Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Nýr gagnagrunnur um fornbréf Árna Magnússonar og málþing um safnkostinn

11. nóvember 2026

Næstkomandi helgi verður opnaður nýr gagnagrunnur um fornbréf úr safni Árna Magnússonar. Gagnagrunnurinn er samstarfsverkefni Þjóðskjalasafns Íslands, Árnastofnunar á Íslandi og í Danmörku og Þjóðskjalasafns Noregs, sem varðveita safnið og standa sameiginlega að gerð grunnsins.

Stofnbréf nunnuklausturs að Reynistað í Skagafirði árið 1295 með innsigli Jörundar Þorsteinssonar biskups.

Gagnagrunnurinn í heild inniheldur fornbréf sem ná frá 14. öld og allt fram á fyrri hluta 18. aldar. Um er að ræða skjöl varðandi kaupmála, máldaga kirkna, ýmiss konar samninga, dóma, jarðakaup, landamerkjamál, rekamál og margt fleira. Um er að ræða þúsundir bréfa, sem hafa verið óaðgengileg þorra manna í upprunalegu formi fram að þessu. Hér má ekki aðeins finna skráningarfærslur yfir bréfin heldur eru birtar vandaðar stafrænar ljósmyndir af þeim sem öllum er frjálst að nota án endurgjalds og að auki hægt að leita að nöfnum einstaklinga og staðarnöfnum, sem koma fyrir í bréfinu.

Íris Stefánsdóttir tók ljósmyndir af þeim ríflega 700 skjölum sem varðveitt eru í Þjóðskjalasafni Íslands, Gísli Baldur Róbertsson skráði safnkostinn í gagnagrunninn og Unnar Rafn Ingvarsson stýrði verkefninu af hálfu Þjóðskjalasafns. Verkið var styrkt af A.P. Möller sjóðnum í Danmörku en myndarlegur styrkur sjóðsins gerði það mögulegt að vinna að þessu metnaðarfulla verkefni.

Í tilefni opnunarinnar mun Þórunn Sigurðardóttir, rannsóknarprófessor emeritus, flytja erindi um gerð gagnagrunnsins föstudaginn 13. nóvember kl. 16:00 í Eddu, húsi Árnastofnunar. Nánar má lesa um viðburðinn hér.

Laugardaginn 14. nóvember verður síðan haldið málþing þar sem fræðimenn fjalla um safnkostinn frá ýmsum sjónarhornum. Málþingið fer fram í Eddu frá kl. 14:00 til 17:30. Dagskrá málþingsins má nálgast hér.

Áhugasöm um sögu og samfélag ættu að kynna sér þessa dagskrá.

Þjóðskjalasafn Íslands

Heim­il­is­fang

Laugavegi 162

105 Reykjavík

kt. 710269-1149

Síma­tími sérfræð­inga

Mánudagar kl. 10:00 - 12:00

Miðvikudagar kl. 10:00 - 12:00

Fimmtudagar kl. 10:00 - 12:00

Afgreiðslu­tími lestr­ar­sals

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9:30 - 16:00

Lokað á föstudögum