Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Námskeið í skjalavörslu og skjalastjórn veturinn 2023-2024

12. október 2023

Þjóðskjalasafn Íslands mun bjóða upp á röð námskeiða í vetur eins og venja hefur verið undanfarin ár.

skjalageymslur vef 0

Þjóðskjalasafn Íslands mun bjóða upp á röð námskeiða í vetur eins og venja hefur verið undanfarin ár. Námskeiðin verða kennd í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams og eru þeim sem vilja sitja námskeiðin að kostnaðarlausu en nauðsynlegt er að skrá sig. Þátttakendur fá síðar tengil á námskeiðið þegar nær dregur námskeiðinu.

Á vef Þjóðskjalasafns Íslands er að finna yfirlit um námskeið vetrarins og þar hægt er að skrá sig á námskeiðin.

Dagskrá vetrarins:

17.10.2023, kl. 10-11

Skráning mála og málsgagna.

24.10.2023, kl. 10-11

Frágangur, skráning og afhending pappírsskjala.

31.10.2023, kl. 10-11

Er röð og regla á málasafninu? Gerð málalykla.

7.11.2023, kl. 10-11

Þarf að bæta skjalavörslu og skjalastjórn? Átak í skjalavörslu.

14.11.2023, kl. 10-11

Gerð skjalavistunaráætlunar. Við verðum að hafa yfirsýn.

21.11.2023, kl. 10-11

Tilkynningar á rafrænum gagnasöfnum.

28.11.2023, kl. 10-11

Hverju má henda? Um grisjun skjala.

9.1.2024, kl. 10-11

Hvað á að gera við tölvupóstinn? Um varðveislu og eyðingu á tölvupósti.

16.1.2024, kl. 10-11

Sameining afhendingarskyldra aðila og tilfærsla verkefna: nokkur góð ráð.

23.1.2024, kl. 10-11

Afhendingar úr rafrænum gagnasöfnum.

6.2.2024, kl. 10-11

Undirbúningur og gerð vörsluútgáfu.

13.2.2024, kl. 10-11

Innra eftirlit í rafrænum gagnasöfnum.