Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Hraðskákmót Þjóðskjalasafns og Skáksambands Íslands

20. janúar 2026

Föstudaginn 23. janúar verður haldið hraðskákmót á vegum Þjóðskjalasafns Íslands og Skáksambands Íslands. Mótið er boðsmót en áhugasamir gestir eru velkomnir að koma og fylgjast með mótinu í lestrarsal Þjóðskjalasafns að Laugavegi 162. Gert er ráð fyrir að keppendur verði um tuttugu talsins.

Tilefni mótsins er fyrst og fremst afhending Skáksambands Íslands á frumgögnum sínum til varanlegrar varðveislu í Þjóðskjalasafni. Þá er mótið einnig haldið í tengslum við skákdaginn 26. janúar, sem er fæðingardagur Friðriks Ólafssonar fyrsta íslenska stórmeistarans í skák. Myndin af ofan er einmitt af frímerki sem gefið var út árið 2008 til heiðurs Friðriki Ólafssyni.

Skákmótið fer fram í lestrarsal Þjóðskjalasafns að Laugavegi 162 og hefst kl. 15:30. Áætlað er að mótinu ljúki um klukkan 17:30. Viðburðurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.