Vinnustaðanám
Vinnustaðanám er hluti af starfsnámi á framhaldsskólastigi þar sem nemendur öðlast verklega þjálfun á vinnustað undir leiðsögn. Námið tengir saman nám í skóla og reynslu á vinnustað og stuðlar að því að nemendur nái þeirri hæfni sem krafist er í viðkomandi starfsgrein.
Á þessari síðu finnur þú upplýsingar um rafræna ferilbók, starfalýsingar og hæfnikröfur starfa og hlutverk starfsgreinaráða.