Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Skjöl Alþýðusambands Íslands afhent til Þjóðskjalasafns

12. mars 2026

Í vikunni undirrituðu Alþýðusamband Íslands og Þjóðskjalasafn Íslands samning um skil á pappírsskjalasafni ASÍ til safnsins. Afhendingin inniheldur málasafn ASÍ frá 1967-2022. Með afhendingunni er varðveisla mikilvægra heimilda um starfsemi sambandsins og sögu íslenskrar verkalýðshreyfingar tryggð.

ASÍ hefur um áratuga skeið afhent skjöl sín til Þjóðskjalasafns Íslands með það að markmiði að tryggja faglega langtímavarðveislu, öryggi gagna og aðgengi að sögulegum heimildum.

Árið 2002 afhenti ASÍ til Þjóðskjalasafns svokallað Sögusafn verkalýðshreyfingarinnar sem er mikið umfangs og geymir skjalasöfn verkalýðsfélaga hvaðanæva af landinu, auk skjalasafna einstaklinga og pólitískra félaga sem tengdust verkalýðshreyfingunni á einhvern hátt. Sögusafnið var upphaflega stofnað af ASÍ árið 1974 til þess að efla söfnun, varðveislu og rannsóknir á heimildum um sögu íslenskrar verkalýðshreyfingar.

Alþýðusamband Íslands fagnar 110 ára afmæli í dag en það var stofnað 12. mars árið 1916, sjá vef ASÍ.

Á myndinni eru frá vinstri Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður, Eyrún B. Valsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ og Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ.