Rannsóknadagur Þjóðskjalasafns 2026
1. október 2026
Rannsóknadagur Þjóðskjalasafns Íslands var haldinn fimmtudaginn 24. september undir yfirskriftinni „Stjórnsýsla og skjalasöfn“. Dagurinn var helgaður nýju ritverki, Stjórnsýsla og skjalasöfn – Framkvæmd skjalavörslu og skjalastjórnar, þar sem fjallað er um fjölbreytt viðfangsefni tengd skjalavörslu, skjalastjórn og mikilvægi skjala í stjórnsýslunni. Nokkrir höfunda ritsins kynntu efni greina sinna frá sögulegu, stjórnsýslulegu og lagalegu sjónarhorni.

Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður setti Rannsóknadaginn og fjallaði í ávarpi sínu um stjórnsýslulegt og menningarlegt hlutverk opinberra skjalasafna og mikilvægi öruggrar varðveislu gagna til framtíðar. Hún kynnti jafnframt markmið ritsins, sem er að beina sjónum að framkvæmd skjalavörslu og skjalastjórnar á Íslandi.
Helga Jóna Eiríksdóttir, skjalavörður, lektor í skjalfræði og ritstjóri ritsins, flutti erindið Þróun og framkvæmd eftirlits Þjóðskjalasafns Íslands. Þar ræddi hún meðal annars um lögbundið hlutverk opinberra skjalasafna, þróun skjalavörslu og skjalastjórnar og tilgang eftirlits.
Í erindi sínu Nýskipan skjalavörslu á Íslandi fór Kristjana Kristinsdóttir, fyrrum skjalavörður og lektor emeritus í skjalfræði yfir breytingar á skjalavörslu í kjölfar laga nr. 66/1985 um Þjóðskjalasafn Íslands og þá vinnu sem hófst við að bæta skipulag og vinnubrögð í skjalavörslu hjá ríkinu.

Opinber skjalasöfn og persónuverndarlöggjöf var titill erindis Þórðar Sveinssonar, yfirlögfræðings hjá Persónuvernd og prófdómara við Háskóla Íslands. Sagði hann frá samspili persónuverndarlöggjafarinnar og laga um opinber skjalasöfn, meðal annars varðveislu persónuupplýsinga og réttindi hins skráða.
Eftir hlé flutti Þorsteinn Magnússon héraðsdómari erindið Þýðing gamalla skjala við úrlausn þjóðlendumála. Þar fjallaði hann um mikilvægi gamalla skjala við úrlausn þjóðlendumála og hvernig þau hafa í sumum tilvikum jafnvel ráðið úrslitum.
Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður átti síðasta erindi dagsins, Afhendingarskylda og Alþingi. Í erindinu fór hann yfir breytingar á afhendingarskyldu Alþingis árin 2014 og 2019 auk tilgangs og markmiða afhendingarskyldunnar.

Dagskránni lauk með pallborðsumræðum undir stjórn Kristínar Benediktsdóttur, umboðsmanns Alþingis. Þar sköpuðust fjörugar umræður og áhugaverðar spurningar um efni erindanna og álitaefni tengd skjalavörslu og stjórnsýslu.

Að lokum var útgáfu ritsins Stjórnsýsla og skjalasöfn – Framkvæmd skjalavörslu og skjalastjórnar fagnað.
Fundarstjóri dagsins var Brynhildur Ingvarsdóttir, fagstjóri miðlunar og útgáfu hjá Þjóðskjalasafni Íslands.
Nánari upplýsingar um dagskrá Rannsóknadagsins má finna hér.