:00 - 12:00

Miðvikudagar kl. 10:00 - 12:00

Fimmtudagar kl. 10:00 - 12:00