Grundvallarrit fyrir alla í opinberri stjórnsýslu
16. október 2026
Nú á dögunum kom út glæsilegt rit á vegum Þjóðskjalasafns Íslands, Stjórnsýsla og skjalasöfn. Framkvæmd skalavörslu og skjalastjórnar á Íslandi. Ritið inniheldur greinar sem allar tengjast stjórnsýsluhlutverki Þjóðskjalasafns á einhvern hátt.

Ritið er grundvallarrit fyrir alla er starfa í opinberri stjórnsýslu en það veitir dýpri skilning á lögum um opinber skjalasöfn, hlutverk Þjóðskjalasafns sem stjórnsýslustofnunar og áhrif laganna á skjalavörslu og skjalastjórn hins opinbera. Rit þetta ætti að gagnast öllum þeim sem starfa innan opinbera geirans, hvort sem það er ríki eða sveitarfélag og hjálpa þeim að skilja tilgang laganna og hvaða meginreglur eru til grundvallar.
Í ritinu er fjallað um ýmsa þætti í þróun langtímavörslu skjala svo sem grisjun, rafræna langtímavarðveislu skjala, og hvað felst í afhendingarskyldunni. Sjónum er beint að eftirlitshlutverki Þjóðskjalasafns Íslands og mikilvægi skjala í stjórnsýslunni. Fjallað er um tengsl laga um opinber skjalasöfn við önnur lög í landinu þar sem einnig er tekið á gögnum og gagnaöryggi. Fjallað er um refsiheimildir samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn og svo hvernig gömul skjöl geta haft bein áhrif á úrlausn mála í nútímanum.
Í bókinni eru 10 greinar eftir 9 höfunda, lögfræðinga, sagnfræðinga og stjórnsýslufræðinga, sem skoða hlutverk opinberra skjalasafna frá ólíkum sjónarhornum. Ritstjóri bókarinnar er Helga Jóna Eiríksdóttir og auk hennar er ritnefndin skipuð þeim Hrefnu Róbertsdóttur, Kristjönu Kristinsdóttur og Nirði Sigurðssyni.
Í bókinni er að finna greinarnar:
Lýðræði og stjórnsýsla - Hrefna Róbertsdóttir, þjóðskjalavörður
Nýskipan skjalavörslu á Íslandi - Kristjana Kristinsdóttir, lektor emeritus
Grisjun og varðveisla skjala - Helga Jóna Eiríksdóttir, lektor og Kristjana Kristinsdóttir, lektor emeritus
Meginreglur um varðveislu rafrænna gagna - Jan Dalsten, deildarstjóri hjá Ríkisskjalasafni Danmerkur
Um skyldu stjórnvalda til að halda málaskrá og varðveita málsgögn - Trausti Fannar Valsson, prófessor
Þróun og framkvæmd eftirlits Þjóðskjalasafns Íslands - Helga Jóna Eiríksdóttir, lektor
Refsiheimildir laga um opinber skjalasöfn - Friðrik Árni Friðriksson Hirst, aðjúnkt
Opinber skjalasöfn og persónuverndarlöggjöfin - Þórður Sveinsson, yfirlögfræðingur hjá Persónuvernd
Þýðing gamalla skjala við úrlausn þjóðlendumála - Þorsteinn Magnússon, dómsstjóri
Afhendingarskylda og Alþingi - Njörður Sigurðsson, aðstoðarþjóðskjalavörður