Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Nýr gagnagrunnur um alþingiskosningar

29. apríl 2026

Nýr vefgagnagrunnur um alþingiskosningar á árunum 1874–1903 opnar á miðlunarvef Þjóðskjalasafns Íslands í tilefni verkalýðsdagsins 1. maí.

Gagnagrunnurinn, sem er aðgengilegur hér, er samstarfsverkefni Þjóðskjalasafns Íslands og Hrafnkels Lárussonar sagnfræðings. Hann byggir á stafrænni uppskrift kjörskráa og atkvæðaskráa frá 1874–1903 sem til þessa hafa einungis verið aðgengilegar á pappír.

Gagnagrunnurinn er tvískiptur. Annars vegar er um að ræða upplýsingasíðu sem starfsfólk Þjóðskjalasafns hefur sett upp og inniheldur skýringar og úrvinnslu kjörgagna sem Hrafnkell Lárusson hefur unnið. Hins vegar er vefbirting gagnagrunnsins sem fyrirtækið Expectus ehf. hannaði í samvinnu við aðstandendur verkefnisins. Í vefgagnagrunninum má leita að einstaklingum, bæði kjósendum og frambjóðendum, og kalla fram upplýsingar eftir ýmsum valkostum auk þess sem þar birtist ýmiskonar tölfræði um kosningar á tímabilinu.

Síðasti fjórðungur 19. aldar og upphafsár 20. aldar voru tími róttækra breytinga á flestum sviðum íslensks samfélags. Meðal þessara breytinga voru áberandi vöxtur í félagastarfi, lýðræðisþróun og öflugri réttindabarátta almennings, sem skilaði sér meðal annars í útvíkkun kosningaréttar til þjóðfélagshópa sem höfðu verið útilokaðir frá fullum þegnrétti. Það er því vel við hæfi að opna þennan gagnagrunn um kosningar í tilefni af baráttudegi verkalýðsins og í aðdraganda komandi bæjar- og sveitarstjórnakosninga.

Það er von aðstandenda gagnagrunnsins að hann geti nýst bæði við rannsóknir og kennslu og auk þess verið forvitnilegur áhugafólki um stjórnmálasögu og kosningar.

Þriðjudaginn 5. maí mun birtast á vef Þjóðskjalasafns þáttur í hlaðvarpi Þjóðskjalasafns, Til skjalanna þar sem Unnar Ingvarsson fagstjóri stafrænnar endurgerðar í Þjóðskjalasafni og Hrafnkell Lárusson sagnfræðingur ræða um tilurð gagnagrunnsins, virkni hans og notkunarmöguleika.

Gagnagrunnurinn er aðgengilegur hér.

Að neðan má sjá skjáskot af vefsíðunni sem sýna fjölbreytta leitarmöguleika í kjörgögnunum:

Alþingiskosningar 1874-1903 - kjósendur
Alþingiskosningar 1874-1930 - frambjóðendur
Alþingiskosningar 1874-1903 - kosningar