Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Fulltrúanámskeið verða næst haldin 10. júní

29. maí 2026

Fulltrúanámskeið verða næst haldin miðvikudaginn 10. júní hjá Samgöngustofu, Ármúla 2. Síðasti skráningardagur er mánudagurinn 8. júní.

Þátttakendur skrá sig á skráningarsíðu námskeiðisins, í síðasta lagi mánudaginn 8. júní.

Dagskrá námskeiðsins:

9:15

Fulltrúanámskeið A

Réttindi til að annast forskráningu og nýskráningu gerðarviðurkenndra ökutækja.

10:15

Nýskráning ökutækja

Skyldunámskeið fyrir fulltrúaréttindi A og B.

10:15

Fulltrúanámskeið B

Réttindi til að framkvæma fulltrúaskoðun og annast nýskráningu gerðarviðurkenndra ökutækja.

11:20

Fulltrúanámskeið C

Réttindi til að framkvæma fulltrúaskoðun og skráningu á gerðarviðurkenndum tengibúnaði.

12:00

Áætluð lok