Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Þjóðskjalavörður heimsækir héraðsskjalasöfn

30. september 2026

Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður og Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður heimsóttu Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar og Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu miðvikudaginn 23. september síðastliðinn.

Heimsóknirnar eru liður í að efla samstarf opinberra skjalasafna hér á landi. Í heimsóknunum gefst tækifæri til að styrkja tengsl á milli opinberra skjalasafna á sama tíma og sameiginleg mál eru rædd og ráðgjöf er veitt í hinum ýmsu málum.

Í heimsóknunum í síðustu viku var meðal annars rætt um viðtöku skjala afhendingarskyldra aðila í kjölfar sameininga sveitarfélaga, frágang og skráningu pappírsskjalasafna, vörslu rafrænna gagna, skráningu og söfnun einkaskjalasafna í héraði og varðveislu og miðlun ljósmynda.

Starfssvæði Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar er Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit og eru þessi sveitarfélög jafnframt afhendingarskyld til safnsins. Starfssvæði Héraðsskjalasafns Austur-Húnavatnssýslu eru Húnabyggð og Sveitarfélagið Skagaströnd og eru þessi tvö sveitarfélög afhendingarskyld með sín skjöl á safnið.

Á Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar var fundað með Þórnýju Hlynsdóttur héraðsskjalaverði, Elínu Sigurborgu Harðardóttur safnverði og Þórunni Kjartansdóttur forstöðumanni Safnahúss Borgarfjarðar. Á Héraðsskjalsafni Austur-Húnavatnssýslu var fundað með Maríönnu Þorgrímsdóttur starfsmanni skjalasafns og Katharinu Schneider forstöðumanni Héraðsbókasafns og Héraðsskjalasafns Austur-Húnavatnssýslu. Svala Runólfsdóttir, fyrrum héraðsskjalavörður, kíkti jafnframt í heimsókn og heilsaði upp á gestina.

Á myndinni að ofan má sjá Hrefnu Róbertsdóttur, Þórnýju Hlynsdóttur og Elín Sigurborg Harðardóttir.

Heimsókn til Héraðsskjalasafns Austur-Húnavatnssýslu

Frá vinstri: Hrefna Róbertsdóttir, Maríanna Þorgrímsdóttir og Katharina Schneider.

Þjóðskjalasafn Íslands

Heim­il­is­fang

Laugavegi 162

105 Reykjavík

kt. 710269-1149

Síma­tími sérfræð­inga

Mánudagar kl. 10:00 - 12:00

Miðvikudagar kl. 10:00 - 12:00

Fimmtudagar kl. 10:00 - 12:00