Stafræn endurgerð Borgarskjalasafns flutt á vef Þjóðskjalasafns
2. mars 2026
Hluti af tilfærslu á verkefnum og safnkosti Borgarskjalasafns til Þjóðskjalasafns er vefur og stafræn endurgerð Borgarskjalasafns.

Þann 1. mars var vef Borgarskjalasafns lokað en allt efni af vefnum sem tengist miðlun á safnkostinum og birting á stafrænni endurgerð hefur nú verið fært yfir á vefsvæði Þjóðskjalasafns og er aðgengilegt á heimildir.is frá og með deginum í dag.
Það verður því ekki rof í þessari þjónustu við notendur skjalasafnsins og manntöl, brunavirðingar, fundagerðarbækur, elstu skjöl borgarinnar og annað vinsælt efni er nú áfram aðgengilegt á vef.
Hér má fara beint inn á vefsíðuna reykjavik.skjalasafn.is.