Fara beint í efnið

Verðlaun fyrir framúrskarandi kennslu á SAk

25. september 2023

Niðurstöður könnunar meðal nema liggur til grundvallar verðlaununum

Kennsluverðlaun SAk

Á Vísindadegi SAk sem fram fór í síðustu viku voru að vanda veitt verðlaun fyrir framúrskarandi kennslu á SAk.  

Framúrskarandi kennari í hjúkrunargreinum: 

  • Ragna Sigurlín Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og klínískur kennari á lyflækningadeild 

Val læknanema: 

  • Helgi Þór Leifsson, skurðlæknir og framkvæmdastjóri klínískrar þjónustu 

Val sérnámsgrunnlækna og sérnámslækna: 

  • Friðbjörn Sigurðsson, sérfræðingur í krabbameinslækningum 

 

„Á hverju ári leggjum við könnun fyrir nema og námslækna um veruna á SAk. Þar er spurt um móttökur, kennslu og námstækifæri á sjúkrahúsinu. Við nýtum niðurstöðurnar til að tryggja að verkleg kennsla og aðstæður til náms á SAk stuðli að árangursríku námi og geri SAk að eftirsóttum námsstað,“ segir Laufey Hrólfsdóttir, forstöðumaður deildar mennta og vísinda. 

Heilt yfir þótti svæfingadeild skara fram úr í kennslu að mati hjúkrunarnema en læknanemar völdu skurðlækningadeildina

Eitt af megin hlutverkum mennta- og vísindadeildar SAk er að halda utan um skipulag og móttöku nema í starfsnámi. Á árinu voru 744 skráðar nemavikur vegna grunnnáms í heilbrigðisgreinum, sem samsvarar að meðaltali um 14-15 nemum á viku á ársgrundvelli. Auk þess eru 25 stöðugildi námslækna, þ.e. sérnámsgrunnslækna og sérnámslækna.  

 

Nánar má lesa um deild mennta og vísinda hér.