Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Raddir yfirvalda: Nýtt rit um skjalasöfn, stjórnsýslusögu og samfélag í vestnorrænu löndunum

11. september 2026

Út er komin bókin Autoritetens stemmer - i Nordatlanten. Arkiv, forvaltning og samfund fra middelalder til nyere tid. Í bókinni eru greinar eftir sjö höfunda um skjalasöfn, stjórnsýslusögu og samfélag frá miðöldum til nútímans á Íslandi, Færeyjum og Grænlandi og er hún gefin út af þjóðskjalasöfnum landanna þriggja. Ritstjórar verksins eru Sámal Tróndur Finnsson Johansen, Hrefna Róbertsdóttir og Vivi Noahsen. Útgáfu bókarinnar var fagnað á Vestnorrænu skjalaráðstefnunni í Nuuk.

Höfundar og ritstjórar greinasafnsins koma frá Danmörku, Færeyjum, Grænlandi og Íslandi og hafa um árabil starfað sem skjalaverðir hjá leiðandi skjalasöfnum landanna. Að baki hverri grein býr því víðtæk fagþekking og reynsla á sviði skjalavörslu. Greinarnar fjalla um mikilvæga þætti í stjórnsýslusögu vestnorrænu landanna. Þar sem þessi viðfangsefni hafa ekki áður verið rannsökuð og birt með þessum hætti, leggja greinarnar jafnframt fram nýja þekkingu á afmörkuðum þáttum í stjórnsýslusögu Norður-Atlantshafssvæðisins. Efni bókarinnar verður því gagnlegt verkfæri fyrir þá sem hyggjast rannsaka og skrifa um sögu Vestur-Norðurlanda á grundvelli rannsókna í vestnorrænum skjalasöfnum.

Upphaflega er þetta greinasafn afrakstur tveggja verkefna. Hið fyrra er Vestnorræna skjalasafnaráðstefnan (VNAK), sem haldin er á þriggja ára fresti til skiptis í Færeyjum, á Grænlandi og Íslandi. Þar koma saman starfsmenn skjalasafnanna í löndunum þremur til að ræða fagleg viðfangsefni, þar á meðal skjalafræði, skjalarannsóknir og stjórnsýslusögu. Í því samhengi hafa umfjöllunarefni þessarar bókar verið kynnt í ýmsum myndum og rædd meðal þátttakenda. Höfundarnir hafa síðan unnið áfram að hverju viðfangsefni fyrir sig og birta í bókinni endanlega niðurstöðu vinnunnar í formi fræðigreina.

Hitt verkefnið sem hefur haft áhrif á tilurð bókarinnar er greinasafnið Norður-Atlantshafið og nýlendur Dana í hitabeltinu (Nordatlanten og Troperne) frá árinu 2007. Þar áttu flestir höfundar þessarar bókar framlag og var verkið hluti af stærra dönsku rannsóknarverkefni undir heitinu Heimildir um danska stjórnsýslusögu (Kilder til dansk forvaltningshistorie). Við vinnu þess verkefnis voru haldnir fjölmargir ritstjórnar- og höfundafundir þar sem heimildir um stjórnsýslusögu landanna voru ræddar.

Þetta safnrit er ekki tæmandi umfjöllun um sögu stjórnsýslunnar í þessum þremur Norður-Atlantshafslöndum. Þvert á móti er því ætlað að kynna valdar stjórnsýslueiningar, tilurð þeirra, þróun, hlutverk og skjalasöfn. Markmiðið er að veita áhugasömum lesendum, einkum notendum skjalasafna, innsýn í hvernig sumar stjórnsýslueiningar, sjálf stjórnvöldin og embættin, hafa þróast í þessum löndum og hvaða verkefnum og ábyrgðarsviðum þeim hefur verið falið að sinna í gegnum tíðina og þar með einnig hvers konar sögulegar upplýsingar áhugasamir notendur geta vænst þess að finna í skjalasöfnum þeirra.

Bókina má panta með tölvupósti í upplysingar@skjalasafn.is en mun einnig fara í dreifingu í bókabúðir.

Autoritetens stemmer útgáfuhóf

Á myndinni frá vinstri: Sámal Tróndur Finnsson Johansen, Kristjana Kristinsdóttir, Vivi Noahsen og Hrefna Róbertsdóttir.

Autoritetens stemmer útgáfuhóf - Vivi Noahsen og Hrefna Róbertsdóttir

Vivi Noahsen og Hrefna Róbertsdóttir

Þjóðskjalasafn Íslands

Heim­il­is­fang

Laugavegi 162

105 Reykjavík

kt. 710269-1149

Síma­tími sérfræð­inga

Mánudagar kl. 10:00 - 12:00

Miðvikudagar kl. 10:00 - 12:00

Fimmtudagar kl. 10:00 - 12:00