Gagnagrunnar í sögulegum rannsóknum og miðlun. Rannsóknadagur Þjóðskjalasafns 14. nóvember 2024
25. október 2024
Í tæknisamfélagi nútímans er mikilvægi gagnagrunna sífellt að aukast. Gagnagrunnar nýtast í markvissri greiningu, úrvinnslu og birtingu rannsókna. Umfjöllunarefni Rannsóknadags Þjóðskjalasafns Íslands 2024 er gagnagrunnar og tækifærin sem þeir gefa til rannsókna og miðlunar.
Ráðstefnan verður haldin í Þjóðskjalasafni Íslands að Laugavegi 162, fimmtudaginn 14. nóvember næstkomandi. Dagskráin er öllum opin, hefst kl. 13:00 og er áætlað að henni ljúki um kl. 16:00.
Fyrirlesarar munu ræða gagnsemi og kosti gagnagrunna sögulegs efnis, framsetningu þeirra, miðlun og birtingu fyrir almenning. Hverjar helstu áskoranirnar eru í þróun gagnagrunna og hver framtíðarsýnin gæti verið í hinum fullkomna heimi.
Í Þjóðskjalasafni hefur um árabil verið unnið að þróun og gerð gagnagrunna með það að markmiði að miðla tilteknu efni til almennings og fræðafólks og um leið stuðla að nýjum rannsóknum. Mörg þessara verkefna hafa verið unnin í nánu samstarfi við aðrar stofnanir. Aðgengi að þessum gögnum hefur ekki aðeins stóraukist með efnisskráningu í gagnagrunna heldur hefur stafræn endurgerð gert fólki kleift að vinna ítarlega með frumgögnin, óháð staðsetningu.