Um Ríkiskaup
Er að:
veita framúrskarandi þjónustu á sviði opinberra innkaupa.
stuðla að virkri samkeppni og jafnræði milli aðila á markaði.
auka nýsköpun og skilvirkni í innkaupum.
miðla þekkingu og reynslu sem stuðlar að hagkvæmni í ríkisrekstri.
Svið Ríkiskaupa hafa ólíkar áherslur og hlutverk í innkaupaferlinu. Þau myndar sérfræðingahópur sem hefur sama grunnhlutverkið; að veita framúrskarandi ráðgjöf og fræðslu varðandi opinber innkaup.
Sérfræðingar aðstoða fyrirtæki og stofnanir við val á hagkvæmum innkaupaleiðum með það að markmiði að ná farsælum árangri í sjálfu útboðsferlinu. Þar gildir einu hvort um er að ræða ráðgjöf eða verkefnastjórn útboðs í heild sinni.
Hlutverk sviða
Framkvæmdasvið sér um aðhliða útboðsráðgjöf, auk verkefnastýringar og framkvæmdar útboða
Þróunarsvið sér um:
Stefnumótandi innkaup sér um samningastjórnun rammasamninga og DPS-rafræna innkaupaferils og vöruflokkastjórnun.
Nýsköpun og viðskiptaþróun sér um að stuðla að aukinni nýsköpun og þróun í opinberum innkaupum.
Lögfræðisvið sér um lagaleg álitaefni, ráðgjöf og kærumál.
Ríkiskaup heyra undir fjármála- og efnahagsráðuneytið. Rekstrarformið fellur í þann flokk sem nefnist A-hluta stofnun. Með því er átt við að ríkið er að fullu ábyrgt gagnvart starfseminni.
Ríkiskaup þurfa þó að afla sér eigin tekna og er því ekki úthlutað fé af af fjárlögum heldur er kostuð af sjálfsaflafé.
Starf Ríkiskaupa er byggt á áralangri þekkingu á öflun, innflutningi, afgreiðslu og samningagerð.
Fyrstu lög um stofnun Ríkiskaupa þar sem kveðið er á um miðlæga innkaupastofnun fyrir ríkið voru sett þann 5. júní 1947 en starfsemin hófst þann 15. janúar 1949.