Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Héraðsskjalasafn Dalasýslu heimsótt

5. nóvember 2026

Þjóðskjalavörður og aðstoðarþjóðskjalavörður heimsóttu Héraðsskjalasafn Dalasýslu miðvikudaginn 4. nóvember síðastliðinn. Heimsóknirnar eru liður í að efla tengsl og samstarf opinberra skjalasafna um land allt.

Aðsetur Héraðsskjalasafns Dalasýslu í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal

Í heimsókninni ræddu Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður og Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður við Valdísi Einarsdóttur héraðsskjalavörð um starfsemi og verkefni Héraðsskjalasafns Dalasýslu. Má þar nefna langtímavarðveislu og skráningu pappírsskjala sveitarfélagsins, varðveislu og miðlun ljósmynda í safnkosti, eftirlit með og ráðgjöf um skjalamál til afhendingarskyldra aðila og varðveislu og söfnun einkaskjalasafna.

Aðsetur Héraðsskjalasafns Dalasýslu er í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal sem má sjá á meðfylgjandi mynd.

Þjóðskjalasafn Íslands

Heim­il­is­fang

Laugavegi 162

105 Reykjavík

kt. 710269-1149

Síma­tími sérfræð­inga

Mánudagar kl. 10:00 - 12:00

Miðvikudagar kl. 10:00 - 12:00

Fimmtudagar kl. 10:00 - 12:00

Afgreiðslu­tími lestr­ar­sals

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9:30 - 16:00

Lokað á föstudögum