Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Metár í móttöku gagna og þörf fyrir meira rými

5. mars 2026

Árið 2025 tók Þjóðskjalasafn við meira af gögnum til varðveislu en nokkru sinni áður. Ljóst er að safnið þarf meira og hentugra rými fyrir safnkostinn og nýlega var auglýst eftir húsnæði til leigu.

Ríkiseignir hafa umsjón með húsnæði safnsins og hafa auglýst eftir 700-1500 fermetra húsnæði á höfuðborgarsvæðinu fyrir geymslur og aðra aðstöðu fyrir móttöku gagna. Morgunblaðið fjallaði nýlega um húsnæðisþörf safnsins og þá miklu aukningu sem orðið hefur á síðustu árum í gagnaskilum til Þjóðskjalasafns.

„Almennt eru miklar breytingar hjá hinu opinbera þar sem meiri áhersla er orðin á stafræn gögn“, segir Kristján Þorvaldsson sviðsstjóri rekstrar á Þjóðskjalasafni í viðtali við Morgunblaðið. „Skjalageymslum hjá stofnunum er lokað og þannig gefst færi á að minnka húsnæði og ná fram hagræðingu í rekstri. Afhendingaskyldir aðilar koma með skjölin hingað á safnið í auknum mæli.“

Hagræðing og sparnaður með gagnaskilum ríkistofnana krefst hins vegar aukins rýmis á á Þjóðskjalasafninu og slík fjárfesting stuðlar að langtímahagræðingu í rekstri hins opinbera. Hér má lesa vefútgáfu fréttarinnar á mbl.is og á meðfylgjandi mynd má sjá greinina í heild sinni.

Aldrei meira efni borist á Þjóðskjalasafn mbl-2026-03-03