Könnun um vefmiðlun Þjóðskjalasafns
2. mars 2026
Undirbúningsvinna er nú í gangi fyrir smíði á nýjum miðlunarvef fyrir Þjóðskjalasafn Íslands. Mikilvægur hluti undirbúningsins er að leita álits notenda og sett hefur verið upp stutt netkönnun.

Markmiðið með nýjum miðlunarvef er að smíða eina vefgátt sem tengir alla miðlun á safnkosti Þjóðskjalasafns og rannsóknum á honum saman og birtir með mismunandi hætti eftir því sem við á, meðal annars með kortasjá.
Á vefnum verður leitarvél og vefsjá sem tengist skjalaskrá og stafrænni endurgerð á safnkostinum og getur tengt saman upplýsingar um fólk og staði yfir aldirnar með gagnvirkum hætti. Álit notenda er afar mikilvægt til að hægt sé að skapa vef sem þjónar notendum sem best.
Með þessari stuttu könnun viljum við fá innsýn í viðhorf notenda til notkunar á miðlunarvefjum safnsins sem nú eru heimildir.is, skjalaskra.skjalasafn.is og aðrir vefir sem birta safnkost Þjóðskjalasafns.
Við spyrjum einnig um aðalvef Þjóðskjalasafns á slóðinni skjalasafn.is en sá vefur er hluti af vefgátt stjórnvalda á island.is. Við yrðum þakklát öllum sem taka sér stutta stund til að svara könnuninni, en það tekur um 3-5 mínútur. Könnunin er opin til og með 10. mars 2026.
Hér er hlekkur á könnun. Einnig má nota QR-kóðann á meðfylgjandi mynd.