Ný síða um útgáfu Þjóðskjalasafns á Heimildir.is
13. október 2026
Nýlega var opnuð ný síða um útgefið efni frá Þjóðskjalasafni á Heimildir.is þar sem hægt er að kynna sér og kaupa bækur, smárit og annað útgáfuefni sem tengist íslenskri sögu, fólki, skjölum og skjalasöfnum.

Markmiðið er að gera efnið aðgengilegra og auðvelda áhugasömum að finna efni við sitt hæfi.
Á síðunni má finna fjölbreytt úrval rita, meðal annars um skjalavörslu og skjalastjórn, íslenska stjórnsýslu, sögulegar rannsóknir og varðveislu heimilda. Einnig er þar efni sem hægt er að nálgast á rafrænu formi.
Meðal nýrra útgáfurita er bókin Stjórnsýsla & skjalasöfn – Framkvæmd skjalavörslu og skjalastjórnar á Íslandi, auk fjölda annarra rita sem varpa ljósi á íslenska sögu og stjórnsýslu fyrri alda.
Nánari upplýsingar um útgáfurnar, verð og kaup er að finna hér
Vakin er athygli á því að bækur eru afhentar í afgreiðslu Þjóðskjalasafns á Laugavegi 162 og greitt er fyrir þær með innheimtukröfu sem send verður í heimabanka.