Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Björgunarafrekið við Látrabjarg - Endurfundir hljóðs og myndar

23. mars 2026

Þjóðskjalasafn Íslands og Kvikmyndasafn Íslands bjóða til hádegisfundar í sal Þjóðskjalasafns þriðjudaginn 31. mars kl. 12-13. Tilefnið er sameining hljóðs og myndar kvikmyndarinnar „Björgunarafrekið við Látrabjarg“ frá 1949 en hljóðrás kvikmyndarinnar hefur verið varðveitt í Þjóðskjalasafni en kvikmyndin sjálf í Kvikmyndasafninu. Sýnd verða brot úr kvikmyndinni og Gunnar Tómas Kristófersson flytur erindi um kvikmyndina og varðveislu hennar. Viðburðurinn er opinn og eru öll velkominn.

Athugið nýja dagsetningu, þriðjudaginn 31. mars, kl. 12-13.

Við nýlega yfirferð á hljóð- og myndefni vörslu í Þjóðskjalasafns var stálþráður með hljóðskrá færður á stafrænt form. Hljóðskráin var merkt „Björgunarafrekið við Látrabjarg“ og reyndist það vera hljóðrásin með upprunalegu kvikmyndinni „Björgunarafrekið við Látrabjarg“ frá 1949, en hljóðskráin barst á Þjóðskjalasafn með skjölum og gögnum Slysavarnafélags Íslands. Frumrit kvikmyndarinnar er hins vegar varðveitt í Kvikmyndasafni. Söfnin tvö hafa nú gert samkomulag um að sameina mynd og hljóð með afhendingu hljóðrásarinnar til Kvikmyndasafns Íslands til varðveislu.

Dagskrá
  • 12:00-12:10 Undirritun samkomulags um varðveislu hljóðskrár kvikmyndarinnar

Ólafur Arnar Sveinsson, sviðsstjóri miðlunar og rannsókna á Þjóðskjalasafni

  • 12:10-12:45 „Endurfundir hljóðs og myndar“

Gunnar Tómas Kristófersson, sérfræðingur varðveislu og rannsókna í Kvikmyndasafni Íslands

  • 12:45-12:50 Kveðja frá Kvikmyndasafni Íslands

Þóra Sigríður Ingólfsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands

Viðburðinn er samvinnuverkefni Þjóðskjalasafns Íslands og Kvikmyndasafns Íslands og er haldinn í fundarsal Þjóðskjalasafns Íslands við Laugaveg 162. Öll eru velkomin.

Björgunarafrekið við Látrabjarg

Þann 12. desember 1947 strandaði togarinn Dhoon undir Látrabjargi í miklu óveðri og hófust þá miklar björgunaraðgerðir sem stóðu yfir í þrjá daga. Þrír skipverjar fórust áður en björgunarmönnum tókst að síga niður bjargið og koma hinum 12 skipverjunum til bjargar. Ári síðar ákvað Slysavarnarfélagið að fela Óskari Gíslasyni kvikmyndagerðarmanni að gera heimildarmynd um björgunina. Svo ótrúlega vildi til að á meðan á tökum stóð strandaði togarinn Sargon og náði Óskar myndum af þeirri björgun og notaði í kvikmyndinni. Myndin var frumsýnd árið 1949.

Í lögregluþingbók Barðastrandarsýslu lýsir sýslumaður atburðarásinni þegar Dhoon strandaði nokkuð nákvæmlega en bókin er varðveitt í Þjóðskjalasafni. Í Heimild mánaðarins á vefsíðu Þjóðskjalasafns má lesa um frásögnina í pistli eftir Ólaf Valdimar Ómarsson skjalavörð hér: „Margir óttast að mennirnir farist í nótt“

Hér má sjá skjáskot úr kvikmyndinni Björgunarafrekið við Látrabjarg.

Skjáskot úr Björgunarafrekinu við Látrabjarg - 2
Skjáskot úr Björgunarafrekinu við Látrabjarg - 1