Mannauður heimsækir Þjóðskjalasafn Íslands
27. apríl 2026
Þjóðskjalasafn Íslands tók nýlega á móti félagsfólki í Mannauði, félagi mannauðsfólks. Þau sem starfa hjá aðilum sem bera afhendingarskyldu til safnsins voru sérstaklega boðin velkomin og mættu alls 45 manns.

Í tilefni heimsóknarinnar hafði starfsfólk safnsins sett fram sýningu á gömlum mannauðsgögnum í vörslu safnsins sem vöktu mikinn áhuga gesta. Þar voru meðal annars gögn úr skjalasöfnum frá Bessastöðum og Viðey frá 17. öld og einkaskjalasafni frá Stóru-Háeyri á Eyrabakka frá aldamótunum 1900.
Hópurinn fékk kynningu á opinberri skjalavörslu og fræðslu um ýmis hagnýt ráð um útfærslur á skjalavörslu, skrásetningu og varðveislu. Auk þess sem nýleg dæmi úr opinberri umræðu voru reifuð er snerta upplýsingarétt, hag stjórnsýslunnar, réttindi borgaranna og sögu þjóðarinnar. Ólöf Jóna Tryggvadóttir rekstrarstjóri ferla og gæða og Heiðar Lind hansson fagstjóri gagnaskila og eftirlits tóku á móti gestunum.

Heiðar Lind Hansson ræðir opinbera stjórnsýslu.

Kvittun fyrir kaupi Kolfinnu Halldórsdóttur ráðskonu á Bessastöðum, frá árinu 1646. Launin voru 3 álnir af fínu lérefti og 4 álnir af klæði.

Uppsagnarbréf vinnufólks á Bessastöðum og í Viðey frá 1645. Skjalið er kvittun fyrir útgjöldum vegna vinnufólksins árið 1645 en í athugasemd er þess getið að ekki sé gert ráð fyrir þessum útgjöldum árið eftir.

Vistarsamningur Benedikts Jónssonar, áður vetrarvertíðarmanns. Hér ræður hann sig til smíða og annarrar heimilisvinnu frá 14. maí 1898 til 14. maí 1899, hjá Guðmundi Ísleifssyni á Stóru-Háeyri á Eyrarbakka.