Einstakt einkaskjalasafn hæstaréttarlögmanns
5. maí 2025
Einkaskjalasöfn eru mikilvægur hluti safnkosts Þjóðskjalasafns Íslands og gefa oft aðra og dýrmæta sýn á lífið í landinu. Nýverið var lokið vinnu við frágang og skráningu á skjalasafni Gústafs Þórs Tryggvasonar hæstaréttarlögmanns sem lést í ágúst árið 2024. Afkomendur hans afhentu Þjóðskjalasafni skjöl hans til varðveislu.

Gústaf Þór fæddist árið 1934 og starfaði sem lögmaður í rúmlega hálfa öld með aðsetur við Tjarnargötu í hjarta Reykjavíkur. Þar byggði hann upp farsælan feril og orðspor sem traustur og samviskusamur lögmaður.
Skjalasafn hans er afar heildstætt og ber vott um skipulögð og vönduð vinnubrögð. Í safninu má finna margvísleg persónuleg gögn, svo sem bréfaskipti, vottorð og skírteini, en meginefni þess varðar lögmannsstörf hans – skjöl sem gefa dýrmæta innsýn í réttarsögu samtímans og lögfræðileg vinnubrögð á seinni hluta tuttugustu aldar og byrjun þeirrar tuttugustu og fyrstu.
Safnið er umfangsmikið, tæplega 60 hillumetrar að stærð, og við flutning þess í skjalageymslur Þjóðskjalasafns Íslands fyllti það sex bretti. Vegna viðkvæmra persónuupplýsinga er aðgangur að stórum hluta skjalanna takmarkaður í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Starfsfólk Þjóðskjalasafns fékk notið aðstöðunnar á skrifstofu Gústafs Þórs við Tjarnargötu þar sem gengið var frá gögnunum beint úr upprunalegum skjalaskápum og möppum og þau færð í sýrufríar og öruggar umbúðir til langtímavarðveislu. Með því er tryggt að mikilvægar heimildir um ævi og störf Gústafs Þórs Tryggvasonar verði aðgengilegar komandi kynslóðum fræðimanna, lögfræðinga og almennings.

