Fara beint í efnið
Sýslumenn Forsíða
Sýslumenn Forsíða

Sýslumenn

Umsókn um BE réttindi orðin stafræn

22. maí 2026

Sýslumenn hafa tekið í notkun nýja stafræna umsókn fyrir BE réttindi á Ísland.is. Með breytingunni verður umsóknarferlið einfaldara og þægilegra fyrir umsækjendur.

Áður en nám hefst þarf að sækja um námsheimild með stafrænni umsókn.

Umsækjandi velur sér ökukennara og, ef við á, skilar læknisvottorði með umsókninni. Læknisvottorðs þarf að afla áður en sótt er um. Ef öðrum gögnum en gildu læknisvottorði er hlaðið inn með umsókninni verður henni hafnað. Læknisvottorðið er svo yfirfarið og námsheimild send í ökunámsbók.

Þegar verklegu prófi er lokið er ökuskírteini pantað og stafrænt ökuskírteini uppfærist strax Ísland.is appinu. Plastökuskírteini er síðan sent í pósti eða afhent hjá sýslumanni samkvæmt vali umsækjanda í umsóknarferlinu.

BE réttindi heimila akstur bifreiðar í flokki B með eftirvagni eða tengitæki með allt að 3.500 kg heildarþunga.

Markmið breytinganna er að einfalda þjónustuna og gera umsóknarferlið skýrara og hraðvirkara fyrir umsækjendur.

Sýslumenn

Höfuðborgarsvæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Austurland

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vesturland

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Suðurland

Mán. til fös. 9 - 15

Vestfirðir

Mán. til fim. 9:00 - 15
Fös. 9:00 - 13:30

Vestmannaeyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 -14

Norðurland vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15

Norðurland eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14