Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa næsta sunnudag

13. nóvember 2026

Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn á sunnudaginn, 15. nóvember. Haldnar verða að minnsta kosti 17 minningarathafnir víða um land. Fólk er hvatt til að sýna hluttekningu og leiða hugann að ábyrgð sinni í umferðinni. Að þessu sinni verður sjónum beint að ungum vegfarendum í umferðinni og hraðakstri ungmenna.

Í Reykjavík verður minningarathöfn haldin venju samkvæmt við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi kl. 14:00. Öll eru velkomin og er fólk hvatt til að mæta tímanlega og vera vel klætt því spáð er köldu veðri. Að öðru leiti er spáð björtu og fallegu veðri. Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra flytja stutt ávörp og síðan mun Halldór Már Halldórsson segja reynslusögu sína en sökum hraðakstur varð hann ungur að árum varð hann valdur að banaslysi þar sem besti vinur hans lést. Hraðakstur er ein helsta orsök alvarlegra slysa og banaslysa, ekki síst meðal ungs fólks. 

Slysavarnafélagið Landsbjörg, í samvinnu við viðbragðsaðila á hverjum stað, standa að minningarathöfnum víða um land. Á heimasíðunni minningardagur.is má sjá nánari upplýsingar um þá viðburði, dagskrá þeirra og staðsetningu. Auk Landsbjargar og björgunarsveita boðar fjöldi annarra viðbragðsaðila til athafna víða um land. 

Einkennislag minningardagsins er sem fyrr lag KK, I Think of Angels, í flutningi hans og Ellenar sem samið var til minningar um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið verður flutt samtímis á öllum útvarpsstöðum kl. 14 á minningardaginn. Nemendur í MH-kórnum munu síðan flytja lagið við athöfnina í Fossvogi. 

Tilgangurinn með deginum er að minnast þeirra sem látist hafa í umferðarslysum og leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni. Þá er rík hefð fyrir því á minningardeginum að færa starfsstéttum sem sinna björgun og aðhlynningu þakkir fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf þeirra. 

Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessu efni. Frá því að fyrsta banaslysið var skráð á Íslandi 25. ágúst 1915, hafa samtals 1645 einstaklingar látist í umferðinni (m.v. 13. nóvember 2026). Enn fleiri hafa slasast alvarlega, tekist á við áföll, sorgir og eftirsjá af þessum völdum. 

Að baki minningardeginum standa innviðaráðuneytið, Samgöngustofa, Landsbjörg, Neyðarlínan, Lögreglan, Vegagerðin og ÖBÍ réttindasamtök. Þá taka fulltrúar ólíkra viðbragðsaðila þátt í minningarstundinni. Þetta verður í sextánda sinn sem minningardagurinn er haldinn á Íslandi.

Nánari upplýsingar má finna á vefnum minningardagur.is

Fréttatilkynningu um daginn má nálgast hér