Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Háskóli Íslands og Þjóðskjalasafnið efla samstarf um nám í skjalfræði

3. júní 2026

Þjóðskjalasafn Íslands og Háskóli Íslands hafa endurnýjað samstarfssamning um nám í hagnýtri skjalfræði. Um leið er ætlunin að efla samstarf á sviði kennslu og rannsókna milli námsbrautar í sagnfræði við Háskóla Íslands og Þjóðskjalasafnsins. Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður og Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, undirrituðu samstarfssamninginn 2. júní.

Nám í hagnýtri skjalfræði heyrir undir Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði. Námið er ætlað þeim sem hafa áhuga á að vinna með skjalasöfn eða rannsaka þau og þeim sem starfa við skjalavörslu og skjalastjórn úti í stofnunum og fyrirtækjum. Lagt er upp með að tengja námið við raunhæf verkefni og styrkja fólk í starfi og hafa aðstandendur námsins átt í góðu samstarfi við héraðsskjalasöfn um land allt um verkefni fyrir nemendur. Yfir 50 nemendur með bakgrunn úr fjölbreyttum háskólagreinum hafa lokið náminu frá árinu 2020.

Umsjón með námsleiðinni er í höndum lektors í skjalfræði sem er í 80% starfi við Háskóla Íslands og 20% starfi hjá Þjóðskjalasafninu. Hlutverk lektorsins er meðal annars að sinna kennslu og leiðbeina nemendum í einstaklingsverkefnum og rannsóknartengdu framhaldsnámi. Allmargir stundakennarar úr hópi starfsfólks Þjóðskjalasafns hafa einnig komið að kennslunni í gegnum árin og munu áfram gera það samkvæmt nýja samningnum.

Samningurinn gerir einnig ráð fyrir að tengja sagnfræðikennslu við Háskóla Íslands nánar við starfsemi Þjóðskjalasafns Íslands til að greiða fyrir gagnkvæmum fræðilegum samskiptum um varðveislu, miðlun og útgáfu heimilda og gagna til sögu Íslands. Ætlunin er að skilgreina verkefni þar sem til grundvallar liggja heimildir í Þjóðskjalasafni, sérfræðiþekking starfsmanna safnsins, nemenda og kennara HÍ.

Hér er hægt að sækja um örnám í hagnýtri skjalfræði fyrir næsta skólaár en umsóknarfrestur er til 5. júní.

Á myndinni að ofan eru frá vinstri: Sverrir Jakobsson prófessor, Valur Ingimundarson prófessor, Silja Bára R. Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands, Helga Jóna Eiríksdóttir, lektor í skjalfræði og skjalavörður, Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður, Kristján Þorvaldsson, sviðsstjóri rekstrar á Þjóðskjalasafni, og Brynhildur Ingvarsdóttir, fagstjóri miðlunar og útgáfu á Þjóðskjalasafni.

Silja Bára Ómarsdóttir rektor HÍ og Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður

Silja Bára R. Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands og Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður.

Brynhildur Ingvarsdóttir, fagstjóri miðlunar og útgáfu á Þjóðskjalasafni Íslands, og Helga Jóna Eiríksdóttir skjalavörður og lektor í skjalfræði við Háskóla Íslands.

Helga Jóna Eiríksdóttir skjalavörður á Þjóðskjalasafni og lektor í skjalfræði við Háskóla Íslands stýrir námsbrautinni og sagði frá henni við undirritun samningsins. Með henni á myndinni er Brynhildur Ingvarsdóttir, fagstjóri miðlunar og útgáfu á Þjóðskjalasafni.

Ljósmyndari: Kristinn Ingvarsson

Þjóðskjalasafn Íslands

Heim­il­is­fang

Laugavegi 162

105 Reykjavík

kt. 710269-1149

Síma­tími sérfræð­inga

Mánudagar kl. 10:00 - 12:00

Miðvikudagar kl. 10:00 - 12:00

Fimmtudagar kl. 10:00 - 12:00