Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Könnun á skjalageymslum afhendingarskyldra aðila

19. október 2026

Þjóðskjalasafn Íslands ráðgerir að framkvæma eftirlitskönnun á skjalageymslum afhendingarskyldra aðila líkt og gert var árið 2021 og greint var frá í skýrslu sem gefin var út sama ár. Könnunin fer fram dagana 4. til 25. nóvember næstkomandi en kynning á henni verður miðvikudaginn 28. október kl. 10.

Markmið könnunarinnar er að kortleggja hve mikið rými er notað undir varðveislu pappírsskjala ásamt núverandi umfangi pappírsskjala sem er í varðveislu hjá aðilum sem eru afhendingarskyldir til Þjóðskjalasafns Íslands.

Framkvæmd könnunarinnar fer fram dagana 4. til 25. nóvember næstkomandi. Forstöðumönnum afhendingarskyldra aðila, sem ábyrgðaraðilar skjalastjórnar og skjalavörslu, verður sent bréf áður sem kynnir framkvæmd hennar.

Vakin er athygli á því að könnunin mun ná til afhendingarskyldra aðila ríkisins og sveitarstjórnarskrifstofa sem eru afhendingarskyldar til Þjóðskjalasafns Íslands.

Af þessu tilefni mun Þjóðskjalasafns Íslands halda kynningu á framkvæmd könnunarinnar og fer hún fram miðvikudaginn 28. október kl. 10 og verður haldin í gegnum Teams. Kynningin er liður í því að aðstoða afhendingarskylda aðila við að svara könnuninni og veita Þjóðskjalasafni sem bestar upplýsingar. Á kynningunni verður farið yfir hverju má búast við í könnuninni, framkvæmd hennar og eftirfylgni.

Kynningin er ætluð umsjónarfólki skjalasafna afhendingarskyldra aðila, hvort sem það eru skjalastjórar eða annað starfsfólk, forstöðumönnum eða öðrum sérfræðingum.

Hægt er að skrá sig á kynninguna sem fram fer 28. október hér.

Hér má nálgast skýrslu um skjalageymslur afhendingarskyldra
aðila ríkisins frá árinu 2021.

Þjóðskjalasafn Íslands

Heim­il­is­fang

Laugavegi 162

105 Reykjavík

kt. 710269-1149

Síma­tími sérfræð­inga

Mánudagar kl. 10:00 - 12:00

Miðvikudagar kl. 10:00 - 12:00

Fimmtudagar kl. 10:00 - 12:00

Afgreiðslu­tími lestr­ar­sals

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9:30 - 16:00

Lokað á föstudögum