Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Ráðstefna um skjalasöfn og sameiginlegan skjalaarf haldin í Nuuk

10. september 2026

Vestnorræna skjalaráðstefnan VNAK 2026 (Vestnordiske Arkivdagar) er haldin í Nuuk á Grænlandi dagana 9.–11. september. Að þessu sinni er yfirskrift ráðstefnunnar Afnýlenduvæðing skjalasafna og skjalaminni (Decolonized Archives and Archival Memory). Ráðstefnan er haldin að jafnaði á þriggja ára fresti af þjóðskjalasöfnum Íslands, Færeyja og Grænlands og að þessu sinni er Þjóðskjalasafn Grænlands gestgjafinn.

Alls taka 40 sérfræðingar þátt í ráðstefnunni og er meirihluti þeirra frá Íslandi. Þátttakendur koma frá skjalasöfnum, safnastofnunum og rannsóknaumhverfi landanna og ræða sameiginleg verkefni og áskoranir á sviði varðveislu, aðgengis og miðlunar heimilda.

Á dagskrá eru fyrirlestrar, pallborðsumræður og vinnustofur þar sem fjallað er meðal annars um sjálfstæði skjalasafna og sameiginlegan skjalaarf á vestnorrænu löndunum, afhendingu á og varðveislu skjala, miðlun sameiginlegrar sögu landanna og áhrif stafrænnar þróunar og gervigreindar á skjalavörslu. Þá verður sérstök áhersla lögð á tengsl skjalasafna við samfélag, menningararf og sögulegt minni.

Meðal dagskrárliða var heimsókn á Þjóðskjalasafn Grænlands þar sem gestir fengu fræðslu frá þjóðskjalaverðinum Vivi Noahsen um þátttöku þjóðskjalasafnsins í rannsókn yfirvalda vegna lykkjumálsins svokallaða. Nýlega var gefin út skýrsla um „fjölskylduáætlanagerð“ danskra yfirvalda í Grænlandi en á áttunda áratug síðustu aldar voru settar getnaðarvarnarlykkjur í rúmlega 4.000 grænlenskar stúlkur og konur án þeirra vitundar. Erfitt reyndist að finna heimildir um þessar aðgerðir en starfsfólki þjóðskjalasafnsins tókst að rekja saman sjúkraskrár og aðrar skrár lækna og heilbrigðisstarfsfólks sem geymdar voru á ólíkum stöðum til þess að gera rannsakendum kleift að hafa uppi á konunum sem brotið var gegn.

Ráðstefnan er mikilvægur vettvangur fyrir samstarf vestnorrænna skjalasafna og stuðlar að aukinni þekkingarmiðlun milli landanna um varðveislu og nýtingu heimilda til framtíðar.

Vestnorrænir skjaladagar 2026 í Nuuk

Þjóðskjalasafn Íslands

Heim­il­is­fang

Laugavegi 162

105 Reykjavík

kt. 710269-1149

Síma­tími sérfræð­inga

Mánudagar kl. 10:00 - 12:00

Miðvikudagar kl. 10:00 - 12:00

Fimmtudagar kl. 10:00 - 12:00