Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Ráðstefna um þjóðlendurannsóknir og útgáfuhóf vegna 3. bindis Yfirréttarins á Íslandi. 28. september kl. 13:00-16:00, ráðstefnan er öllum opin

21. september 2023

Rannsóknadagur Þjóðskjalasafns Íslands 2023 er helgaður þjóðlendurannsóknum.

rannsoknadagurinn augl op100

Rannsóknadagur Þjóðskjalasafns Íslands 2023 er helgaður þjóðlendurannsóknum. Ráðstefnan verður haldin í Þjóðskjalasafninu að Laugavegi 162, fimmtudaginn 28. september nk. Dagskráin hefst klukkan 13:00 og er áætlað að henni ljúki um kl. 16:00. Þá verður einnig fagnað útgáfu 3. bindis Yfirréttarins á Íslandi.

Um árabil hafa sérfræðingar í Þjóðskjalasafni unnið að gagnaöflun um jarðir og landsvæði á Íslandi vegna starfa óbyggðanefndar, en nefndin hefur meðal annars það hlutverk að skera úr um mörk þjóðlendna og eignarlanda. Gagnaöflunin er afar víðtæk og mikilvægur liður í að mál séu rannsökuð til hlítar áður en úrskurðir eru kveðnir upp. Skjölin eru af ýmsum toga, s.s. landamerkjalýsingar, vitnisburðir, kort og dómaframkvæmdir, en verkefnið hefur einnig leitt af sér afurðir á borð við svokallaðan dómabókagrunn sem inniheldur tugþúsundir færslna um dómsmál frá sautjándu öld og fram á þá tuttugustu. Á ráðstefnunni munu fyrirlesarar taka til umfjöllunar viðfangsefni er lúta að meðferð jarða á Íslandi auk þess sem fjallað verður um ýmis frumskjöl sem komið hafa fram við gagnaöflun.

Yfirrétturinn á Íslandi var æðsta dómstig innanlands frá 1563 til 1800. Í lok ráðstefnunnar verður fagnað útgáfu 3. bindis yfir dóma og skjöl Yfirréttarins en það nær yfir árin 1716–1732. Málin sem koma fyrir eru margvísleg t.d. dulsmál, meiðyrði, árás á dómara, drykkjulæti í kirkju, ásakanir um falskt þingsvitni, rekadeilur og þjófnaðarmál. Útgáfan er styrkt af Alþingi og unnin í samstarfi við Sögufélag. Ritstjórar eru Gísli Baldur Róbertsson, Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir og Ragnhildur Hólmgeirsdóttir.

Hægt er að kaupa bókina ásamt fyrri bindum Yfirréttarins á staðnum á sérstöku útgáfutilboði en einnig er hægt að nálgast eintak í vefverslun Sögufélags og helstu bókaverslunum.

Dagskrá

13:00-14:00

Ragnhildur Anna Kjartansdóttir

sérfræðingur í þjóðlendurannsóknum -

Saga jarðar

Jón Torfi Arason

sérfræðingur í þjóðlendurannsóknum -

Sjónhending, um landamerki og landamerkjabækur í Þjóðskjalasafni

Kjartan Richter

sérfræðingur í þjóðlendurannsóknum -

Uppdráttur Benónís. Saga af þrautseigju og þrætustykki

Hlé

14:10-14:50

Þorsteinn Magnússon

héraðsdómari og nefndarmaður hjá óbyggðanefnd -

Þýðing gamalla skjala við úrlausn þjóðlendumála

Ólafur Arnar Sveinsson

fagstjóri fræðslu og rannsókna hjá Þjóðskjalasafni Íslands -

Áreið á merki jarða. Óvenjuleg andmæli við áreiðargjörð 1853

Hlé

15:10-16:00

Margrét Gunnarsdóttir

sérfræðingur í þjóðlendurannsóknum -

Eyðijarðir, óbyggðir og viðreisn Íslands. Nýbýlatilskipunin árið 1776 í sögulegu ljósi

Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir og Ragnhildur Hólmgeirsdóttir

ritstjórar þriðja bindis Yfirréttarins á Íslandi, 1716-1732 -

Útgáfa Yfirréttarins á Íslandi, 3. bindi 1716-1732