Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Dróna- og flugbann í grennd við herskipið HMS Prince of Wales

4. júlí 2026

Vegna komu breska herskipsins HMS Prince of Wales hefur Ríkislögreglustjóri tilkynnt um bann við flugi dróna í grennd við skipið.

Breska herskipið HMS Prince of Wales verður í íslenskri landhelgi frá 5. júlí til og með 13. júlí 2026. Vegna öryggisráðstafana er óheimilt að fljúga dróna innan 1000 metra við herskipið á leið sinni í landhelgi Íslands og þar sem það verður við bryggju á Grundartanga.

Engar hæðartakmarkanir eru á banninu.

Drónabannið er sett á grundvelli d-liðar 3. gr. reglugerðar 1360/2024.

Einnig er óheimilt að fljúga þyrlum og flugvélum í minna en 300m hæð fyrir ofan skipið á leið sinni í landhelgi Íslands og þar sem það liggur við bryggju á Grundartanga.

Flugbannið er sett á grundvelli 1. mgr. 230. gr. laga um loftferðir.

Með vísun í NOTAM A0516/26

Allt flug á vegum löggæsluaðila og flug frá skipinu er undanskilið banninu.