Starfalýsingar og hæfnikröfur starfa
Efnisyfirlit
Hæfnikröfum er ætlað að vera framhaldsskólunum leiðarljós við skipulag starfsnámsbrauta. Einnig geta þær nýst nemendum sem leita að upplýsingum um störf í tengslum við starfsmenntun.
Nú stendur yfir endurskoðun á öllum starfalýsingum og hæfnikröfum í samvinnu við starfsgreinaráð. Nýútgefnar starfalýsingar og hæfnikröfur koma til með að birtast hér en einnig má finna eldri starfalýsingar og hæfnikröfur.
Bygginga- og mannvirkjagreinar
Löggiltar iðngreinar til sveinsprófs í húsasmíði, húsgagnasmíði, málaraiðn, múraraiðn, pípulögnum, veggfóðrun og blikksmiði. Einnig plast & trefjasmíði.
Starfalýsing
Blikksmiður smíðar og hannar íhluti og lausnir úr þunnmálmum eftir eigin teikningum eða annarra. Hann setur upp loftræstikerfi, smíðar kerfishluta, velur íhluti, setur upp stýringar og beygir áfellur í ýmiskonar verkefni. Blikksmiður þjónustar kerfi og viðheldur þeim með rekstraröryggi, hagkvæmni, heilbrigði og vellíðan notenda að leiðarljósi. Blikksmiður hugar að þéttingu og vatnsvörnum mannvirkja, þ.e. setur upp og viðheldur þak-, vegg- og stálgrindaklæðningar með tilliti til veðurþols, rakavarna, tæringarþols, varmaflutninga, brunavarna og einangrun lagna. Blikksmiður býr yfir þekkingu á efnis- og vélfræði, m.a. afl-, orku-, varma-, kraft- og straumfræði og getur nýtt þá kunnáttu til að skilja virkni búnaðar og mannvirkja sem þeir smíða og þjónusta ásamt því að túlka verk- og framleiðsluleiðbeiningar.
Blikksmiður velur vinnuaðferðir, efni og verkfæri við hæfi og hefur innsýn í aðra verkþætti sem tengjast starfi hans. Blikksmiður vinnur verkefni á verkstæði og byggingastað eftir teikningum, verklýsingum, stöðlum og í samræmi við lög og reglugerðir. Blikksmiður vinnur samkvæmt kröfum um öryggismál, umgengni og efnameðferð og vinnur eftir öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir vinnustaði. Í starfinu felst að þekkja grundvallatriði sjálfbærni í málmiðnaði, umhverfisverndar og hafa þekkingu á vistvænum byggingum, endurvinnslu og förgun. Blikksmiður sýnir sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði og er meðvitaður um vandað handverk. Blikksmiður annast samskipti við verkkaupa og leiðbeinir kaupendum um val á efni og vinnuaðferðum ásamt því að sýna kostnaðarvitund, gera einfaldar kostnaðaráætlanir og búa yfir skilningi á rekstri og uppbyggingu fyrirtækja. Blikksmiður býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt og getur leiðbeint öðrum.
Hæfnikröfur
Leysir verkefni sín með aðstoð tækni – og framleiðsluleiðbeininga auk viðhaldsbóka á íslensku og ensku.
Þekkir framleiðsluferli og efnisfræðilega uppbyggingu, merkingar, staðla, eiginleika, smíða- og suðuhæfni algengra smíðamálma.
Þekkir eiginleika efna, álagskrafta sem þeim tengjast og rökstyður ákvörðun um efnisval og lausnir hverju sinni.
Vinnur sjálfstætt, velur starfsaðferðir við hæfi og forgangsraðar verkefnum.
Metur kostnað við verkefni, s.s. vinnu- og vélatíma ásamt efniskostnaði og gerir tilboð í afmörkuð verkefni.
Setur upp og hefur eftirlit með málmklæðningum mannvirkja.
Þekkir íslenskar aðstæður sem taka þarf tillit til við hönnun, frágang, einangrun, rakavarnir, lagnakerfi, frárennsli og tæringavarnir.
Þekkir tilgang, uppbyggingu og virkni loftræstikerfa, ólíkar gerðir stokka- og stjórnkerfa og hönnunarforsendur.
Skilgreinir virkni loftræstikerfis, flæði í loftstokkum, mótstöðu og þéttleika stokkakerfisins, samspil hraðaþrýstings og stöðuþrýstings í loftstokkum.
Skilgreinir umhverfisþætti sem hafa áhrif á loftræsingu, varma, hita, raka, koltvísýring, súrefni og hreinleika lofts. Einnig áhrif formbreytinga og stærðar loftstokka á loftmótstöðu og afkastagetu kerfa.
Setur upp og hefur eftirlit með loftræstikerfum, stokkum, stjórnkerfum loftræstikerfa í byggingum og skipum, bátum í samræmi við gildandi reglugerðir og staðla.
Les og vinnur eftir grunn- og fagteikningum, verklýsingum, teikningum, stöðlum og öðrum gögnum er varða framkvæmdir og notar teikniforrit til að teikna smíðateikningar fyrir einstök verkefni.
Smíðar íhluti loftræstikerfa og burðarvirki eftir eigin teikningum og annarra, metur efnisþörf og efnisnýtingu, setur upp og gengur frá samkvæmt kröfum.
Beitir verkfærum og vélum sem notuð eru í málmiðnaði, þekkir meðhöndlun, umhirðu þeirra og umgengni með tilliti til öryggis.
Notar algengustu tölvustýrðar (CNC-stýrðar) málmsmíðavélar og teikniforrit á hverjum tíma ásamt því að hafa vald á ferli frá teikniforriti til vélar.
Nýtir og vinnur með tölulegar upplýsingar. Beitir viðeigandi reikningsaðferðum og/eða mælingum og flóknari útreikninga með leiðsögn frá öðrum eða skriflegum fyrirmælum.
Notar mælitækni við rýmis-, fjarlægðar- og hæðarmælingar við staðsetningu og uppsetningu véla og mannvirkja er tengjast faginu.
Þekkir vinnsluhætti ljósbogasuðu, hættur og öryggisráðstafanir, geymslu og meðferð aðfanga, suðuferilslýsingar, suðubreytur, undirbúning suðu, suðu á ryðfríu stáli og áli.
Þekkir rekstur, skipulag og uppbyggingu fyrirtækja og stofnana í greininni og gerir grein fyrir hlutverki þeirra.
Vinnur sjálfstætt, metur eigin getu og forgangsraðar viðfangsefnum, skilgreinir hvaða aðferðir eiga við hverju sinni og rökstyður þær aðferðir sem hann notar.
Tryggir öryggi og gerir viðeigandi varnarráðstafanir í málmiðnaði og þekkir eftirlitsstofnanir og hlutverk þeirra vegna eftirlits og öryggismála.
Þekkir lög og reglur um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Þekkir áhættumat og áhættugreiningu og fylgir öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir vinnustaði, m.a. með notkun á viðeigandi loftræsingu og öryggisbúnaði og eflir öryggisvitund í vinnuumhverfi sínu.
Þekkir grundvallaratriði sjálfbærni, vistvænar byggingar og umhverfisvernd og fylgir vistvænum viðmiðum við efnisval og framkvæmdir og reglum um meðferð og notkun hættulegra efna.
Er fær um að lesa og skilja gæðahandbók fyrirtækja og fara eftir henni og er fær um að leiðbeina öðrum, s.s. iðnnemum og viðskiptavinum um fagleg verkefni.
Sýnir fagmennsku og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Tileinkar sér snyrtimennsku og gengur vel um vinnustað sinn.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, er fær um að tileinka sér nýjungar og hagnýta þá þekkingu í starfi.
Tjáir sig af öryggi, munnlega og skriflega, s.s. með verkdagbókum, vinnuseðlum, skýrslum og gerð rekstrardagbóka.
Starfalýsing
Húsasmiður byggir og kemur að viðhaldi og endurbyggingu húsa og húshluta, samgöngu- og orkumannvirkja. Húsasmiður reisir og slær upp steypumótum, reisir allar gerðir húsa og klæðir úti og inni, smíðar og setur upp innréttingar, hurðir, glugga, klæðir veggi loft og gólf inni og annast uppsetningu og frágang á hlutum innanhúss. Húsasmiður velur vinnuaðferðir, efni og verkfæri við hæfi og hefur innsýn í aðra verkþætti sem tengjast starfi hans. Húsasmiður vinnur verkefni á verkstæði og byggingastað eftir teikningum, verklýsingum, stöðlum og leiðbeiningum í samræmi við lög og reglugerðir. Húsasmiður vinnur samkvæmt kröfum um öryggismál, umgengni og efnameðferð og vinnur eftir öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir vinnustaði. Hann þekkir grundvallatriði sjálfbærni í byggingariðnaði, umhverfisverndar, vistvænna byggingaraðferða, endurvinnslu og förgunar. Húsasmiður sýnir frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð og er meðvitaður um vandað handverk. Hann annast samskipti við verkkaupa og leiðbeinir kaupendum um val á efni og vinnuaðferðum. Húsasmiður hefur nákvæma kostnaðarvitund, gerir einfaldar kostnaðaráætlanir og hefur skilning á rekstri og uppbyggingu fyrirtækja. Húsasmiður er lögverndað starfsheiti og húsasmíði er löggilt iðngrein. Löggildingin nær yfir ýmis samheiti húsasmiðs s.s. smiður, trésmiður og snikkari.
Hæfnikröfur
Þekkir til grundunar, jarðvegsvinnu og þjöppunar undir hús og önnur mannvirki. Þekkir blöndun, niðurlögn og meðferð steinsteypu og áhættuþætti sem geta valdið steypuskemmdum.
Þekkir grunnatriði í burðarþolsfræði og hlutverk járnbendingar steinsteypu.
Þekkir lög um mannvirki, lög um byggingarvörur (viðauki 1, grunnkröfur um mannvirki) og byggingarreglugerð. Les og vinnur eftir bygginganefndarteikningum, burðarvirkja- og deiliteikningum af einstökum verkhlutum og frágangi einstakra verkþátta.
Les og vinnur eftir verklýsingum, stöðlum og öðrum gögnum er varða framkvæmdir.
Færir út mælipunkta, staðsetur hús, afsetur hæðir, teiknar upp deililausnir og frágang á gluggum, hurðum og þökum o.fl. fríhendis og með teikniforritum.
Annast uppsetningu og niðurrif hvers konar steypumóta, smíðar og setur upp allar gerðir verkpalla.
Beitir verkfærum og vélum sem notuð eru í byggingariðnaði. Notar tölvustýrðar trésmíðavélar og helstu mælitæki í byggingariðn.
Setur upp útveggjagrindur og gengur frá öllum gerðum klæðninga, smíðar þök og sér um frágang þeirra. Annast ísetningu og frágang byggingarhluta. Annast uppsetningu og einangrun léttra innveggja og setur upp gólf- og loftagrindur og klæðningar. Smíðar og setur upp húseiningar.
Einangrar húshluta og gengur frá þéttingum ásamt raka-, vatns og vindvarnarlögum og loftun. Þekkir grundvallarlögmál og vinnur eftir reglum um hljóðvist, eldvarnir, varmaeinangrun og raka og vindvarnir mannvirkja.
Smíðar og annast ísetningu glugga, úti- og innihurða og ísetningu glers. Smíðar og setur upp innréttingar og stiga. Smíðar, spónleggur, undirvinnur og meðhöndlar yfirborð tréverks.
Velur aðferðir, verkferla, verkfæri, efni og byggingarvörur út frá hönnunargögnum og í samræmi við áformuð not, reglugerðir og staðla í mannvirkjagerð. Þekkir eiginleika byggingarvara, efna og álagskrafta sem þeir tengjast og rétta umgengni við efni og byggingarvörur.
Þekkir afleiðingar raka, myglu og helstu tegunda fúa. Þekkir lög og reglur um verndun og friðun húsa, þekkir byggingarsögu og gamla byggingarhefð og handverk.
Þekkir lög og reglur um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Þekkir áhættumat og áhættugreiningu og fylgir öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir vinnustaði, m.a. með notkun viðeigandi öryggisbúnaðar.
Hefur tileinkað sér snyrtimennsku og gengur vel um vinnustað sinn og skilur hvernig það eykur öryggi starfsmanna.
Þekkir grundvallaratriði sjálfbærni og hringrásarhagkerfisins, vistvænar byggingar, lífsferilsgreiningar og umhverfisvernd. Fylgir vistvænum viðmiðum við efnisval og framkvæmdir, stuðlar að lágmörkun sóunar og ábyrgrar orkunýtingar á verkstæði/verkstað. Þekkir mikilvægi endurnýjanlegra orkugjafa og orkunýtni í byggingariðnaði og fylgir reglum um meðferð og notkun hættulegra efna.
Býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt, er meðvitaður um faglega, samfélagslega og siðferðilega ábyrgð og getur lagt mat á eigin vinnu.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, er fær um að tileinka sér nýjungar og hagnýta þá þekkingu í starfi.
Er fær um að lesa og skilja gæðahandbók fyrirtækja og fara eftir henni. Er fær um að leiðbeina öðrum, s.s. iðnnemum og neytendum um fagleg verkefni.
Þekkir ferlið frá tilboðsgerð til afhendingar og þekkir ólík launakerfi.
Þekkir rekstur, skipulag og uppbyggingu fyrirtækja og stofnana í greininni og gerir sér grein fyrir hlutverki þeirra.
Þekkir mikilvægi yfirlýsingar um nothæfi (e. DoP/Decloration of Performance), getur lesið sig til um eiginleika byggingarvöru.
Starfalýsing
Bólstrari vinnur við framleiðslu á nýjum húsgögnum og viðgerðir á notuðum húsgögnum sem og aðra almenna bólstrun. Bólstrari vinnur út frá teikningum og verklýsingum hönnuða eða eftir eigin hugmyndum og velur bólsturefni og vinnuaðferðir sem henta hverju sinni. Hann sýnir sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði, er meðvitaður um vandað handverk og ber ábyrgð á útkomu vinnu sinnar gagnvart viðskiptavinum. Bólstrari býr yfir hæfni til góðra samskipta við verkkaupa og getur leiðbeint kaupendum um val á efni. Hann sýnir kostnaðarvitund, getur gert einfaldar kostnaðaráætlanir og hefur skilning á rekstri og uppbyggingu fyrirtækja. Bólstrari þekkir grundvallatriði sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir reglum um endurvinnslu og förgun. Bólstrari fer eftir kröfum um öryggismál, umgengni og efnameðferð á vinnustað. Bólstrari starfar aðallega á sérhæfðu bólsturverkstæði en einnig á vettvangi verkefnanna, t.d. við lokafrágang verkefna.
Hæfnikröfur
Þekkir þróun húsgagna og vinnur samkvæmt nýjum og gömlum verkferlum.
Notar handverkfæri og vélbúnað sem tengjast faginu.
Vél- og handsaumar áklæði.
Kann skil á efnum sem notuð eru við bólstrun og hvernig þau eru notuð.
Veitir viðskiptavinum ráðgjöf um val á efnum.
Vinnur eftir teikningum af húsgögnum og býr til snið.
Bólstrar húsgögn frá grunni, bæði undirvinnu og klæðningu.
Er meðvitaður um kostnað og getur gert einfaldar kostnaðaráætlanir.
Hefur skilning á rekstri og uppbyggingu fyrirtækja.
Þekkir lög og reglur um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Þekkir áhættumat og áhættugreiningu og fylgir öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir vinnustaði, m.a. með notkun viðeigandi öryggisbúnaðar.
Hefur tileinkað sér snyrtimennsku og gengur vel um vinnustað sinn.
Þekkir leiðir til sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir vistvænum viðmiðum í starfi og við efnisval.
Býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt, er meðvitaður um faglega og siðferðilega ábyrgð og getur lagt mat á eigin vinnu.
Býr yfir færni til góðra samskipta.
Starfalýsing
Húsgagnasmiður annast nýsmíði, gerir upp og endurnýjar gömul húsgögn og innréttingar. Smíðar leiktjöld, leikmuni og innréttingar í skip og báta. Húsgagnasmiður vinnur út frá hugmyndum og verklýsingum hönnuða eða eftir eigin teikningum. Hann velur efni og vinnuaðferðir sem henta hverju sinni. Húsgagnasmiður vinnur á verkstæði og byggingastað. Fer eftir kröfum um öryggismál, umgengni og efnameðferð og vinnur eftir öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir vinnustaði. Þekkir grundvallatriði sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir reglum um endurvinnslu og förgun. Sýnir sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og er meðvitaður um vandað handverk. Annast samskipti við verkkaupa og leiðbeinir kaupendum um val á efni og vinnuaðferðum. Er meðvitaður um kostnað og getur gert einfaldar kostnaðaráætlanir. Hefur skilning á rekstri og uppbyggingu fyrirtækja.
Hæfnikröfur
Smíðar plötu- og grindarhúsgögn, sethúsgögn, útihurðir, glugga, innréttingar, hurðir og tréstiga.
Spónleggur, slípar, undirvinnur og yfirborðsmeðhöndlar fleti.
Klæðir gólf, veggi og loft innanhúss.
Þekkir lögmál og fer eftir reglum um hljóðvist, varmaeinangrun og eld- og rakavarnir.
Metur þörf og annast viðhald og breytingar á húsgögnum, innréttingum og tréverki innanhúss.
Þekkir lög og reglur um verndun og friðun húsa og gamlar byggingarhefðir og handverk.
Velur aðferðir, verkferla, verkfæri og efni sem henta hverju sinni.
Þekkir eiginleika efna og álagskrafta sem þeim tengjast.
Notar sérhæfðar vélar og tölvustýrðar trésmíðavélar.
Þekkir grunnatriði lita- og formfræði og helstu stíltímabil.
Les teikningar og deiliteikningar af einstökum húsgögnum og innréttingum.
Hannar húsgögn og innréttingar og teiknar upp deililausnir og frágang – fríhendis eða með teikniforritum.
Skipuleggur verkefni til fjöldaframleiðslu.
Þekkir lög og reglur um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Þekkir áhættumat og áhættugreiningu og fylgir öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir vinnustaði, m.a. með notkun viðeigandi öryggisbúnaðar.
Hefur tileinkað sér snyrtimennsku og gengur vel um vinnustað sinn.
Þekkir leiðir til sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir vistvænum viðmiðum í starfi og við efnisval.
Býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt, er meðvitaður um faglega og siðferðilega ábyrgð og getur lagt mat á eigin vinnu.
Starfalýsing
Málari ný- og endursparslar og málar einstaka húshluta, byggingar, samgöngu- og orkumannvirki og skip að utan sem innan. Málari vinnur við nýbyggingar, endurbyggingar, viðhald og viðgerðir inni og úti og metur þörf á viðhaldi. Notar verkfæri, efni og vinnuaðferðir sem henta hverju sinni. Málari vinnur samkvæmt kröfum um öryggismál, umgengni og efnameðferð og vinnur eftir öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir vinnustaði. Hann þekkir grundvallatriði sjálfbærni í byggingariðnaði, umhverfisverndar, vistvænar byggingar og endurvinnslu og förgun. Málari sýnir sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði og er meðvitaður um vandað handverk. Annast samskipti við verkkaupa og leiðbeinir kaupendum um val á efni og vinnuaðferðum. Málari sýnir kostnaðarvitund, gerir einfaldar kostnaðaráætlanir og hefur skilning á rekstri og uppbyggingu fyrirtækja.
Hæfnikröfur
Les bygginganefndar- og deiliteikningar af einstökum húshlutum og frágangi húshluta og verkþátta.
Velur efni, annast alla undirvinnu og ný- og endurmálar yfirborð, inni og úti.
Teiknar upp og útfærir máluð og þrykkt skilti og auglýsingar, bæði í höndunum og teikni- og hönnunarforritum.
Kann meðferð og notkun á eldvarnarmálningu og þekkir helstu votrýmiskerfi.
Metur steypu og steypugalla og ákveður hvort hann eða aðrir iðnaðarmenn annist viðgerðir.
Þekkir afleiðingar raka, myglu og helstu tegunda fúa.
Þekkir lög og reglur um verndun og friðun húsa, gamlar byggingarhefðir, handverk og eldri málningaraðferðir.
Velur aðferðir, verkferla, verkfæri og efni sem henta hverju sinni.
Hefur vald á notkun efna sem breyta áferð.
Þekkir lita- og formfræði og helstu stíltímabil.
Þekkir lög og reglur um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Þekkir áhættumat og áhættugreiningu og fylgir öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir vinnustaði, m.a. með notkun viðeigandi öryggisbúnaðar.
Hefur tileinkað sér snyrtimennsku og gengur vel um vinnustað sinn.
Þekkir leiðir til sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir vistvænum viðmiðum í starfi og við efnisval.
Býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt, er meðvitaður um faglega og siðferðilega ábyrgð og getur lagt mat á eigin vinnu.
Starfalýsing
Múrari vinnur innan- og utanhúss við niðurlögn steinsteypu og múrun bygginga og annast viðhald og endurbyggingu á steinsteypu og múrhúðun húsa og húshluta Hann velur vinnuaðferðir, efni og verkfæri við hæfi og hefur innsýn í burðarvirki. Hann vinnur verkefni á staðnum eftir teikningum og leiðbeiningum í samræmi við lög og reglugerðir. Múrari fer eftir kröfum um öryggismál, umgengni og efnameðferð og vinnur eftir öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir vinnustaði. Hann þekkir grundvallaratriði sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir reglum um endurvinnslu og förgun. Múrari sýnir sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði og er meðvitaður um vandað handverk. Hann getur annast samskipti við verkkaupa og leiðbeint kaupendum um val á efni og vinnuaðferðum. Hann sýnir kostnaðarvitund og getur gert einfaldar kostnaðaráætlanir. Hann hefur skilning á rekstri og uppbyggingu fyrirtækja.
Hæfnikröfur
Les bygginganefndar- og deiliteikningar af einstökum húshlutum og frágangi húshluta og verkþátta.
Færir út mælipunkta og afsetur hæðir.
Rissar upp deililausnir og frágang, s.s á hurðum og gluggum.
Leggur steypustyrktarjárn og bendinet í steinsteypuvirki.
Þekkir til grunnatriða í burðarþolsfræði.
Leggur niður steinsteypu með ýmsum aðferðum. Þekkir vel til notkunar á helstu tækjum til niðurlagnar steinsteypu og hefur góða þekkingu á atriðum sem geta valdið göllum við niðurlögn á steypu.
Einangrar hús og húshluta. Þekkir lögmál og fer eftir reglum um hljóðvist, eldvarnir, varmaeinangrun og raka- og vindvarnir mannvirkja ásamt því að vera meðvitaður um helstu orsakir og afleiðingar rakavandmála í byggingum.
Mótar halla í gólf með steinsteypu, ílögn eða floti.
Leggur í gólf og stiga með hefðbundnum múrefnum.
Leggur flísar, mósaík og náttúrustein, bæði innan- og utanhúss.
Múrar- og þunnhúðar veggi og loft með hefðbundnum múrefnum, eða steiningu.
Hleður úr milliveggjasteinum og milliveggjaeiningum, glersteini, plastkubbum og hleðslusteini. Þekkir til hleðslu á opnum og lokuðum eldstæðumMetur þörf og annast viðhald vegna múr- og steypuskemmda. Með hefbundnum múr og inndælingarefnum
Þekkir til laga og reglna um verndun og friðun húsa, gamlar byggingarhefðir og handverk.
Velur aðferðir, verkferla, verkfæri og efni sem henta hverju sinni.
Þekkir eiginleika ýmissa byggingarefna t.d. : múrefna, kíttistegunda, yfirborðsefna, fúguefna o.s.frv.
Þekkir lög og reglur um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Þekkir áhættumat og áhættugreiningu og fylgir öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir vinnustaði, m.a. með notkun viðeigandi öryggisbúnaðar.
Þekkir leiðir til sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir vistvænum viðmiðum í starfi og við efnisval.
Býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt, er meðvitaður um faglega og siðferðilega ábyrgð og getur lagt raunhæft mat á eigin vinnu.
Er meðvitaður um kostnað og getur gert kostnaðaráætlanir.
Hefur skilning á rekstri og uppbyggingu fyrirtækja.
Þekkir uppbyggingu og umgengnisreglur á vinnustöðum og er meðvitaður um ábyrðar og verkaskiptingu milli starfsgreina.
Starfalýsing
Pípulagningamaður leggur og tengir vatnshita-, neysluvatns- og frárennsliskerfi og setur upp lagnakerfi, teiknar deililausnir og sinnir frágangi lagna. Vinnur við ný- og endurbyggingu húsa, samgöngu- og orkumannvirkja. Annast samskipti við verkkaupa og leiðbeinir kaupendum um val á efni og vinnuaðferðum. Pípulagningarmaður býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt og getur leiðbeint öðrum.
Hæfnikröfur
Les bygginganefndar- og deiliteikningar af einstökum húshlutum og frágangi einstakra húshluta og verkþátta.
Hannar og útfærir hita-, vatns- og frárennslislagnir og teiknar upp deililausnir og frágang.
Færir út mælipunkta.
Leggur vatnshitakerfi innanhúss, s.s. ofnakerfi og gólfhitalagnir, setur upp stýrikerfi, þrýstiprófar og gangsetur hitakerfi og samhæfir virkni þeirra.
Leggur neysluvatnskerfi fyrir heitt og kalt vatn innanhúss og setur upp og tengir hreinlætis- og heimilistæki.
Leggur og þrýstiprófar öll kerfi.
Setur upp og stillir búnað í tækjaklefum.
Setur upp og annast sérhæfð lagnakerfi, s.s. gas, þrýstilofts- og súrefniskerfi, varmadælur og kælirafta.
Leggur snjóbræðslukerfi og setur niður og tengir stofnlagnir og deilirör.
Leggur vatnsúða- og slökkvikerfi með viðeigandi stjórnbúnaði og annast umsjón þeirra.
Leggur og tengir við tæki í loftræstikerfum og setur upp.
Metur og annast viðhald og viðgerðir á lagnakerfum og búnaði þeim tengdum.
Velur aðferðir, verkferla, verkfæri og efni sem henta hverju sinni. Þekkir eiginleika efna og álagskrafta sem þeim tengjast.
Fer eftir lögum og reglum um verndun og friðun húsa og þekkir gamlar byggingarhefðir og handverk.
Fer eftir lögum og reglum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Þekkir grundvallatriði sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir vistvænum viðmiðum við efnisval og framkvæmdir.
Beitir réttum aðferðum við notkun hættulegra efna.
Vinnur sjálfstætt, er meðvitaður um faglega og siðferðilega ábyrgð sína og leggur mat á eigin vinnu.
Þekkir og getur unnið eftir gæðakerfi.
Hefur tileinkað sér snyrtimennsku og gengur vel um vinnustað sinn.
Sýnir fagmennsku og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Þekkir ferli frá tilboðsgerð til afhendingar. Hefur innsýn í rekstur og skipulag fyrirtækja, uppbyggingu gæðahandbókar og þekkir mismunandi launakerfi.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, er fær um að tileinka sér nýjungar og hagnýta þá þekkingu í starfi.
Fylgir lögum um vinnuvernd, tryggir öryggi sitt og annarra á vinnustað, er fær um að beita skyndihjálp í kjölfar slyss eða óhapps.
Starfalýsing
Veggfóðrari undirvinnur og setur undirlag, veggfóðrar, dúkleggur og leggur ýmsar gólf- og veggklæðningar á einstaka húshluta að utan sem innan. Vinnur við nýbyggingar, viðhald og endurbyggingu húsa, samgöngu- og orkumannvirkja. Velur vinnuaðferðir, verkfæri og efni við hæfi og út frá óskum viðskiptavina. Veggfóðrari fer eftir kröfum um öryggismál, umgengni og efnameðferð og vinnur eftir öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir vinnustaði og ver sig gegn hættum á vinnustað. Veggfóðrari þekkir grundvallatriði sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir reglum um endurvinnslu og förgun. Sýnir sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og er meðvitaður um vandað handverk. Annast samskipti við verkkaupa og leiðbeinir kaupendum um val á efni og vinnuaðferðum.
Hæfnikröfur
Les bygginganefndar- og deiliteikningar af einstökum húshlutum og frágangi einstakra húshluta og verkþátta.
Færir út mælipunkta, afsetur hæðir, teiknar upp deililausnir og frágang – fríhendis eða með teikniforritum og notar helstu mælitæki.
Rakamælir gólf, flotar og setur undirlag.
Undirvinnur veggi, loft, stiga og gólf.
Leggur dúka, teppi, veggfóður, striga og fíberstriga, gengur frá aðliggjandi efnum.
Leggur sérhæfða gólfdúka og býr til og fellir skrautborða eða mynd í þá.
Leggur mósaíkmottur, epoxy, sérhæfða striga, plötur, spón og gólfplötur með sléttum eða nótuðum köntum.
Leggur þak- og sundlaugadúka.
Þekkir lögmál og fer eftir reglum um hljóðvist, varmaeinangrun, eld og rakavarnir.
Metur þörf og annast viðhald, endurnýjar og gerir við gólf-, vegg- og loftaefni.
Metur steypu og steypugalla og ákveður hvort hann eða aðrir iðnaðarmenn annast viðgerðir.
Þekkir afleiðingar raka, myglu og helstu tegunda fúa.
Þekkir lög og reglur um verndun og friðun húsa og gamlar byggingarhefðir og handverk.
Velur aðferðir, verkferla, verkfæri og efni sem henta hverju sinni.
Þekkir eiginleika efna og álagskrafta sem þeim tengjast.
Notar tölvustýrðar skurðarvélar og eða þekkir til tölvustýrðra skurðavéla og hvert hægt er að leita eftir slíkri þjónustu.
Þekkir grunnatriði lita- og formfræði og helstu stíltímabil.
Þekkir lög og reglur um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Þekkir áhættumat og áhættugreiningu og fylgir öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir vinnustaði, m.a. með notkun viðeigandi öryggisbúnaðar.
Hefur tileinkað sér snyrtimennsku og gengur vel um vinnustað sinn.
Er meðvitaður um kostnað og getur gert einfaldar kostnaðaráætlanir.
Hefur skilning á rekstri og uppbyggingu fyrirtækja.
Þekkir leiðir til sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir vistvænum viðmiðum í starfi og við efnisval.
Vinnur sjálfstætt, er meðvitaður um faglega og siðferðilega ábyrgð og getur lagt mat á eigin vinnu.
Starfalýsing
Trefjaplastsmiður er sérhæfður í smíði og viðgerðum á hlutum gerðum úr trefjastyrktu plasti. Hann starfar við framleiðslu á vörum úr plasti, bæði úr hitadeigu og hörðu. Hann starfar hjá fyrirtækjum sem smíða og gera við hluti úr trefjastyrktu plasti. Plastsmiður B starfar jafnframt við afgreiðslu og ráðgjöf við val á vörum til plastframleiðslu. Plastsmiður B getur starfað sem sérhæfður starfskraftur í plastsmíði.
Trefjaplastsmiður kann skil á öllum helstu verkþáttum plastsmíði og skipuleggur og vinnur sjálfstætt margvísleg sérhæfð störf tengd plastsmíði. Hann þekkir verkfæri og tæki og meðferð þeirra í daglegum störfum og getur metið, annast, útfært, framkvæmt á réttan hátt alla verkþætti trefjaplastsmíði. Hann getur metið ástand eldri hluta sem smíðaðir eru úr trefjastyrktu plasti.
Trefjaplastsmiður skipuleggur m.a. framleiðsluferli og velur hráefni til smíða og viðgerða á vörum úr trefjastyrktu plasti skv. reglugerðum þar að lútandi. Hann getur m.a. annast verkstjórn og unnið alla verkþætti við hvers kyns smíði og viðgerðir á vörum úr trefjastyrktu plasti og unnið að gæðastjórnun og innra eftirliti í fyrirtækjum.
Hæfnikröfur
Hefur tileinkað sér færni og leikni í vinnubrögðum í plastsmíði og getur unnið á sjálfstæðan og ábyrgan hátt að öllum verkþáttum smíða og viðgerða á trefjastyrktu plasti.
Getur lesið, skilið og teiknað, samkvæmt reglum, stöðlum og venjum, tæknilegar vinnuteikningar og þrívíðar teikningar í fríhendisteikningu og í tölvu.
Getur greint aðstæður og grunnskilyrði við flutning og slipptöku á bátum.
Þekkir uppbyggingu og gerð kostnaðaráætlana, töflureikna og aðferðir við áætlanagerð auk helstu reglna sem fylgt er við gerð tölvutækrar verkáætlunar.
Getur skipulagt verkferla og forgangsraðað verkefnum.
Hefur þekkingu og skilning á uppbyggingu plasts, getur metið gæði hráefna og fullunninnar vöru, og hefur þekkingu og skilning á því hvernig mismunandi verklag og veðrun hefur áhrif á gæði trefjastyrkts plasts.
Getur skipulagt flæðirit og gæðaeftirlit og framkvæmt ástands- og gæðamat.
Þekkir lög og reglur er gilda um smíði úr trefjastyrktu plasti og hefur þekkingu á skráningu og lagaskyldri upplýsingagjöf.
Getur starfað sem verkstjóri og hefur þekkingu og skilning á helstu þáttum verkstjórnar. Getur borið ábyrgð á nemendum í starfsþjálfun ásamt yfirmanni fyrirtækis.
Þekkir grundvallaratriði sjálfbærni og umhverfisverndar, reglur um meðferð og notkun hættulegra efna og fylgir vistvænum viðmiðum við efnisval og framkvæmdir.
Hefur þekkingu og skilning á almennum ákvæðum um réttindi og skyldur starfsmanna og þekkir og fer eftir lögum og reglum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Þekkir gæðakröfur og gæðakerfi og er fær um að meta eigin vinnu og annarra, tjá sig um fagleg málefni og leiðbeina öðrum.
Nemandi skal hafa grunnþekkingu á mótasmíði og geta greint á milli mismunandi aðferða í mótasmíði.
Heilbrigðis-, félags- og uppeldisgreinar
Undir ráðið heyrir m.a. eftirfarandi:
Félagsliðar, félagsmála- og tómstundaliðar, fótaaðgerðafræðingar, heilbrigðisritarar, lyfjatæknar, læknaritarar, leikskólaliðar, skólaliðar, stuðningsfulltrúar í grunnskólum, heilsunuddarar, sjúkraliðar, tanntæknar.
Starfalýsing
Félagsliði vinnur á félags-, heilbrigðis- og menntasviði við að aðstoða einstaklinga sem þurfa á sérhæfðri aðstoð að halda við athafnir daglegs lífs og styðja þá til sjálfshjálpar. Þeir aðstoða og leiðbeina einstaklingum við að sinna félagslegum og líkamlegum þörfum sínum. Félagsliðar búa yfir þekkingu til að greina mismunandi aðstæður fólks og geta metið hvenær þörf er á aðstoð og hvenær er rétt að ýta undir frumkvæði og sjálfstæði þjónustunotenda. Markhópurinn er einstaklingar með fötlun, geðraskanir, aldraðir, langveikir og aðrir sem vegna fötlunar eða sérstakra aðstæðna þurfa stuðning til lengri eða skemmri tíma. Félagsliði þekkir úrræði sem til eru og veit hvar nálgast má frekari upplýsingar. Félagsliði vinnur í samstarfi við annað fagfólk að gerð einstaklings- og þjálfunaráætlana. Hann vinnur náið með öðrum fagstéttum og hefur samskipti við aðstandendur og aðra sem að málum koma.
Hæfnikröfur
Skipuleggur og forgangsraðar störfum sínum tengdum félagslegri þjónustu og umönnun á ábyrgan, gagnrýninn og skýran hátt.
Lagar tjáskipti sín að ólíkum viðmælendum í samræmi við aðstæður. Les líkamstjáningu, svipbrigði og raddblæ til að meta hvort skilaboð skiljist. Getur sett sig í spor annarra og haldið ró sinni í samskiptum við mismunandi einstaklinga.
Á fagleg samskipti við þjónustunotendur, aðstandendur, samstarfsfólk og samstarfsaðila.
Les þarfir og aðstæður þjónustunotenda og bregst við á faglegan hátt.
Skipuleggur störf sín við félagslega virkni, afþreyingu, umönnun. Sýnir sjálfstæði og ábyrgð í störfum.
Ábyrgist framkvæmd og eftirlit með skráningu á þjónustu við notendur.
Ber ábyrgð á, skipuleggur og útfærir faglegt starf ásamt því að sinna fjölbreyttum verkefnum með þjónustunotendum.
Miðlar þekkingu til samstarfsfólks, þjónustunotenda og aðstandenda. Ber ábyrgð á aðlögun nýrra starfsmanna og handleiðslu félagsliðanema.
Þekkir lög og reglugerðir um starf félagsliða og fylgir þeim í daglegu starfi.
Vinnur eftir gæðaviðmiðum og tekur þátt í gerð gæðahandbóka og verkferla til þess að bæta þjónustu við notendur.
Starfar eftir gildandi siðareglum, viðmiðum um trúnað, þagmælsku og persónuvernd.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, tileinkar sér nýjungar á sínu sviði og hagnýtir þá þekkingu.
Hugar að vinnuvernd og öryggi á vinnustað og er fær um að veita skyndihjálp ef slys eða óhapp ber að höndum.
Ber ábyrgð, í samráði við annað fagfólk, á tiltekinni stjórnun á stofnunum og öðrum starfseiningum sem falla undir starfssvið félagsliða.
Starfsvettvangur heilbrigðisritara er á sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum, læknastofum og hjá einkafyrirtækjum. Þeir vinna með öðrum fagstéttum og eiga samskipti við sjúklinga, aðstandendur, samstarfsfólk, sjúkradeildir og aðrar stofnanir. Heilbrigðisritarar vinna við móttöku skjólstæðinga/sjúklinga. Einnig starfa þeir við ýmisskonar skrifstofustörf á heilbrigðissviði. Heilbrigðisritarar sinna sjúklingabókhaldi, ganga frá sjúkraskrám, sinna símsvörun og ýmisskonar umsýslu og skráningu gagna. Heilbrigðisritarar taka niður beiðnir og koma áleiðis til réttra aðila, t.d. frá heimahjúkrun, læknavakt, stoðdeildum og aðstandendum, undirbúa teymisvinnu og gera dagsáætlanir. Þeir kalla inn sjúklinga af biðlista, panta ýmsar rannsóknir og þjónustu fyrir sjúklinga og taka á móti rannsóknarsvörum. Heilbrigðisritarar taka þátt í starfsmannabókhaldi og skráningu vaktaáætlana, senda gögn, ljósrita og eyða gögnum. Heilbrigðisritarar hafa þekkingu á verklagsreglum varðandi pantanir og vörustjórnun. Þeir sinna einnig reikningshaldi, uppgjöri og sjá um að senda út reikninga.
Hæfnikröfur
Býr yfir hæfni til að eiga samskipti við samstarfsfólk og einstaklinga með ólíkar þarfir.
Er meðvitaður um mikilvægi þjónustulundar og hefur tileinkað sér fagtengdar siðareglur.
Gætir þagmælsku um atriði er varða þjónustu við notendur og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli málsins.
Kemur fram af fagmennsku gagnvart samstarfsfólki, þekkingu þeirra og störfum og mætir þörfum notenda þjónustu/skjólstæðinga af virðingu.
Starfar ásamt öðrum heilbrigðisstarfsmönnum að sameiginlegum markmiðum heilbrigðisyfirvalda hverju sinni til að bæta heilsu og velferð notenda þjónustunnar.
Þekkir lög og reglugerðir um starfið og starfsvettvanginn og getur veitt almennar upplýsingar er varða þjónustu og/eða úrræði.
Hefur þekkingu á varðveislu upplýsinga og skjalavörslu.
Nýtir sér upplýsingatækni í starfi og kann að nota ýmis sérhæfð forrit sem notuð eru á heilbrigðisstofnunum.
Þekkir verklagsreglur sem varða pantanir og vörustjórnun ásamt reikningshaldi og uppgjöri.
Tekur þátt í teymisvinnu á starfsstöð.
Starfar sjálfstætt, forgangsraðar verkefnum, sýnir frumkvæði og faglegan metnað.
Starfar eftir gæðaviðmiðum/gæðahandbók, þekkir vinnuvernd og öryggisferla á vinnustað og er fær um að veita skyndihjálp ef slys eða óhöpp ber að höndum.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, er fær um að tileinka sér nýjungar í starfi og hagnýta þá þekkingu í starfi.
Þekkir leiðir til sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir vistvænum viðmiðum í starfi og við efnisval.
Starfalýsing
Helstu verkefni heilsunuddara er að veita nuddmeðferð og stuðla þannig að vellíðan, slökun og heilbrigðu lífi. Heilsunuddarar vinna að betri heilsu og bættum lífsgæðum fólks á öllum æviskeiðum. Þeir hafa heildræna sýn, greina vandamál og beita fjölbreyttum aðferðum við mat á ástandi fólks sem til þeirra leitar. Þeir leiðbeina um forvarnir og rétta líkamsbeitingu og velja viðeigandi meðferð í samráði við einstaklinginn sjálfan og/eða annað fagfólk. Heilsunuddarar veita nuddmeðferð sem styður við aðra meðhöndlun sem skjólstæðingar fá. Starf heilsunuddara er fjölbreytt og fer fram á fjölbreyttum vinnustöðum. Heilsunuddarar starfa bæði sjálfstætt og sem launþegar. Heilsunuddarar skrá upplýsingar um mat á vandamálum skjólstæðinga og meðferð sem þeir veita af fagmennsku, og samkvæmt viðurkenndum verklagsreglum.
Hæfnikröfur
Býr yfir almennri og sértækri þekkingu og hæfni til þess að nudda aðra til heilsubótar og vellíðanar.
Beitir fjölbreyttri nuddtækni sem miðar að því að meðhöndla verki og stoðkerfisvandamál, veita slökun og efla heilbrigði skjólstæðinga.
Metur heilbrigðisástand einstaklinga að vissu marki og skráir heilsufarsupplýsingar samkvæmt viðurkenndum verklagsreglum.
Leiðbeinir skjólstæðingum sínum um heilbrigðan lífsstíl og veitir fyrirbyggjandi ráðgjöf til heilsueflingar.
Vinnur sjálfstætt, sýnir frumkvæði og forgangsraðar verkefnum eftir því sem við á.
Vinnur eftir gæðaviðmiðum, þekkir vinnuvernd og öryggisferla á vinnustað og veitir skyndihjálp ef slys eða óhapp ber að höndum.
Þekkir og fylgir lögum og reglugerðum um starfið og fylgir þeim í daglegu starfi
Gætir trúnaðar og sýnir samskiptahæfni og siðferðisvitund í störfum sínum.
Er fær um að eiga og reka eigin nuddstofu í samræmi við lög og reglugerðir sem um þær gilda.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, tileinkar sér nýjungar og hagnýtir þá þekkingu í starfi.
Þekkir leiðir til sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir vistvænum viðmiðum í starfi og við efnisval.
Starfalýsing
Leikskólaliðar sjá um uppeldi, kennslu og umönnun barna á leikskólaaldri í samstarfi við aðra starfsmenn leikskólans á grundvelli aðalnámsskrár og skólanámsskrár leikskóla. Þeir aðstoða börn við daglegar athafnir og taka þátt í starfi leikskólans. Leikskólaliðar vinna við útfærslu fjölbreyttra verkefna við breytilegar aðstæður. Leikskólaliðar leiða verkefnavinnu með börnum í samræmi við faglega stefnu skólans. Hlutverk þeirra er að örva þroska og auka skilning og sjálfstæði barna. Leikskólaliðar leiðbeina börnum um umhverfi sitt, náttúruna, rými, stærðir, hugtök og íslenska tungu. Leikskólaliðar leiða verkefni sem örva skynjun barna og hjálpa þeim að uppgötva hluti og þjálfa eigin hæfileika, bæði líkamlega og vitsmunalega. Leikskólaliðar þjálfa börn í að gefa og þiggja, að skilja hæfileika og langanir sínar og annarra.
Hæfnikröfur
Útfærir faglegt starf og sinnir fjölbreyttum verkefnum með börnum í samráði við leikskólakennara.
Gegnir mikilvægu hlutverki sem fyrirmynd, les í aðstæður og bregst við með viðeigandi hætti hverju sinni.
Þjálfar börn í að lesa umhverfi sitt og vinna með öðrum, tjá sig og hlusta á aðra og hafa þannig áhrif á velferð og vellíðan barna í daglegu starfi.
Beitir mismunandi aðferðum við að leiðbeina börnum í samræmi við aðalnámskrá miðað við aldur og þroskastig.
Greinir leiðir til sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir vistvænum viðmiðum í starfi og við efnisval í samræmi við stefnu leikskóla á hverjum stað.
Sýnir umhyggju og getur átt fagleg og uppbyggileg samskipti við börn og samstarfsfólk.
Á farsæl samskipti við einstaklinga með ólíkar þarfir og getur tekist á við erfið samskipti í starfi.
Sýnir frumkvæði til að leiða hópastarf barna, bæði inni og úti.
Vinnur sjálfstætt, sýnir frumkvæði og forgangsraðar verkefnum eftir því sem við á.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun og tileinkar sér nýjungar í starfi og hagnýtir þá þekkingu í starfi.
Vinnur eftir gæðaviðmiðum, þekkir vinnuvernd og öryggisferla á vinnustað og veitir skyndihjálp ef slys eða óhapp ber að höndum.
Sýnir fagmennsku og siðferðisvitund, starfar í samræmi við siðareglur vinnustaðarins og gætir trúnaðar í hvívetna.
Fylgir lögum og reglugerðum sem gilda um starfið.
Starfalýsing
Lyfjatæknar starfa á fjölbreyttum vinnustöðum; apótekum, sjúkrahúsum, lyfjaheildsölum, lyfjadreifingarfyrirtækjum, lyfjaframleiðslufyrirtækjum, hjá Lyfjastofnun, Sjúkratryggingum Íslands og víðar. Þeir sjá um móttöku og „taxeringu“ lyfjaávísana, afgreiðslu og leiðbeiningar um notkun lausasölulyfja og fæðubótarefna og blöndun á sýklalyfjum fyrir sjúklinga. Lyfjatæknar sjá um vörupantanir og vörumóttöku og frágang lyfja frá heildsölum. Þeir veita faglega ráðgjöf um notkun hjúkrunar- og sjúkragagna og á vörum til umönnunar ungabarna. Lyfjatæknar sjá um samskipti við Sjúkratryggingar Íslands hvað varðar greiðsluþátttöku í lyfjaávísunum og hjúkrunarvörum. Í sjúkrahúsapótekum felast störf lyfjatækna í pöntunum á lyfjum, móttöku þeirra og frágangi, lyfjaskömmtun fyrir sjúklinga á deildum og afgreiðslu á lyfjum til sjúklinga. Að auki sjá þeir um birgðastýringar og eftirlit lyfjabirgða á deildum, afgreiðslu lyfja til deilda, þjónusta deildir og sjá til þess að lyf séu geymd við réttar aðstæður. Lyfjatæknar sjá um tiltekt lyfja og vökva fyrir lyfja- og næringarblöndun og vinna í samvinnu við lyfjafræðinga að blöndun ýmissa lyfja og yfirlestur útreikninga. Lyfjatæknar taka þátt í rannsóknum, framleiðslu, dreifingu og sölu lyfja og sjúkravara og taka þátt í fræðslu um meðhöndlun og notkun lyfja. Lyfjatæknir er lögverndað starfsheiti.
Hæfnikröfur
Sér um móttöku lyfjaávísana, „taxeringu“ þeirra, tiltekt og afgreiðslu lyfja í samvinnu við lyfjafræðing.
Veitir faglegar ráðleggingar um notkun lausasölulyfja, hjúkrunarvara, hjálpartækja o.fl. sem einstaklingar þurfa aðstoð með.
Sinnir vöru- og lyfjapöntunum, móttöku lyfja og frágangi þeirra samkvæmt verklagi og skipulagi vinnustaðar.
Býr yfir samskiptafærni til að geta átt farsæl samskipti við samstarfsfólk og einstaklinga með ólíkar þarfir og getur tekist á við krefjandi samskipti.
Er meðvitaður um mikilvægi þjónustulundar og hefur tileinkað sér fagtengdar siðareglur.
Gætir þagmælsku um atriði er varða þjónustu við notendur og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli málsins.
Vinnur ásamt öðrum heilbrigðisstarfsmönnum að sameiginlegum markmiðum heilbrigðisyfirvalda hverju sinni til að bæta heilsu og velferð notenda þjónustunnar.
Vinnur sjálfstætt, sýnir frumkvæði og faglegan metnað, tekur þátt í þróunarverkefnum og forgangsraðar verkefnum.
Tekur þátt í teymisvinnu á starfsstöð.
Nýtir sér upplýsingatækni í starfi og kann að nota ýmis sérhæfð forrit sem notuð eru við skráningu, móttöku og afgreiðslu lyfja.
Þekkir lög og reglugerðir sem starf hans heyrir undir og fylgir þeim í daglegu starfi.
Vinnur eftir gæðaviðmiðum, þekkir vinnuvernd og öryggisferla á vinnustað og er fær um að veita skyndihjálp ef slys eða óhöpp ber að höndum.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, tileinkar sér nýjungar og nýtir þá þekkingu í starfi.
Þekkir leiðir til sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir vistvænum viðmiðum í starfi og við efnisval.
Sjúkraliði starfar við heilbrigðisþjónustu á sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum, heilsugæslustöðvum, öðrum heilbrigðisstofnunum og heimilum skjólstæðinga. Sjúkraliði sinnir nærhjúkrun (e. bedside nursing) og metur m.a. andlegt, félagslegt og líkamlegt ástand skjólstæðinga í samráði og samstarfi við heilbrigðisstarfsfólk og annað fagfólk. Sjúkraliði hefur forvarnir, heilsuvernd, heilsueflingu, faglega þekkingu og samstarf að leiðarljósi í störfum sínum. Starf sjúkraliða er fjölbreytt; þeir veita skjólstæðingum sínum viðeigandi aðstoð, allt frá stuðningi og hvatningu til athafna daglegs lífs til sérhæfðrar hjúkrunar á mjög veikum skjólstæðingum. Sjúkraliði er virkur þátttakandi í þverfaglegu teymi um hjúkrun, meðferð og fræðslu. Sjúkraliði er löggiltur heilbrigðisstarfsmaður og ber ábyrgð á störfum sínum sem slíkur.
Hæfnikröfur
Býr yfir almennri og sérhæfðri þekkingu, leikni og hæfni til þess að vinna hjúkrunar- og umönnunarstörf á faglegan hátt.
Hefur sérhæfða þekkingu á tækjabúnaði sem notaður er í hjúkrunarþjónustu ásamt grunnþekkingu á hjálpartækjum og eiginleikum velferðartækninnar.
Er fær um að vinna sjálfstætt, sýna frumkvæði og forgangsraða verkefnum með þarfir skjólstæðinga að leiðarljósi.
Hefur færni til að rökstyðja þá hjúkrunarmeðferð sem hann framfylgir hverju sinni.
Metur ástand skjólstæðinga í samvinnu við aðrar fagstéttir og skráir matið samkvæmt viðurkenndum verklagsreglum á hverjum tíma.
Er meðvitaður um mikilvægi þjónustulundar og hefur tileinkað sér fagtengdar siðareglur og gætir trúnaðar í hvívetna.
Sýnir siðferðisvitund, fagmennsku og gætir þagmælsku í starfi sínu í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Miðlar þekkingu til skjólstæðinga, aðstandenda, samstarfsmanna og nema.
Nýtir upplýsingatækni í störfum sjúkraliða. Hefur m.a. þekkingu á varðveislu upplýsinga, upplýsingaleit og skráningakerfum sem notast er við í störfum sjúkraliða.
Þekkir lög og reglugerðir um starfið og fylgir þeim í daglegu starfi.
Á farsæl samskipti við skjólstæðinga með ólíkar þarfir, tekur þátt í þverfaglegu samstarfi á vinnustað. Tekst á við erfið samskipti í starfi
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, tileinkar sér nýjungar og hagnýtir þá þekkingu í starfi.
Vinnur eftir gæðaviðmiðum, þekkir mikilvægi öryggisvarna, helstu orsakir vinnuslysa og reglur um vinnuvernd, m.a. um rétta líkamsbeitingu.
Þekkir og vinnur eftir öryggisferlum á vinnustað, veitir skyndihjálp ef slys eða óhöpp ber að höndum og aðstæður krefjast.
Starfalýsing
Tanntæknar starfa ýmist á almennum tannlæknastofum eða hjá sérfræðingum. Tanntæknar aðstoða tannlækna bæði við almennar tannlækningar og sérhæfðar aðgerðir, sjá um sótthreinsun, móttöku, bókun á skjólstæðingum ásamt því að koma að bókhaldi og innheimtu. Þeir vinna fjórhent við tannlæknastól. Þeir sjá um smitvarnir, að hreinsa tannlæknastóla, skol, borð, skápa og skúffur. Þeir sjá einnig um sótthreinsun/dauðhreinsun áhalda og búnaðar eftir hverja notkun og fylgja eftir sóttvarnarkröfum sem gerðar eru á tannlæknastofum. Tanntæknar taka á móti skjólstæðingum og búa þá undir meðhöndlun og aðgerðir. Þeir taka til áhöld og efni sem nota þarf s.s. efni í afsteypur, taka alginat mát og steypa í þau. Þeir undirbúa, taka og skanna röntgenmyndir. Tanntæknar pússa og lakka tennur með flúor og veita leiðbeiningar um rétta tannhirðu. Þeir sjá um símsvörun á tannlæknastofum, halda utan um vistun á sjúkraskýrslum og innköllunarlista, ásamt ýmsum skráningum. Þeir hafa umsjón með birgðahaldi, þ.e. lagerstjórn og innkaupastjórn ásamt því að halda utan um viðhald á tækjum. Tanntæknir er lögverndað starfsheiti.
Hæfnikröfur
Sér um smitvarnir á tannlæknastofum
Sér um sótthreinsun/dauðhreinsun á áhöldum og búnaði á tannlæknastofum
Býr yfir góðri samskiptafærni, sýnir siðferðisvitund og gætir þagmælsku í störfum sínum
Undirbýr tannlæknastofur, aðstoðar tannlækna m.a. með „fjögurra handa tannlækningum“ og gengur frá að loknum vinnudegi
Sér um að taka til áhöld og efni sem nota þarf
Undirbýr, tekur röntgenmyndir og skannar
Pússar og lakkar tennur með flúor og tekur þátt í að veita fræðslu/leiðbeiningar um rétta tannhirðu
Sér um móttöku, símsvörun og tímapantanir
Heldur utan um sjúkrasögu skjólstæðinga og býr þá undir meðhöndlun
Hefur góða almenna tölvukunnáttu sem nýtist í starfi ásamt því að þekkja greiðslureglur SÍ
Er fær um að vinna sjálfstætt, sýna frumkvæði og geta forgangsraðað verkefnum eftir því sem við á
Þekkir lög og reglugerðir sem starf hans heyrir undir og fylgir þeim í daglegu starfi
Vinnur eftir gæðaviðmiðum/gæðahandbók, þekkir vinnuvernd og öryggisferla á vinnustað og er fær um að veita skyndihjálp ef slys eða óhöpp ber að höndum
Er fær um að tileinka sér nýjungar í starfi og er meðvitaður um mikilvægi þess
Hönnunar- og handverksgreinar
Fatatæknar, tækniteiknun. Einnig námsbrautir fyrir löggiltar iðngreinar til sveinsprófs í kjólasaumi, klæðskurði, gull- og silfursmíði, húsgagnabólstrun, skósmíði og söðlasmíði.
Starfalýsing
Gull- og silfursmiður hannar, þróar og annast gerð skartgripa, listmuna og nytjahluta úr gulli, silfri og öðrum málmum, allt frá fyrstu hugmynd til fullbúinnar vöru og vinnur með eðalsteina og aðra steina sem eru notaðir í skartgripagerð. Gull-og silfursmiður starfar á verkstæði tengdu verslun, sinnir þjónustu og ráðgjöf við viðskiptavini ásamt sölu og markaðsmálum. Hann nýtir öryggisvarnir og vinnur í samræmi við umhverfisstefnu og gæðastefnu greinarinnar og almennar siðareglur.
Hæfnikröfur
Hefur umfangsmikla þekkingu á málmum sem tengjast gull- og silfursmíði og helstu tegundum eðalsteina auk annarra steina sem notaðir eru í skartgripi, hér og erlendis.
Gerir mót og steypir skartgripi. Hann sýnir hæfni við silfursmíði, leturgröft, steinaísetningu og málmmyndskreytingu (síseleringu).
Húðar málma, gerir við og hreinsar flestar gerðir skartgripa.
Þekkir íslenskar hefðir í skartgripagerð og getur smíðað einfalda muni af því tagi.
Hannar og þróar gripi og framleiðslulínur út frá eigin teikningum og hugmyndum og annarra.
Beitir viðeigandi vinnuaðferð hverju sinni og setur saman verklýsingar fyrir vörur og verk og vinnur að vöruþróun.
Hefur góð tök á notkun áhalda og tækja og getur notað tölvutækni við þróun, hönnun og framleiðslu.
Þekkir orsakir vinnuslysa, nýtir öryggisvarnir, m.a. gegn eiturefnum og fer eftir reglum um vinnuvernd, m.a. um rétta líkamsbeitingu.
Fer eftir umhverfisstefnu. Tekur ábyrga afstöðu til náttúruverndar, hefur tileinkað sér aðferðir til að hámarka nýtingu efna og fylgir vistvænum viðmiðum við meðferð og losun eiturefna og annarra efna. Þekkir leiðir til sjálfbærni og umhverfisverndar
Fer eftir siðareglum, s.s. um virðingu fyrir faginu og nýtingu og endurvinnslu hráefnis.
Fer eftir gæðastefnu og leiðbeinir af fagkunnáttu og ábyrgð.
Sýnir þjónustulund þegar hann sinnir viðskiptavinum af lipurð og háttvísi.
Reiknar út verð á vöru og þjónustu og metur arðsemi.
Sýnir sjálfstæð vinnubrögð, metur störf sín og annarra í gull-og silfursmíði á gagnrýninn hátt og tjáir sig um fagleg málefni.
Þekkir sögu og menningararfleifð gull-og silfursmíði og möguleika til starfa í nútímanum.
Er snyrtilegur og gengur vel um vinnustað sinn.
Þekkir lög og reglur um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Starfalýsing
Starf atvinnuljósmyndara greinist í tvö svið: Ljósmyndatöku í ljósmyndaveri og myndatöku á vettvangi. Þessi tvö svið skarast því sami búnaður er notaður þótt viðfangsefni og nálgun séu ólík. Við myndatöku í ljósmyndaveri hefur ljósmyndarinn fullkomna stjórn á aðstæðum og vinnur af nákvæmni með ljós, uppstillingar og blæbrigði. Við myndatöku á vettvangi leitast ljósmyndari við að hagnýta sér umhverfisþætti, segja fréttir, fanga náttúru og landslag svo nokkuð sé nefnt. Skipta má ljósmyndun í undirgreinar eftir viðfangsefnum svo sem persónuljósmyndun, fréttaljósmyndun, iðnaðar- og auglýsingaljósmyndun og drónaljósmyndun. Undirgreinar ljósmyndunar er hægt að stunda eftir atvikum í ljósmyndaveri eða á vettvangi. Greinarnar skarast og ljósmyndari þarf oft að kunna skil á mörgum undirgreinum. Margir ljósmyndarar hafa einnig lagt fyrir sig ljósmyndaleiðsögn og þjónustu við ferðamenn, kennslu í ljósmyndun og námskeiðshald. Listræn ljósmyndun er samofin faginu og nær hámarki með sýningarhaldi og myndgerð fyrir ljósmyndabækur. Mjög sérhæfð ljósmyndun fer fram á stofnunum, spítölum og rannsóknastofnunum við skrásetningu upplýsinga, vísinda- og heimildavinnu og önnur svið þar sem myndefni er notað til að koma boðskap til skila á faglegan hátt. Myndvinnsla og eftirvinnsla ljósmynda er stór þáttur í starfi ljósmyndara auk vefsíðu- og hreyfimyndagerðar sem eru vaxandi svið í vinnu margra ljósmyndara. Mikilvægt er að ljósmyndarar kunni skil á geymslu mynda, stafrænna gagna og filma og að viðskiptavinir geti gengið að gögnum vísum nú og um ókomna tíð þar eð ljósmyndir eru mikilvægar heimildir um tíðaranda og sögu samfélags.
Hæfnikröfur
Beitir ljósmyndavél og tilheyrandi búnaði við ólíkar og óvæntar aðstæður með hliðsjón af fjölbreyttum forsendum.
Beitir margvíslegum tækjabúnaði s.s. ljósabúnaði og aðferðum við myndatökur í myndveri og á vettvangi.
Þekkir grunnlögmál ljós-, linsu- og litafræði. Þekkir vel tjáningarmöguleika ljósmyndunar og góða myndbyggingu.
Getur beitt helstu myndvinnsluforritum og hefur góða innsýn í alla þætti grafískrar miðlunar. Þekkir einnig mismunandi aðferðir við eftirvinnslu mynda í tölvum.
Er fær um að skipuleggja og framkvæma myndatökur með öðrum fagaðilum.
Hefur tileinkað sér tækni við eftirvinnslu mynda til útprentunar eða birtingar á vef og öðrum skjámiðlum.
Hefur vald á stafrænni ljósmyndatækni og þekkingu á filmutækni.
Vinnur við myndasöfn með hliðsjón af forsendum myndaritstjórnar, siðfræði og höfundarrétti.
Varðveitir og skráir myndefni á öruggan hátt.
Tileinkar sér hugtök eins og rekstur, arðsemi, þjónustu og gæðavitund.
Kann skil á rekstri fyrirtækis sem sjálfstætt starfandi ljósmyndari.
Býr yfir faglegri hæfni, ábyrgð, sjálfstæði og færni í mannlegum samskiptum.
Sýnir fagmennsku og siðferðisvitund og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Þekkir og fer eftir lögum og reglugerðum tengdum faginu, s.s. reglum um höfundarrétt og vinnuvernd, ásamt því að vinna að heilindum og viðhafa trúnað gagnvart viðskiptavinum.
Þekkir leiðir til sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir vistvænum viðmiðum í starfi, við efnisval tengt prentiðnaði og pappír.
Kann rétt viðbrögð við neyðaraðstæðum og er fær um að veita skyndihjálp ef slys eða óhöpp ber að höndum.
Vinnur eftir gæðaviðmiðum, þekkir mikilvægi öryggisvarna, helstu orsakir vinnuslysa og þær reglur sem gilda um vinnuvernd, m.a. um rétta líkamsbeitingu.
Hefur réttindi til að stýra dróna.
Starfalýsing
Sérsaumar herrafatnað og annast viðeigandi vinnu sem því tengist. Veitir viðskiptavinum persónulega ráðgjöf og þjónustu og ber ábyrgð á útkomu vinnu sinnar gagnvart viðskiptavinum. Annast innkaup á efnum og öðrum vörum sem þarf á saumastofu. Hefur umsjón með verkefnum á saumastofu, starfar í fataverksmiðjum, á saumastofum eða eigin verkstæði. Vinnur í samræmi við almennar siðareglur og gæðastaðla viðkomandi fyrirtækis. Annast samskipti við verkkaupa og leiðbeinir kaupendum um val á efni og vinnuaðferðum. Er meðvitaður um kostnað og getur gert einfaldar kostnaðaráætlanir.
Hæfnikröfur
Tekur mál, útfærir snið og breytir þeim eftir atvikum.
Sníður og sérsaumar herrafatnað samkvæmt eigin útfærslu eða óskum viðskiptavinar.
Vinnur eftir teikningum, setur saman verklýsingar fyrir vörur og verk og vinnur að vöruþróun.
Setur saman verklýsingar fyrir vörur og verk og vinnur að vöruþróun.
Notar tæki og handverkfæri og getur notað tölvutækni við hugmyndaþróun.
Þekkir eiginleika og kosti vefnaðarvöru sem notuð er í kjólasaum og klæðskurði.
Skipuleggur verkferla m.t.t. viðfangsefna, forgangsraðar verkefnum og undirbúa vinnusvæði.
Sýnir frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð og getur haft faglega umsjón með verkefnum á saumastofu í samstarfi við meistara.
Leiðbeinir af fagkunnáttu og ábyrgð.
Sýnir þjónustulund og trúnað og sinnir viðskiptavinum af lipurð, háttvísi og kunnáttu og hefur skilning á þörfum þeirra.
Sýnir heiðarleika og fer eftir siðareglum, sýnir virðingu gagnvart faginu og höfundarrétti.
Þekkir lög og reglur um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, fer eftir reglum um vinnuvernd.
Annast innkaup á vörum sem þarf á saumastofu.
Þekkir eiginleika efna og kann mismunandi saumatækni og fatagerð.
Gerir sér grein fyrir mögulegum hættum og umhverfisáhrifum sem vefnaðarvörur geta haft.
Reiknar út verð á vöru og þjónustu og metur arðsemi.
Þekkir leiðir til sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir vistvænum viðmiðum í starfi og við efnisval.
Tjáir sig um fagtengd málefni á íslensku og erlendum tungumálum.
Þekkir sögu og menningu tísku og fataiðnaðar.
Hefur tileinkað sér snyrtimennsku og gengur vel um vinnustað sinn.
Þekkir leiðir til sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir vistvænum viðmiðum í starfi og við efnisval.
Býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt, er meðvitaður um faglega og siðferðilega ábyrgð og getur lagt mat á eigin vinnu.
Starfalýsing
Skósmiður vinnur að skósmíði allt frá fyrstu hugmynd til fullbúinnar vöru. Skósmiður gengur frá fullbúnu skópari og annast viðgerðir og viðhald á skófatnaði og leðurvörum. Skósmiður starfar á verkstæði tengdu verslun og sinnir þjónustu og ráðgjöf við viðskiptavini. Gætir að góðri umgengni og öryggi við notkun handverkfæra, véla og efna. Skósmiður gætir að meðferð og losun óvistvænna efna og starfar í samræmi við almennar siðareglur.
Hæfnikröfur
Hefur umfangsmikla þekkingu á tækjum og efnum sem tengjast skósmíði.
Gerir við skó, endurnýjar slitna fleti og annast frágang á skófatnaði. Setur upp hæl á karlmannskóm, sólar og setur hælplötur á kvenskó, festir hæla, setur bót við sóla og hæl og ylfjöður í skó með botnstykki. Skiptir um fóðursóla og saumar lausa rönd og rennilás á skó.
Vinnur eftir teikningum og beitir viðeigandi vinnuaðferð hverju sinni. Notar áhöld, tæki og efni af öryggi.
Pinnar inn yfirleður á leista og gengur frá fullbúnu skópari
Þekkir orsakir vinnuslysa, nýtir öryggisvarnir, m.a. í umgengni við áhöld, vélar og efni og fer eftir reglum um vinnuvernd, m.a. um rétta líkamsbeitingu og notkun á viðeigandi hlífðarfatnaði.
Tileinkar sér aðferðir til að hámarka nýtingu efna, þekkir áhrif þeirra á umhverfið og fylgir vistvænum aðferðum við meðferð og losun þeirra.
Fer eftir siðareglum og sýnir virðingu gangvart faginu, handbragði og nýtingu efna.
Er í góðum samskiptum við birgja, samstarfsaðila og viðskiptavini.
Leiðbeinir af fagkunnáttu og ábyrgð og sýnir þjónustulund þegar hann sinnir viðskiptavinum af lipurð og háttvísi. Hann er meðvitaður um aðstöðu og aðkomu á verkstæði fyrir viðskiptavini.
Tjáir sig um fagleg málefni á íslensku og erlendum tungumálum.
Starfalýsing
Söðlasmiður vinnur að söðlasmíði allt frá fyrstu hugmynd til fullbúinnar vöru og annast viðgerðir og viðhald á reiðtygjum og annarri leðurvöru. Söðlasmiður starfar á verkstæði tengdu verslun, sinnir þjónustu við viðskiptavini og ráðgjöf og sölu. Hann gætir að góðri umgengni og öryggi við notkun áhalda, véla og efna og vinnur í samræmi við almennar siðareglur.
Hæfnikröfur
Hefur umfangsmikla þekkingu á tækjum, handverkfærum og efnum sem tengjast söðlasmíði.
Annast nýsmíði, sníður efni og undirbýr fyrir frekari vinnslu, t.d. á reiðtygjum og annarri leðurvöru.
Annast viðhald og viðgerðir á reiðtygjum, t.d. skiptir hann um löf og móttök, stoppar í dýnur og gerir við höfuðleður. Hann annast breytingar á reiðtygjum, skálmum, töskum og annarri leðurvöru.
Vinnur eftir teikningum og beitir viðeigandi vinnuaðferð hverju sinni. Hann forgangsraðar verkefnum á verkstæði, undirbýr vinnusvæði og setur saman verklýsingar fyrir vörur og verk.
Hefur góð tök á notkun áhalda og tækja og getur notað tölvutækni við upplýsingaöflun og hugmyndaþróun.
Þekkir orsakir vinnuslysa, nýtir öryggisvarnir og fer eftir reglum um vinnuvernd, m.a. um rétta líkamsbeitingu.
Fer eftir siðareglum, sýnir virðingu gagnvart faginu og hefur tileinkað sér aðferðir til að hámarka nýtingu efna og þekkir áhrif þeirra á umhverfið.
Er í góðum samskiptum við birgja, samstarfsaðila og viðskiptavini.
Leiðbeinir af fagkunnáttu og ábyrgð um val á vörum og viðhaldi í samræmi við óskir og tilefni. Hann sýnir þjónustulund þegar hann sinnir viðskiptavinum af lipurð og háttvísi.
Getur reiknað út verð á vöru og þjónustu og metið arðsemi.
Tjáir sig um fagleg málefni.
Matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreinar
Undir ráðið heyrir m.a. eftirfarandi:
Matartæknir, kjötskurðarmaður, slátrari, leiðsögumaður, ferðaþjónustugreinar. Einnig löggiltar iðngreinar til sveinsprófs í bakaraiðn, framreiðslu, kjötiðn, matreiðslu og mjólkurfræði.
Starfalýsing
Bakari vinnur sjálfstætt við framleiðslu á brauðvörum, sætabrauði, kökum, tertum, konfekti og eftirréttum. Bakari starfar í bakaríum, kökugerðarhúsum, hótelum og veitingahúsum, í kexverksmiðjum og sælgætisgerðum við kexbakstur, sælgætisframleiðslu og skreytingar. Bakari ber ábyrgð á vinnu sinni gagnvart viðskiptavinum. Bakari getur tjáð sig og leiðbeint um fagleg málefni greinarinnar á ábyrgan hátt og vinnur í samræmi við viðurkennda gæðaferla um innra eftirlitskerfi vinnustaða, vinnureglur um rekjanleikja og afgreiðslu á vörum og þjónustu. Bakari starfar í samræmi við almennar siðareglur greinarinnar.
Hæfnikröfur
Skipuleggur verkferla með tilliti til viðfangsefna, forgangsraðar verkefnum og undirbýr vinnusvæði.
Vinnur að áætlanagerð og annast verkefnastjórnun í bakaríum.
Tekur á móti unnu og óunnu hráefni og flokkar. Gerir samanburð á nótu og þeirri vöru sem afgreidd er og gengur frá hráefnum til geymslu.
Vinnur samkvæmt gæðastöðlum um innra eftirlit HACCP í bakaríum hvað varðar viðmiðunarmörk um hitastig, hreinlæti og vinnureglur um rekjanleika vöru, þjónustu og afgreiðslu á vörum.
Ber ábyrgð á því að þrif vinnusvæðis og búnaðar sé í samræmi við staðlaðar hreinlætiskröfur.
Vinnur við vélar, tæki, áhöld og handverkfæri sem notaðar eru hverju sinni, annast umhirðu þeirra og hreinsun.
Stillir upp vöru í búð og kynnir fyrir neytendum og viðskiptavinum.
Leiðbeinir viðskiptavinum um val á vörum í samræmi við óskir, þarfi og tilefni hverju sinni.
Vinnur í samræmi við uppskriftir og útfærir vinnsluaðferðir m.t.t. m.a. hitastigs og baksturstíma
Vinnur innihaldslýsingar á bakstursvörum.
Reiknar út hollustu- og næringargildi helstu framleiðsluvara, þekkir helstu fæðuóþols- og fæðuofnæmisvalda.
Þekkir leiðir til sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir vistvænum viðmiðum í starfi og við efnisval.
Er meðvitaður um mikilvægi þjónustulundar og hefur tileinkað sér fagtengdar siðareglur og gætir trúnaðar í hvívetna.
Býr yfir samskiptafærni til að geta átt farsæl samskipti við einstaklinga með ólíkar þarfir og hefur færni til að takast á við erfið samskipti í starfi.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, er fær um að tileinka sér nýjungar í starfi og hagnýta þá þekkingu í starfi.
Sýnir fagmennsku og siðferðisvitund og fer eftir og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Vinnur eftir gæðaviðmiðum, þekkir mikilvægi öryggisvarna, helstu orsakir vinnuslysa og þær reglur sem gilda um vinnuvernd, m.a. um rétta líkamsbeitingu.
Vinnur eftir gæðaviðmiðum, þekkir vinnuvernd og öryggisferla á vinnustað og er fær um að veita skyndihjálp ef slys eða óhöpp ber að höndum.
Kann rétt viðbrögð við neyðaraðstæður og er fær um að veita skyndihjálp ef slys eða óhöpp ber að höndum
Hefur færni í notkun upplýsingatækni tengt störfum í bakaraiðn.
Starfalýsing
Framreiðslumaður vinnur sjálfstætt við framreiðslu, annast faglega þjónustu og stjórnun í veitingasal; tekur á móti gestum með viðeigandi hætti; stjórnar veisluhaldi í samstarfi við matreiðslumenn og annað fagfólk; gerir áætlanir um veitingarekstur og mannahald, velur viðeigandi framreiðsluaðferð eftir tilefni viðburða og fl.. Framreiðslumaður þjónar fjölmenningarlegum hópi gesta og leiðbeinir um val á vörum í samræmi við óskir og þarfir þeirra. Framreiðslumaður starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar, getur tjáð sig og leiðbeint um fagleg málefni greinarinnar á ábyrgan hátt og vinnur í samræmi við viðurkennda gæðaferla um innra eftirlitskerfi vinnustaða.
Hæfnikröfur
Skipuleggur verkferla, forgangsraðar verkefnum, undirbýr vinnusvæði, sér um pantanir, annast uppgjör og frágang í veislu- og veitingasölum.
Beitir framreiðsluaðferðum sem henta mismunandi aðstæðum og þörfum. Eldsteikir, sker fyrir (transerar) og framreiðir við borð gestsins.
Beitir handverkfærum, tækjum og búnaði sem starfið krefst með faglegum hætti.
Blandar áfenga og óáfenga drykki, kaffi, te og framreiðir með faglegum hætti
Upplýsir gesti um hráefni og matreiðsluaðferðir rétta á matseðli, vína á vínseðli og leiðbeinir um val á drykkjum, áfengum sem og óáfengum.
Vinnur í samræmi við gæðastaðla um innra eftirlit, HACCP gæðakerfið er varðar viðmiðunarmörk, hreinlæti og vinnureglur um rekjanleika vöru, þjónustu og framreiðslu á vörum. Ber ábyrgð á því að þrif vinnusvæðis og búnaðar sé í samræmi við staðlaðar hreinlætiskröfur.
Greinir áhættuþætti í störfum framreiðslumanna, nýta öryggisvarnir og fylgja reglum um vinnuvernd m.a. um rétta líkamsbeitingu.
Gerir áætlanir um veitingarekstur og mannahald til lengri og skemmri tíma og ber ábyrgð á útkomunni. Beitir hagnýtum aðferðum við sölu á veitingum og þjónustu veitingastaðarins.
Hefur þekkingu á afleiðingum fæðuóþols og fæðuofnæms og kann að bregðast við áföllum sem kunna að verða á veitingastað af þeim sökum.
Þekkir almennt til sögu, menningu og atvinnuhátta Íslendinga. Getur veitt upplýsingar um nærumhverfi og almenn þjóðfélagsmál.
Hefur færni í notkun upplýsingatækni tengt störfum í framreiðslu.
Vinnur í samræmi við umhverfiskröfur veitingastaða, tekur þátt í að draga úr matarsóun og almennri rýrnun á vörum
Ber virðingu fyrir starfi sínu og ber ábyrgð á þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur. Starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og stuðlar að góðum starfsanda í vinnuumhverfi sínu.
Starfalýsing
Kjötiðnaðarmaður vinnur sjálfstætt við úrvinnslu kjötafurða, útbýr kjöt og kjötrétti í neytendapakkningar, setur upp kjötborð og afgreiðir viðskiptavini. Kjötiðnaðarmaður starfar m.a. í kjötvinnslu, í kjötdeildum verslana, í sláturhúsum, við sölu á matvælum og ber ábyrgð á útkomu vinnu sinnar gagnvart viðskiptavinum. Kjötiðnaðarmaður getur tjáð sig og leiðbeint um fagleg málefni greinarinnar á ábyrgan hátt. Kjötiðnaðarmaður vinnur í samræmi við gæðaferla og gæðastaðla um innra eftirlitskerfi vinnustaða, vinnureglur um rekjanleika vöru og þjónustu sem og á afgreiðslu á vörum og þjónustu og almennar siðareglur.
Hæfnikröfur
Skipuleggur verkefni og verkferla, forgangsraðar verkefnum, undirbýr vinnusvæði.
Pantar og tekur á móti unnu og óunnu hráefni og kemur í viðeigandi geymslu. Flokkar og metur ástand og gæði vörunnar með hliðsjón af umbúðamerkingum, hitastigi og almennum gæðakröfum. Gerir samanburð á nótu og þeirri vöru sem afgreidd er.
Sagar og hlutar niður kjötskrokka: Úrbeinar lamb, naut, svín, hross og aðrar kjötafurðir eftir gefnum stöðlum og nýtingaráformum í samræmi við lög og reglugerðir m.a. um heilbrigðis- og hollustuhætti. Beitir tækjum og handverkfærum. Hefur góða færni í skurði, úrbeiningu og snyrtingu á kjötskrokkum.
Vinnur fars, pylsur, kæfur, paté, slátur og álegg. Kryddar og kryddleggur kjöt og vinnur að meyrnun kjöts. Útbýr kjötrétti, tilbúna og hálftilbúna í kjötborð.
Beitir viðurkenndum aðferðum til að auka geymsluþol matvæla, s.s kæla, frysta, salta, sjóða, reykja, grafa, þurrka og súrsa.
Vinnur samkvæmt gæðastöðlum um innra eftirlit HACCP í kjötvinnslum hvað varðar viðmiðunarmörk um hitastig, hreinlæti og vinnureglur um rekjanleika vöru, þjónustu og afgreiðslu á vörum. Ber ábyrgð á því að þrif vinnusvæðis og búnaðar sé í samræmi við staðlaðar hreinlætiskröfur.
Pakkar framleiðsluvörum í neytendapakkningar og vinnur innihaldslýsingar í samræmi við gildandi lög og reglur um merkingar og pökkun viðkomandi vöru.
Afgreiðir viðskiptavini og veitir ráðgjöf um meðferð hráefnis, um matseld og val á meðlæti og drykkjarföngum með kjöt- og fiskréttum.
Getur tjáð sig og leiðbeint um fagleg málefni greinarinnar.
Reiknar út hollustu- og næringargildi helstu framleiðsluvara, þekkir helstu fæðuóþols- og fæðuofnæmisvalda.
Vinnur í samræmi við siðareglur, s.s. um virðingu fyrir faginu, fyrir hráefni og nýtingu þess. Þekkir aðferðir og stefnur um sjálfbæra nýtingu sláturdýra.
Þekkir leiðir til sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir vistvænum viðmiðum í starfi og við efnisval.
Er meðvitaður um mikilvægi þjónustulundar og hefur tileinkað sér fagtengdar siðareglur og gætir trúnaðar í hvívetna.
Býr yfir samskiptafærni til að geta átt farsæl samskipti við einstaklinga með ólíkar þarfir og hefur færni til að takast á við erfið samskipti í starfi.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, er fær um að tileinka sér nýjungar í starfi og hagnýta þá þekkingu í starfi.
Sýnir fagmennsku og siðferðisvitund og fer eftir og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Vinnur eftir gæðaviðmiðum, þekkir mikilvægi öryggisvarna, helstu orsakir vinnuslysa og þær reglur sem gilda um vinnuvernd, m.a. um rétta líkamsbeitingu.
Vinnur eftir gæðaviðmiðum, þekkir vinnuvernd og öryggisferla á vinnustað og er fær um að veita skyndihjálp ef slys eða óhöpp ber að höndum.
Kann rétt viðbrögð við neyðaraðstæður og er fær um að veita skyndihjálp ef slys eða óhöpp ber að höndum
Hefur færni í notkun upplýsingatækni tengt störfum í kjötiðn.
Starfalýsing
Leiðsögumaður veitir ferðamönnum leiðsögn á íslensku eða erlendum tungumálum og miðlar upplýsingum um land og þjóð. Leiðsögumaður útfærir ferðir og ferðatilhögun í samræmi við dagskrá eða áætlanir ferðaskipuleggjenda og hefur þarfir og markmið hópsins í fyrirrúmi. Leiðsögumaður leggur sig fram við að leiðbeina fólki um að ganga vel um landið og er fyrirmynd þegar kemur að umhverfisvernd. Leiðsögumaður skal vera fær um leiða hóp og hafa getu til að bregðast við óvæntum breytingum á aðstæðum og eða í vinnuumhverfi. Leiðsögumaður skal ávallt af fremsta megni tryggja öryggi farþega sinna og geta veitt fyrstu hjálp. Leiðsögumaður vinnur í samræmi við gæðastefnu og siðareglur ferðaskipuleggjanda hverju sinni. Hann gætir þess að náttúru- og menningarminjar verði ekki fyrir skemmdum af völdum ferðamanna.
Hæfnikröfur leiðsögumanna taka mið af Evrópustaðlinum ÍST EN 15565:2008.
Hæfnikröfur
Öryggi:
Þekkir áhættu og orsakir slysa í ferðalögum og nýtir öryggisvarnir og leiðir til að fyrirbyggja óhöpp.
Upplýsir ferðamenn um viðeigandi öryggisatriði og hættur.
Tryggir að viðeigandi búnaður sé til staðar.
Þekkir sín mörk og hæfni og tekur meðvitaðar ákvarðanir um að stofna hvorki sér né öðrum í hættu.
Náttúra:
Leggur sig fram um að vernda náttúru- og menningarminjar.
Þekkir lög og reglugerðir um náttúruvernd.
Leggur áherslu á góða umgengni svo náttúru- og menningarminjar verði ekki fyrir
skemmdum eða hnjaski af völdum ferðamanna.
Leggur sig fram um að ferðast án ummerkja með ferðamenn.
Stuðlar að og hefur skilning á mikilvægi sjálfbærni í ferðaþjónustu.
Hæfni og færni:
Útfærir og fer fyrir hópi ferðamanna um Ísland, veitir ferðamönnum leiðsögn og túlkar fyrir gestum menningarlegar og náttúrulegar minjar og umhverfi.
Er fær um að segja frá náttúru og landafræði Íslands, þar með talið myndun og mótun landsins, lífríki og vistfræði lands og sjávar.
Getur sagt frá sögu, menningu og atvinnulífi landsins og íslensku þjóðlífi í fortíð og nútíð.
Hefur haldgóða þekkingu á íslenskum ferðamannastöðum, afþreyingu og þjónustu.
Tryggir að réttar og viðeigandi upplýsingar séu veittar ferðamönnum.
Er fær um að miðla upplýsingum og koma mikilvægum upplýsingum til ferðamanna á skiljanlegan og innihaldsríkan hátt.
Getur átt samskipti og tjáð sig á íslensku og/eða ensku skv. B2 skv. Evrópska tungumálarammanum.
Getur leiðsagt á tungumáli á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum.
Leggur sig fram um að gefa jákvæða mynd af landi og þjóð og stuðlar að jákvæðri upplifun ferðamanna.
Skal geta leitt hóp og hafa getu til að bregðast við óvæntum breytingum á aðstæðum og eða í vinnuumhverfi.
Viðheldur færni, hæfni og þekkingu til að sinna starfinu.
Samskipti og þjónusta:
Þekkir lög og reglugerðir er varða störf leiðsögumanna.
Þekkir réttindi neytenda.
Leitar upplýsinga þegar nauðsyn ber til.
Leitar til fagaðila þegar þörf er á eða kemur að sérhæfðum ferðum.
Tekur tillit til mismunandi menningarlegs bakgrunns og sérþarfa ferðamanna hverju sinni.
Sýnir þjónustulund og heiðarleika í samskiptum við samstarfsaðila.
Sýnir fagmennsku og starfar í samræmi við siðareglur ferðaskipuleggjanda hverju sinni.
Tekur frumkvæði þegar nauðsyn ber til, tekur sjálfstæðar ákvarðanir og bregst með faglegum hætti við óvæntum aðstæðum og uppákomum.
*undirfyrirsagnir settar inn að beiðni verkefnahóps.
Starfalýsing
Matartæknir matreiðir algengan heimilismat, hátíðarmat og sérfæði og setur saman matseðla með hliðsjón af þörfum einstaklinga og hópa. Matartæknir starfar á heilbrigðisstofnunum og í mötuneytum og sinnir stjórnun í eldhúsum heilbrigðisstofnana. Matartæknir ber ábyrgð á vinnu sinnar gagnvart neytendum og vinnustað sínum. Vinnur með hreinsiefni sem notuð eru í stóreldhúsum og mötuneytum við hreinsun tækja og áhalda og hefur eftirlit með slíkum þrifum í samræmi við gildandi staðla og reglur um hreinlæti. Hann starfar í samræmi við almennar siðareglur.
Hæfnikröfur
Skipuleggur verkferla, forgangsraðar verkefnum, undirbýr vinnusvæði, sér um pantanir og móttöku hráefnis.
Matreiðir algengan heimilismat með hliðsjón af hollustu og næringargildi og tekur tillit til þarfa einstakra hópa s.s. barna, aldraðra og sjúklinga.
Matreiðir bæði almennt fæði og sérfæði fyrir hópa.
Hefur umfangsmikla hráefnisþekkingu, tekur á móti unnu og óunnu hráefni, þekkir uppruna þess, flokkar, metur ástand og gæði þess og gengur frá hráefnum til geymslu.
Les og túlkar innihaldslýsingar, reiknar út hollustu- og næringargildi helstu framleiðsluvara og aðlagar matarskammta að neysluþörfum markhópa og einstaklinga.
Setur saman matseðla, dúkar borð og útbýr rétti til framreiðslu.
Þekkir helstu áhrifaþætti fæðuofnæmis og fæðuóþols og viðbrögð gegn því.
Beitir handverkfærum og viðurkenndum eldunartækjum með faglegum hætti. Hefur góða færni í skurði og meðferð á grænmeti, fisk og kjöti
Þeir afgreiða fæði úr eldhúsi og stjórna skömmtunarfæribandi í stóreldhúsum.
Vinnur samkvæmt gæðastöðlum um innra eftirlit HACCP í eldhúsum hvað varðar viðmiðunarmörk um hitastig, hreinlæti og vinnureglur um rekjanleika vöru, þjónustu og afgreiðslu á vörum. Ber ábyrgð á því að þrif vinnusvæðis og búnaður séu i samræmi við staðlaðar hreinlætiskröfur.
Vinnur í samræmi við umhverfisstefnu vinnustaðarins, tekur þátt í að efla umhverfisvitund, draga úr matarsóun, efla sjálfbærni, efla heilsu o.s.frv. á vinnustað.
Tjáir sig og leiðbeinir um fagleg málefni greinarinnar á ábyrgan hátt, tekur þátt í faglegum umræðum um matreiðslu á heilbrigðisstofnunum, leik-, grunn- og framhaldsskólum og mötuneytum vinnustaða og hefur vald á fagorðum greinarinnar.
Reiknar út verð sem byggir á framleiðslustöðlum, uppskriftum og framlegð.
Hefur færni í notkun upplýsingatækni tengt störfum í matreiðslu.
Er fær um að veita aðstoð í bráðatilfellum og skyndihjálp ef slys eða óhöpp ber að höndum.
Hefur þekkingu á mikilvægi góðrar þjónustu.
Gætir að trúnaði og þagnarskyldu við gesti og samstarfsfélaga og þagmælsku um einkamál þeirra sem hann fær vitneskju um í starfi sínu.
Starfalýsing
Matreiðslumaður starfar sjálfstætt við matreiðslu og heldur utan um verkferla frá móttöku vörunnar til framleiðslu og framreiðslu. Matreiðslumaður beitir öllum helstu matreiðsluaðferðum, tekur tillit til óska viðskiptavina og aðlagar matreiðslu sína að neysluþörfum markhópa og einstaklinga. Matreiðslumaður ber ábyrgð á vinnu sinni gagnvart gestum og vinnustað sínum. Matreiðslumaður getur tjáð sig og leiðbeint um fagleg málefni greinarinnar á ábyrgan hátt og vinnur í samræmi við viðurkennda gæðaferla um innra eftirlitskerfi vinnustaða, vinnureglur um rekjanleikja og afgreiðslu á vörum og þjónustu. Matreiðslumaður starfar í samræmi við almennar siðareglur greinarinnar.
Hæfnikröfur
Skipuleggur verkferla, forgangsraðar verkefnum, undirbýr vinnusvæði, sér um pantanir og móttöku hráefnis.
Hefur umfangsmikla hráefnisþekkingu, tekur á móti unnu og óunnu hráefni, þekkir uppruna þess, flokkar, metur ástand og gæði þess og gengur frá hráefnum til geymslu.
Hefur þekkingu á hlutun og hagnýtingu á kjöti og fiski ásamt gæðamati þess.
Hefur tileinkað sér meginstrauma í íslenskri og alþjóðlegri matreiðslu. Beitir matreiðsluaðferðum sem hentar fjölbreytilegu hráefni og matarmenningu ólíkra þjóða og menningarsvæða. Matreiðir allan algengan mat m.a með hliðsjón af hollustu og næringargildi.
Beitir handverkfærum og viðurkenndum eldunartækjum með faglegum hætti. Hefur góða færni í skurði og meðferð á grænmeti, fisk og kjöti.
Setur saman matseðla eftir tilefni og óskum viðskiptavina og leiðbeinir um val og röð rétta á matseðli. Sýnir frumkvæði í þróun matreiðslu.
Vinnur samkvæmt gæðastöðlum um innra eftirlit HACCP í eldhúsum hvað varðar viðmiðunarmörk um hitastig, hreinlæti og vinnureglur um rekjanleika vöru, þjónustu og afgreiðslu á vörum. Ber ábyrgð á því að þrif vinnusvæðis og búnaður sé i samræmi við staðlaðar hreinlætiskröfur.
Greinir áhættuþætti í starfi matreiðslumanna, nýtir öryggisvarnir og fylgir eftir reglum um vinnuvernd, m.a. um rétta líkamsbeitingu.
Vinnur í samræmi við umhverfisstefnu vinnustaðarins, tekur þátt í að efla umhverfisvitund, draga úr matarsóun, efla sjálfbærni, efla heilsu o.s.frv. á vinnustað.
Getur tjáð sig og leiðbeint um fagleg málefni greinarinnar á ábyrgan hátt og hefur vald á fagorðum greinarinnar.
Ber virðingu fyrir starfi sínu og ber ábyrgð á þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur.
Gætir að trúnaði og þagnarskyldu við gesti og samstarfsfélaga og þagmælsku um einkamál þeirra sem hann fær vitneskju um í starfi sínu.
Þekkir helstu áhrifaþætti fæðuofnæmis og fæðuóþols og viðbrögð gegn því.
Reiknar út verð sem byggir á framleiðslustöðlum, uppskriftum og framlegð.
Hefur færni í notkun upplýsingatækni tengt störfum í matreiðslu.
Hefur þekkingu á mikilvægi góðrar þjónustu.
Er fær um að veita aðstoð í bráðatilfellum og skyndihjálp ef slys eða óhöpp ber að höndum.
Starfalýsing
Matsveinn matreiðir algengan heimilismat, hátíðarmat og setur saman matseðla með hliðsjón af þörfum einstaklinga og hópa. Starfsvettvangur matsveina er eldhús á minni fiskiog flutningaskipum og litlum mötuneytum. Matsveinn þjónar fólki sem borðar hjá honum og skipuleggur matseðla með hliðsjón af hollustu og næringargildi. Vinnur með hreinsiefni sem notuð eru í stóreldhúsum og mötuneytum við hreinsun tækja og áhalda og hefur eftirlit með slíkum þrifum í samræmi við gildandi staðla og reglur um hreinlæti. Matsveinn starfar í samræmi við almennar siðareglur.
Hæfnikröfur
Vinnur eftir verkferlum, forgangsraðar verkefnum, undirbýr vinnusvæði, sér um pantanir og móttöku hráefnis.
Matreiðir algengan heimilismat með hliðsjón af hollustu og næringargildi.
Hefur góða hráefnisþekkingu, tekur á móti unnu og óunnu hráefni, þekkir uppruna þess, flokkar, metur ástand og gæði þess og gengur frá hráefnum til geymslu.
Les og túlkar innihaldslýsingar, reiknar út hollustu- og næringargildi helstu framleiðsluvara og aðlagar matarskammta að neysluþörfum markhópa og einstaklinga.
Setur saman matseðla, dúkar borð og útbýr rétti til framreiðslu.
Þekkir helstu áhrifaþætti fæðuofnæmis og fæðuóþols og viðbrögð gegn því.
Beitir handverkfærum og viðurkenndum eldunartækjum með faglegum hætti.
Vinnur samkvæmt gæðastöðlum um innra eftirlit HACCP í eldhúsum hvað varðar viðmiðunarmörk um hitastig, hreinlæti og vinnureglur um rekjanleika vöru, þjónustu og afgreiðslu á vörum. Ber ábyrgð á því að þrif vinnusvæðis og búnaður séu i samræmi við staðlaðar hreinlætiskröfur.
Vinnur í samræmi við umhverfisstefnu vinnustaðarins, tekur þátt í að efla umhverfisvitund, draga úr matarsóun, efla sjálfbærni, efla heilsu o.s.frv. á vinnustað.
Tjáir sig og leiðbeinir um fagleg málefni greinarinnar á ábyrgan hátt, tekur þátt í faglegum umræðum og hefur vald á fagorðum greinarinnar.
Hefur færni í notkun upplýsingatækni tengt störfum í matreiðslu.
Er fær um að veita aðstoð í bráðatilfellum og skyndihjálp ef slys eða óhöpp ber að höndum.
Hefur þekkingu á mikilvægi góðrar þjónustu.
Gætir að trúnaði og þagnarskyldu við neytendur og samstarfsfélaga og þagmælsku um einkamál þeirra sem hann fær vitneskju um í starfi sínu.
Málmtækni-, vélastjórnar- og framleiðslugreinar
Undir starfsgreinaráði málmtækni-, vélstjórnar- og framleiðslugreina falla eftirfarandi starfsnáms- og iðngreinar á framhaldsskólastigi:
Rennismíði, stálsmíði, vélvirkjun, flugvirkjnetagerð, vélstjórn og kæli- og frystivélavirkjun, sérgrein
Starfalýsing
Netagerðarmaður hannar, framleiðir, viðheldur og gerir við veiðarfæri. Hann hannar og setur upp netabúnað eldiskvía fyrir strandeldis- og landstöðvar með hliðsjón af aðstæðum og notkun. Netagerðarmaður fer eftir gildandi lögum og reglugerðum um lágmarksmöskvastærðir og umbúnað veiðarfæra og reglum um öryggismál í starfi. Netagerðarmaður hefur samráð við notendur veiðarfæra. Netagerð er löggilt iðngrein.
Hæfnikröfur
Hlítir ákvæðum vinnuverndarlaga og er fyllilega meðvitaður um rétta líkamsbeitingu við vinnu og hollustuhætti almennt.
Hannar, framleiðir og setur upp veiðarfæri.
Metur ástand veiðarfæra og ályktar um viðgerðar- og endurnýjunarþörf og gerir tíma- og kostnaðaráætlun um viðgerð og endurnýjun.
Þekkir skaða sem veiðarfæri í sjó kunna að valda og tekur tillit til skaðsemisþátta við hönnun og framleiðslu. Hann fer að opinberum fyrirmælum um meðferð efna og úrgangs.
Ber skyn á hegðun nytjafiska og viðbrögð þeirra við veiðafærum.
Getur lagt mat á gæði vinnu sinnar og annarra.
Þekkir takmarkanir á heimildum til notkunar veiðarfæra við landið.
Þekkir flokkun og þróun veiðarfæra, kjör- og valhæfni, mælitæki og nema sem auka afrakstur og hámarka nýtni.
sýnir leikni við samráð og tekur tillit til óska og krafna viðskiptavina.
Kann skil á öllum framleiðsluaðferðum við gerð veiðarfæra sem notuð eru við Ísland. Hann þekkir merkingar og mæliaðferðir, uppbyggingu og lögun veiðarfæra og efni til veiðarfæragerðar.
Starfalýsing
Kælitæknar starfa einkum hjá sérhæfðum fyrirtækjum á sviði kælitækni sem annast hönnun, uppsetningu og þjónustu kæli- og frystikerfa. Einnig starfa þeir hjá þjónustufyrirtækjum og í framleiðslufyrirtækjum, svo sem í matvæla- og drykkjarvöruiðnaði, þar sem slík kerfi eru hluti af framleiðsluferlum.
Kælitæknar setja upp og þjónusta fjölbreytt kæli- og frystikerfi fyrir atvinnulíf, þar á meðal í verslunum, iðnaði, skipum, flutningatækjum og öðrum rekstri þar sem kæling gegnir lykilhlutverki. Þeir sjá um uppsetningu helstu íhluta kerfa, tengingar, stillingar og prófanir í samræmi við teikningar, verklýsingar og staðla. Kælitæknar sinna rekstri, eftirliti og viðhaldi kerfa og greina og gera við bilanir þegar þær koma upp. Þeir skrá ástand kerfa og framkvæmdir og stuðla að öruggum, áreiðanlegum og hagkvæmum rekstri í samræmi við gildandi reglur og verklagsreglur.
Kælitæknar vinna með raf- og stýritækni sem tengist kælikerfum og hafa skilning á virkni sjálfvirkra stýrikerfa. Þeir vinna innan skilgreinds ábyrgðarsviðs og leita til annarra sérfræðinga þegar verkefni fara út fyrir þeirra hæfni.
Starfsheitið kælitæknir er lögverndað og kæli- og frystivélavirkjun er löggilt iðngrein.
Hæfnikröfur
Les og nýtir teikningar og einfaldar kerfismyndir.
Setur upp kæli- og frystikerfi samkvæmt teikningum og verklýsingum.
Velur efni og íhluti með tilliti til notkunar og staðla.
Framkvæmir lagnavinnu, festingar og frágang.
Notar viðeigandi verkfæri og mælitæki á öruggan hátt.
Sinnir reglubundnu viðhaldi kælikerfa.
Fylgist með rekstri og metur ástand kerfa.
Skráir viðhald, ástand og aðgerðir samkvæmt verklagsreglum.
Tryggir hagkvæman og öruggan rekstur.
Greinir bilanir í kælikerfum og stýringum þeirra.
Beitir mælitækjum og aðferðum við bilanaleit.
Framkvæmir viðgerðir og stillingar á íhlutum kerfa.
Prófar kerfi eftir viðgerðir.
Les einfaldar rafmagnsteikningar og skilur uppbyggingu rafbúnaðar.
Þekkir helstu íhluti stýrirása, skynjara og mótora.
Getur tengt og yfirfarið einfaldar stýrirásir innan síns ábyrgðarsviðs.
Skilur virkni sjálfvirkra stýrikerfa og getur stillt og bilanagreint þau.
Skilur meginatriði kælihringrása og varmastreymis.
Þekkir áhrif yfirhitunar, undirkælingar og lofttæmingar.
Þekkir virkni helstu íhluta kælikerfa.
Hefur þekkingu á kælimiðlum og smurolíum.
Starfar samkvæmt gildandi lögum, reglugerðum og stöðlum.
Fer eftir reglum um meðferð kælimiðla og öryggi kælikerfa.
Þekkir eigin ábyrgðarmörk gagnvart öðrum iðngreinum.
Beitir öruggum vinnubrögðum við háþrýsting og rafmagn.
Vinnur samkvæmt verkáætlunum og verklagsreglum.
Tekur þátt í gæðastarfi og fylgir gæðakerfum.
Tekur þátt í áhættumati og vinnuverndarstarfi.
Heldur vinnusvæði snyrtilegu og öruggu.
Hefur fagleg samskipti við viðskiptavini og samstarfsmenn.
Miðlar upplýsingum um stöðu verka og lausnir.
Metur eigin vinnu og gæði hennar.
Sýnir ábyrgð, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð.
Starfalýsing
Rennismiður smíðar hluti af öllu tagi úr málmum og plastefnum, bæði til fjölda- og raðframleiðslu og einstaka íhluti til viðhalds og viðgerða. Þekkir til efnis- og vélfræði, s.s. afl – orku – varma – kraft - og straumfræði og getur nýtt þekkingu sína til að skilja virkni búnaðar og mannvirkja. Rennismiður kann á handvirkar og tölvustýrðar iðnvélar. Les teikningar, þekkir eiginleika plasts og málma. Framkvæmir verklýsingar, les og túlkar verk- og framleiðsluleiðbeiningar og skipuleggur verkefni. Fer eftir kröfum um öryggismál, umgengni og efnameðferð á vinnustað. Rennismiður býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt og getur leiðbeint öðrum.
Hæfnikröfur
Leysir verkefni sín með aðstoð tækni, framleiðsluleiðbeininga og viðhaldsbóka á íslensku og ensku.
Þekkir framleiðsluferli og efnisfræðilega uppbyggingu, merkingar, staðla, eiginleika, smíða- og suðuhæfni algengra smíðamálma
Þekkir eiginleika efna, álagskrafta sem þeim tengjast og rökstyður ákvörðun um efnisval og lausnir hverju sinni.
Vinnur sjálfstætt, velur starfsaðferðir við hæfi og forgangsraðar verkefnum.
Sækir þekkingu í erlendar fagbækur.
Metur kostnað við verkefni s.s. vinnu- og vélatíma ásamt efniskostnaði og gerir tilboð í afmörkuð verkefni.
Beitir verkfærum og vélum sem notuð eru í málmiðnaði. Notar tölvustýrðar og handvirkar iðnvélar, kann skil á umhirðu þeirra og öryggiskröfum.
Velur smíðaefni eftir gefnum forsendum um eiginleika, notkun, kröfum til smíðisgripa og hagkvæmni. Beitir viðeigandi efnismeðferð út frá úrlausnarefni.
Notar algengustu tölvustýrðar(CNC-stýrðar) málmsmíðavélar og hefur vald á ferli frá teikniforriti til vélar. Notar teikniforrit til að teikna smíðateikningar.
Þekkir eðlismun á viðgerðavinnu, stykkjaframleiðslu og fjöldaframleiðslu.
Les og vinnur eftir grunn- og fagteikningum , verklýsingum, teikningum, stöðlum og öðrum gögnum er varða framkvæmdir og notar teikniforrit til að teikna smíðateikningar fyrir einstök verkefni.
Þekkir algengustu samsetningar- og festingaaðferðir; boltun, skrúfun, draghnoðun, stærðir, styrk, tæringarhættu og merkingar.
Þekkir breytingar á eiginleikum smíðamálma við vinnslu, notkun og endurvinnslu og tekur tillit til breytinga á styrk og formi við smíði, vinnslu og notkun.
Notar mælitæki málmiðna með hliðsjón af nákvæmni og notkunarsviði, áhrifum hita á mælingar og áhrifum formbreytinga á mál smíðisgripa.
Notar rennibekki, bor-, snitt- og fræsivélar í starfi.
Vinnur sjálfstætt, metur eigin getu og forgangsraðar viðfangsefnum.
Vinnur eftir fagteikningum, notar teikniforrit, teiknar fríhendis smíðateikningar fyrir einstök verkefni.
Kann á iðntölvustýringar og forritun iðntölva.
Þekkir rekstur, skipulag og uppbyggingu fyrirtækja og stofnana í greininni og gerir grein fyrir hlutverki þeirra.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, er fær um að tileinka sér nýjungar og hagnýta þá þekkingu í starfi.
Tjáir sig af öryggi, munnlega og skriflega, s.s. með verkdagbókum, vinnuseðlum, skýrslum og gerð rekstrardagbóka.
Vinnur sjálfstætt, metur eigin getu og forgangsraðar viðfangsefnum, skilgreinir hvaða aðferðir eiga við hverju sinni og rökstyður þær aðferðir sem hann notar.
Tryggir öryggi og viðhefur viðeigandi varnarráðstafanir í málmiðnaði og þekkir eftirlitsstofnanir og hlutverk þeirra vegna eftirlits og öryggismála.
Þekkir lög og reglur um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Þekkir áhættumat og áhættugreiningu og fylgir öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir vinnustaði, m.a. með notkun á viðeigandi loftræsingu og öryggisbúnaði.
Þekkir grundvallatriði sjálfbærni, vistvænar byggingar og umhverfisvernd og fylgir vistvænum viðmiðum við efnisval og framkvæmdir og reglum um meðferð og notkun hættulegra efna.
Er fær um að lesa og skilja gæðahandbók fyrirtækja og fara eftir henni og er fær um að leiðbeina öðrum s.s. iðnnemum og neytendum um fagleg verkefni.
Sýnir fagmennsku og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Tileinkar sér snyrtimennsku og gengur vel um vinnustað sinn.
Starfalýsing
Stálsmiður sníðir og formar smíðaefni eftir eigin teikningum eða annara. Velur vinnuaðferðir, efni og verkfæri við hæfi. Þekkir til efnis-og vélfræði s.s afl – orku – varma – kraft og straumfræði og nýtir þekkingu sína til að skilja virkni búnaðar og mannvirkja. Stálsmiður annast eftirlit og viðhald stálmannvirkja og skipa. Stálsmiður starfar í framleiðslu-, þjónustu – og byggingafyrirtækjum sem hanna, smíða og gera við vélar, mannvirki eða skip. Stálsmiður reisir mannvirki og viðheldur þeim ásamt því að veita aðra þjónustu sem byggist á meðferð og meðhöndlun málma. Fer eftir kröfum um öryggismál, umgengni og efnameðferð á vinnustað. Stálsmiður býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt og getur leiðbeint öðrum.
Hæfnikröfur
Leysir verkefni sín með aðstoð tækni – og framleiðsluleiðbeininga ásamt viðhaldsbóka á íslensku og ensku.
Þekkir framleiðsluferli og efnisfræðilega uppbyggingu, merkingar, staðla, eiginleika, smíða- og suðuhæfni algengra smíðamálma.
Þekkir eiginleika efna, álagskrafta sem þeim tengjast og rökstyður ákvörðun um efnisval og lausnir hverju sinni.
Vinnur sjálfstætt, velur starfsaðferðir við hæfi og forgangsraðar verkefnum.
Sækir þekkingu í erlendar fagbækur
Metur kostnað við verkefni s.s. vinnu- og vélatíma ásamt efniskostnað og gerir tilboð í afmörkuð verkefni.
Beitir verkfærum, vélum sem notuð eru í málmiðnaði, þekkir meðhöndlun, umhirðu þeirra og umgengni með tilliti til öryggis.
Notar algengustu tölvustýrðar(CNC-stýrðar) málmsmíðavélar og hefur vald á ferli frá teikniforrit til vélar. Notar teikniforrit til teikna smíðateikningar.
Kann skil á framleiðsluferli og efnisfræðilega uppbyggingu algengra smíðamálma.
Þekkir helstu flokka, eiginleika og notkun plastefna til smíða.
Smíðar burðarvirki og útflatninga samkvæmt eigin teikningum eða annarra og gengur frá samkvæmt kröfum.
Þekkir algengustu samsetninga- og festingaaðferðir; boltun, skrúfun, draghnoðun. Stærðir, styrk, tæringarhættu og merkingar.
Þekkir staðla fyrir smíði og prófanir þrýstihylkja.
Notar málmsmíðavélar, bæði handvirkra og tölvustýrðra og kann skil á umhirðu þeirra.
Notar mælitæki málmiðna með hliðsjón af nákvæmni og notkunarsviði.
Beitir handverkfærum máliðna og kann skil á umhirðu þeirra.
Þekkir vinnsluhætti ljósbogasuðu, hættur og öryggisráðstafanir, geymslu og meðferð aðfanga, suðuferilslýsingar, suðubreytur, undirbúning suðu, suðu á ryðfríu stáli og áli.
Velur smíðaefni eftir gefnum forsendum um eiginleika, notkun, kröfum til smíðisgripa og hagkvæmni. Beitir viðeigandi efnismeðferð út frá úrlausnarefni.
Þekkir gerðir og eiginleikar lagnaefna, takmarkanir þeirra og samsetningar, les lagnateikningar.
Þekkir framleiðsluferli og efnisfræðilega uppbyggingu algengra smíðamálma.
Kann á iðntölvustýringar og forritun iðntölva .
Þekkir rekstur, skipulag og uppbyggingu fyrirtækja og stofnana í greininni og gerir grein fyrir hlutverki þeirra.
Vinnur sjálfstætt, metur eigin getu og forgangsraðar viðfangsefnum, skilgreinir hvaða aðferðir eiga við hverju sinni og rökstyður þær aðferðir sem hann notar.
Tryggir öryggi og viðhefur viðeigandi varnarráðstafanir í málmiðnaði og þekkir eftirlitsstofnanir og hlutverk þeirra vegna eftirlits og öryggismála.
Þekkir lög og reglur um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Þekkir áhættumat og áhættugreiningu og fylgir öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir vinnustaði, m.a. með notkun á viðeigandi loftræsingu og öryggisbúnaði.
Þekkir grundvallatriði sjálfbærni, vistvænar byggingar og umhverfisvernd og fylgir vistvænum viðmiðum við efnisval og framkvæmdir og reglum um meðferð og notkun hættulegra efna.
Er fær um að lesa og skilja gæðahandbók fyrirtækja og fara eftir henni og er fær um að leiðbeina öðrum s.s. iðnnemum og neytendum um fagleg verkefni.
Sýnir fagmennsku og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Tileinkar sér snyrtimennsku og gengur vel um vinnustað sinn.
Starfalýsing
Vélvirki annast uppsetningu, viðgerðir, viðhald, endurnýjun og þjónustu á hvers kyns vél- og tæknibúnaði og flutningakerfum í skipum, vinnslustöðvum, vinnuvélum, verksmiðjum, orkuverum og orkuveitum út frá framleiðslu- og verklýsingum framleiðenda, eigin fagteikningum eða teikningum hönnuða og viðskiptavina. Vélvirki býr yfir sérhæfðri þekkingu á virkni vélbúnaðar og efnisfræði. Les teikningar og notar tæknilegar upplýsingar í starfi. Vélvirki forgangsraðar verkefnum og velur starfsaðferðir í samræmi við reglur gæða-, öryggis- og umhverfiseftirlits. Metur kostnað við verkefni, vinnur tilboð fyrir afmörkuð verk. Vélvirki þekkir grundvallatriði sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir reglum um endurvinnslu og förgun. Fer eftir kröfum um öryggismál, umgengni og efnameðferð á vinnustað. Vélvirki býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt og getur leiðbeint öðrum.
Hæfnikröfur
Leysir verkefni sín með aðstoð tækni- og framleiðsluleiðbeininga og viðhaldsbóka á íslensku og ensku.
Þekkir framleiðsluferli og efnisfræðilega uppbyggingu, merkingar, staðla, eiginleika, smíða- og suðuhæfni algengra smíðamálma.
Þekkir eiginleika efna, álagskrafta sem þeim tengjast og rökstyður ákvörðun um efnisval og lausnir hverju sinni.
Vinnur sjálfstætt, velur starfsaðferðir við hæfi og forgangsraðar verkefnum.
Sækir þekkingu í erlendar fagbækur.
Metur kostnað við verkefni s.s. vinnu- og vélatíma ásamt efniskostnaði og gerir tilboð í afmörkuð verkefni.
Skilur efniseiginleika og vinnsluforsendur ryðfrís stáls.
Framkvæmir skurð, formun, samsetningu, hreinsun og yfirborðsmeðhöndlun málma.
Þekkir breytingar á eiginleikum smíðamálma við vinnslu, notkun og endurvinnslu og tekur tillit til breytinga á styrk og formi við smíði, vinnslu og notkun.
Kann skil á helstu flokkum, eiginleikum og notkun plastefna til smíða.
Beitir réttum aðferðum við hitameðhöndlun smíðamálma, s.s. forhitun, afglóðun og herslu.
Vinnur eftir fagteikningum, notar teikniforrit, teiknar fríhendis smíðateikningar fyrir einstök verkefni.
Beitir handverkfærum málmiðna og málsmíðavélum af öryggi og kann skil á umhirðu þeirra.
Þekkir uppbyggingu, vinnuferli og virkni aflvéla og aflrása ásamt ferlum og virkni stoðkerfa í skipum og þungavinnuvélum.
Setur upp, réttir af, prófar og reynslukeyrir aflvélar og vélakerfi.
Mælir og metur þætti sem hafa áhrif á ástand, virkni og afköst aflvéla, aflrása og stoðkerfa.
Þekkir gerðir og eiginleika lagnaefna, takmarkanir þeirra og samsetningar.
Reiknar út straumhraða í lögnum og áhrif mótstöðu á virkni lagnakerfa.
Þekkir alla hluta vökvakerfa og virkni þeirra, s.s. lagnaefni, tjakka, dælur, forðabúr og vökva.
Þekkir helstu íhluti kælikerfisins, s.s. þjöppur, eimsvala, eimara, þensluloka, geyma, rakasíur, stýriloka, þrýstirofa, hitaliða og rörlagnir.
Setur upp, annast viðhald og viðgerðir flutningskerfa, þ. á m. eru færibönd, þrýstiloftskerfi, efnislyftur, hráefnisdælur og fólksflutningalyftur.
Starfar samkvæmt viðhaldsstjórnunarkerfi og vinnur að endurbótum á viðhaldsferlum og framkvæmd viðhaldsverkefna.
Þekkir og kann á iðntölvustýringar og forritun iðntölva.
Notar mælitæki málmiðna með hliðsjón af nákvæmni og notkunarsviði, áhrifum hita á mælingar og áhrifum formbreytinga á mál smíðisgripa.
Notar rennibekki, bor-, snitt- og fræsivélar í starfi.
Notar algengustu tölvustýrðar (CNC-stýrðar) málmsmíðavélar og hefur vald á ferli frá teikniforriti til vélar. Notar teikniforrit til að teikna smíðateikningar.
Þekkir rekstur, skipulag og uppbyggingu fyrirtækja og stofnana í greininni og gerir grein fyrir hlutverki þeirra.
Þekkir lög og reglur um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Þekkir áhættumat og áhættugreiningu og fylgir öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir vinnustaði, m.a. með notkun á viðeigandi loftræsingu og öryggisbúnaði.
Sýnir fagmennsku og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Vinnur sjálfstætt, metur eigin getu og forgangsraðar viðfangsefnum, skilgreinir hvaða aðferðir eiga við hverju sinni og rökstyður þær aðferðir sem hann notar.
Tryggir öryggi og gerir viðeigandi varnarráðstafanir í málmiðnaði, þekkir eftirlitsstofnanir og hlutverk þeirra vegna eftirlits og öryggismála.
Þekkir lög og reglur um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Þekkir áhættumat og áhættugreiningu og fylgir öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir vinnustaði, m.a. með notkun á viðeigandi loftræsingu og öryggisbúnaði.
Þekkir grundvallaratriði sjálfbærni, vistvænar byggingar og umhverfisvernd og fylgir vistvænum viðmiðum við efnisval og framkvæmdir og reglum um meðferð og notkun hættulegra efna.
Er fær um að lesa og skilja gæðahandbók fyrirtækja og fara eftir henni og er fær um að leiðbeina öðrum, s.s. iðnnemum og neytendum um fagleg verkefni.
Sýnir fagmennsku og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Tileinkar sér snyrtimennsku og gengur vel um vinnustað sinn.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, er fær um að tileinka sér nýjungar og hagnýta þá þekkingu í starfi.
Tjáir sig af öryggi, munnlega og skriflega, s.s. með verkdagbókum, vinnuseðlum, skýrslum og gerð rekstrardagbóka.
Rafiðngreinar
Undir ráðið heyrir m.a. eftirfarandi:
Hljóðtæknir, lýsingartæknir, rafeindavélfræðingur (mechatronics er í þróun) og fleiri stéttir tæknifólks. Einnig námsbrautir fyrir löggiltar iðngreinar til sveinsprófs í rafeindavirkjun, rafveituvirkjun, rafvélavirkjun og rafvirkjun.
Starfalýsing
Rafvirki starfar við uppsetningu, viðhald, viðgerðir og eftirlit með raftækjum, rafkerfum og rafbúnaði til vinnslu og dreifingar á raforku. Hann vinnur á verkstæðum, í nýbyggingum, farartækjum á sjó og landi, heild-og raftækjaverslunum, orkufyrirtækjum, iðnfyrirtækjum og iðjuverum. Rafvirki setur upp og hefur eftirlit með raflögnum og rafbúnaði í samræmi við gildandi reglugerðir og staðla í byggingum, skipum og bátum. Hann hefur sérhæfða þekkingu á raflagnateikningum og getur magntekið og unnið verkáætlanir eftir þeim. Rafvirki notar viðeigandi mælitæki við störf sín og framkvæmir bilanaleit og viðgerðir á rafbúnaði. Hann þekkir vel til mismunandi raflagnaefnis og til hvers konar raftækja, rafvéla, iðntölvustýringa, stýribúnaðar og forritanlegra raflagnakerfa. Rafvirki býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt og getur leiðbeint öðrum.
Hæfnikröfur
Setur upp og hefur eftirlit með raflögnum og rafbúnaði í byggingum, skipum, bátum og raforkudreifikerfum, í samræmi við gildandi reglugerðir og staðla.
Annast viðhald rafvéla og raftækja ásamt nýlögnum og rekstri rafkerfa í farartækjum á sjó og landi.
Les raflagnateikningar vegna uppsetningar, bilanaleitar og viðhalds rafbúnaðar. Útskýrir virkni búnaðarins út frá teikningunum og magntekur og vinnur verkáætlanir eftir þeim.
Þekkir búnað raftækja, rafvéla, iðntölvustýringa, stýribúnaðar og forritanlegra raflagnakerfa og getur annast uppsetningu þeirra og viðhald.
Hefur grunnþekkingu á vélbúnaði og hugbúnaði tölvukerfa og þekkir helstu hugtök er varða lýsingartækni og getur ákvarðað lýsingarþörf við mismunandi aðstæður.
Notar viðeigandi mælitæki við störf sín og framkvæmir bilanaleit og viðgerðir á rafbúnaði og raflögnum.
Tryggir öryggi og viðhefur viðeigandi varnarráðstafanir í rafiðnaði og þekkir eftirlitsstofnanir og hlutverk þeirra vegna eftirlits og öryggismála.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, er fær um að tileinka sér nýjungar og hagnýta þá þekkingu í starfi.
Sýnir fagmennsku og siðferðisvitund og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Tjáir sig af öryggi, munnlega og skriflega, s.s. með verkdagbókum, vinnuseðlum og skýrslum.
Vinnur sjálfstætt, metur eigin getu og forgangsraðar viðfangsefnum, greinir hvaða aðferðir eiga við hverju sinni og rökstyður þær aðferðir sem hann notar.
Leiðbeinir öðrum, sýnir leikni í samstarfi og samskiptum við samstarfsfólk og tekur fullt tillit til þarfa viðskiptavina og aðstæðna.
Þekkir skipulag og uppbyggingu fyrirtækja og stofnana rafiðnaðarmanna og gerir grein fyrir hlutverki þeirra.
Starfalýsing
Rafvélavirki starfar við uppsetningu, viðhald, viðgerðir og eftirlit með rafbúnaði, til vinnslu og dreifingar á raforku, raftækjum og rafkerfum. Hann vinnur á verkstæðum, í nýbyggingum, farartækjum á sjó og landi, heild- og raftækjaverslunum, orkufyrirtækjum, iðnfyrirtækjum og iðjuverum. Rafvélavirki annast raflagnir og eftirlit með raflögnum og rafbúnaði í samræmi við gildandi reglugerðir og staðla í byggingum, skipum og bátum. Hann hefur sérhæfða þekkingu í lestri raflagna-, rafvéla- og sáturteikninga, skipuleggur og teiknar upp snúð- og sáturvöf og getur magntekið og unnið verkáætlanir eftir þeim. Rafvélavirki notar viðeigandi mælitæki við störf sín og framkvæmir bilanaleit og viðgerðir á rafbúnaði. Hann þekkir til hvers konar raftækja, rafvéla, iðntölvustýringa, stýribúnaðar og forritanlegra raflagnakerfa. Hann hefur haldgóða þekkingu á segulvöfum og vindingaaðferðum rafvéla og spenna, mótar og vindur snúð og sáturvindingar rafvéla og beitir mælitækjum sem leiða í ljós ástand þeirra. Hann kann skil á aðvörunarkerfum við aflvélar ásamt spennu- og hraðastýringum fyrir rafvélar. Rafvélavirki býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt og getur leiðbeint öðrum, hann vinnur ávallt samkvæmt gildandi öryggisstöðlum.
Hæfnikröfur
Annast raflagnir og eftirlit með raflögnum, rafvélum og rafbúnaði í byggingum og farartækjum á sjó og landi, í samræmi við gildandi reglugerðir og staðla.
Þekkir búnað og annast uppsetningu og viðhald hvers konar raftækja, rafvéla, iðntölvustýringa og stýribúnaðar á heimilum og í fyrirtækjum.
Veitir þjónustu og annast viðhald rafvéla og raftækja ásamt nýlögnum og rekstri rafkerfa í farartækjum á sjó og landi.
Les raflagna-og sáturteikningar vegna uppsetningar, bilanaleitar og viðhalds rafbúnaðar og útskýrir virkni búnaðarins út frá teikningunum.
Hann skipuleggur og teiknar upp snúð-og sáturvöf og magntekir og vinnur verkáætlanir út frá teikningunum. Þá mótar hann og vindur snúð-og sáturvöfrafvéla.
Hefur haldgóða þekkingu á segulvöfum og vindingaaðferðum rafvéla og spenna og þekkir vel spennustýringar og varnarbúnað rafvéla.
Hefur grunn tölvuþekkingu á vélbúnaði og hugbúnaði og þekkir helstu hugtök er varða lýsingartækni og getur reiknað út lýsingarþörf við mismunandi aðstæður.
Notar viðeigandi mælitæki við störf sín, framkvæmir bilanaleit og viðgerðir á rafbúnaði og raflögnum og ástandsskoðar snúð-og sáturvöf.
Tryggir öryggi og viðhefur viðeigandi varnarráðstafanir í rafiðnaði og þekkir eftirlitsstofnanir og hlutverk þeirra vegna eftirlits og öryggismála.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, er fær um að tileinka sér nýjungar og hagnýta þá þekkingu í starfi.
Sýnir fagmennsku og siðferðisvitund og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Hann tjáir sig af öryggi, munnlega og skriflega, s.s. með verkdagbókum, vinnuseðlum og skýrslum.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, er fær um að tileinka sér nýjungar og hagnýta þá þekkingu í starfi.
Sýnir fagmennsku og siðferðisvitund og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Þekkir skipulag og uppbyggingu fyrirtækja og stofnana rafiðnaðarmanna og gerir grein fyrir hlutverki þeirra.
Starfalýsing
Rafveituvirki starfar við uppsetningu, viðhald og viðgerðir lagna og búnaðar til flutnings og dreifingar raforku frá framleiðslu til notkunar. Hann starfar við lagningu flutnings-og dreifikerfa og eftirlit með þeim í samræmi við gildandi reglugerðir og staðla. Hann hefur sérhæfða þekkingu í lestri hönnunarteikninga og verklýsinga fyrir flutnings-og dreifikerfi og getur magntekið og unnið verkáætlanir eftir þeim. Rafveituvirki vinnur við háspennuvirki og lagningu háspennulagna bæði í lofti og jörð og þekkir vel til burðarþols og búnaðar er varðar lagningu þeirra. Hann notarviðeigandi mælitæki við störf sín og framkvæmir einfaldar bilanaleitir og viðgerðir í rafveitukerfum. Hann þekkir til rafbúnaðar, rafvéla, iðntölvustýringa og stýribúnaða sem snerta rafveitukerfi. Rafveituvirki býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt og getur leiðbeint öðrum. Hann þekkir til samskipta við landeigendur og umhverfismála, hann vinnur ávallt samkvæmt gildandi öryggisstöðlum.
Hæfnikröfur
Starfar við flutnings-og dreifikerfi í samræmi við gildandi reglugerðir og staðla og annast uppsetningu og viðhald hvers konar rafbúnaðar við flutnings-og dreifikerfi.
Gætir að burðarþoli og notkun rétts búnaðar við lagningu flutnings-og dreifikerfa í lofti og jörð.
Hann notar viðeigandi jarðbindingar og þekkir mikilvægi jarðbindikerfa.
Les hönnunarteikningar og verklýsingar vegna lagningar flutnings-og dreifikerfa og uppsetningu rafbúnaðar þeim tengdum.
Hann framkvæmir einfalda bilanaleit og viðheldur rafbúnaði og útskýrir virkni hans, magntekur og vinnur verkáætlanir.
Hefur grunn tölvuþekkingu á vélbúnaði og hugbúnaði og þekkir helstu hugtök er varða útilýsingu og þá tækni og vinnuaðferðir sem þar eiga við.
Notar viðeigandi mælitæki við störf sín og framkvæmir einfalda bilanaleit og viðgerðir í flutningsog dreifikerfum.
Tryggir öryggi og viðhefur viðeigandi varnarráðstafanir og varast hættur í vinnu við flutnings-og dreifikerfi í rekstri og í spennulausum kerfum.
Þekkir vel til áhættugreininga verka vegna vinnu við háspennuvirki og lagningu og rekstur lág-og háspennukerfa.
Þekkir afleiðingar rafmagnsslysa og getur brugðist við þeim. Hann þekkir eftirlitsstofnanir og hlutverk þeirra vegna eftirlits og öryggismála.
þekkir umhverfismál og viðeigandi umgengni um landið og samskipti við landeigendur. Hann staðsetur dreifi-og flutningskerfi samkvæmt kortum og GPS mælingum.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, er fær um að tileinka sér nýjungar og hagnýta þá þekkingu í starfi.
Sýnir fagmennsku og siðferðisvitund og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Hann tjáir sig af öryggi, munnlega og skriflega, s.s. með verkdagbókum, vinnuseðlum og skýrslum.
Vinnur sjálfstætt, metur eigin getu og forgangsraðar viðfangsefnum, greinir hvaða aðferðir eiga við hverju sinni og rökstyður þær aðferðir sem hann notar.
Leiðbeinir öðrum, sýnir leikni í samstarfi og samskiptum við samstarfsfólk og tekur fullt tillit til þarfa viðskiptavina og aðstæðna.
Þekkir skipulag og uppbyggingu fyrirtækja og stofnana rafiðnaðarmanna og gerir grein fyrir hlutverki þeirra.
Starfalýsing
Rafeindavirki starfar við uppsetningu, viðhald og viðgerðir rafeindatækja, fjarskiptakerfa og notenda-og tölvubúnaðar heimila, fyrirtækja og stofnana sem og rafeindabúnaðar farartækja í lofti, láði og legi. Hann notar viðeigandi mælitæki við störf sín og framkvæmir bilanaleit og viðgerðir á rafeindabúnaði. Hann hannar og teiknar, hermir, smíðar og forritar einfaldar rafeinda-og stýrirásir. Hann hefur haldgóða tölvuþekkingu á vélbúnaði, hugbúnaði og netbúnaði , hefur þekkingu á rafeinda-og fjarskiptalagnateikningum og getur magntekið og unnið verkáætlanir eftir þeim. Hann þekkir helstu aðferðir til útsendinga og móttöku á fjarskiptamerkjum bæði í leiðslum og lofti. Rafeindavirki býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt og getur leiðbeint öðrum, hann vinnur ávallt samkvæmt gildandi öryggisstöðlum.
Hæfnikröfur
Setur upp, stillir, og sinnir viðhaldi á rafeindatækjum í samræmvi við gildandi reglugerðir og staðla.
Hannar og teiknar, hermir, smíðar og forritar stýritölvur og iðnstýringar, einfaldar rafeindarásir og rafeindarásir sem tengja saman skynjara, örtölvur, mótora og önnur tæki.
Les og teiknar rafeinda-og fjarskiptalagnateikningar vegna uppsetningar, bilanaleitar og viðhalds rafbúnaðar. Útskýrir virkni búnaðarins út frá teikningunum, magntekur og vinnur verkáætlanir eftir þeim
Þekkir helstu aðferðir til útsendinga og móttöku á fjarskiptamerkjum bæði í leiðslum og lofti og sér um hönnun og uppsetningu fjarskiptakerfis í samræmi við gildandi reglugerðir og staðla.
Hefur haldgóða tölvuþekkingu á vélbúnaði, hugbúnaði og netbúnaði.
Notar viðeigandi mælitæki við störf sín og framkvæmir bilanaleit og viðgerðir í rafeindabúnaði og lögnum.
Tryggir öryggi og viðhefur viðeigandi varnarráðstafanir í rafiðnaði og þekkir eftirlitsstofnanir og hlutverk þeirra vegna eftirlits og öryggismála.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, er fær um að tileinka sér nýjungar og hagnýta þá þekkingu í starfi.
Sýnir fagmennsku og siðferðisvitund og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Hann tjáir sig af öryggi, munnlega og skriflega, s.s. með verkdagbókum, vinnuseðlum og skýrslum.
Vinnur sjálfstætt, metur eigin getu og forgangsraðar viðfangsefnum, greinir hvaða aðferðir eiga við hverju sinni og rökstyður þær aðferðir sem hann notar.
Leiðbeinir öðrum, sýnir leikni í samstarfi og samskiptum við samstarfsfólk og tekur fullt tillit til þarfa viðskiptavina og aðstæðna.
Þekkir skipulag og uppbyggingu fyrirtækja og stofnana rafiðnaðarmanna og gerir grein fyrir hlutverki þeirra.
Starfalýsing
Símsmiður starfar við lagningu og tengingar fjarskiptastrengja og tengir við endabúnað í símstöð og í götuskáp ásamt því að tengja upp inntakskassa og þaðan inn í hýbýli manna. Hann leggur fjarskiptastrengi innanhúss og tengir við allan almennan notendabúnað. Hannannast bilanaleit og viðgerðir á strengjum bæði utan-og innanhúss. Þá annast hann uppsetningu og viðhald á möstrum og fjarskiptabúnaði til sendinga í lofti. Símsmiður getur sett saman fjarskiptastrengi og tengt við endabúnað samkvæmt stöðlum og verkblöðum og tengt fjarskiptaveitu við húsveitu. Hann getur unnið við uppbyggingu og rekstur tengivirkja í símstöðvum. Símsmiðurannast fjarskiptalagnir og og fjarskiptabúnaði og hefur eftirlit með þeim í samræmi við gildandi reglugerðir og staðla. Símsmiður notar viðeigandi mælitæki við störf sín og framkvæmirbilanaleit og viðgerðir á fjarskiptalögnum og búnaði. Símsmiður hefur sérhæfða þekkingu á fjarskiptalagnateikningum og getur magntekið og unnið verkáætlanir eftir þeim. Símsmiður býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt og getur leiðbeint öðrum. Hann þekkir til samskipta við landeigendur og umhverfismála og getur staðsett lagnir út frá kortum og GPS mælingum, hann vinnur ávallt samkvæmt gildandi öryggisstöðlum.
Hæfnikröfur
Veitir þjónustu og annast viðhald á fjarskiptabúnaði,lögnum og rekstri fjarskiptakerfa og annast uppsetningu og viðhald á möstrum og fjarskiptabúnaði til sendinga í lofti.
Setur saman fjarskiptastrengi og tengir við endabúnað bæði innan-og utanhúss, tengir fjarskiptaveitu við húsveitu og setur upp og tengir fjarskiptabúnað í inntaks-og dreifiskápum.
Vinnur við uppbyggingu og rekstur tengivirkja í símstöðvum, hvort sem um er að ræða kopar-eða ljóstengigrindur. Annast og hefur eftirlit með fjarskiptalögnum og fjarskiptabúnaði í samræmi við gildandi reglugerðir og staðla.
Les fjarskiptalagnateikningar vegna uppsetningar, bilanaleitar og viðhalds fjarskiptabúnaðar.
Útskýrir virkni búnaðar útfrá teikningum, magntekur og vinnur verkáætlanir eftir þeim.
Hefur grunn tölvuþekkingu á vélbúnaði og hugbúnaði og sérhæfða þekkingu á tölvu-og hugbúnaði sem tilheyrir fjarskiptabúnaði. Hann hefur haldgóða þekkingu á símkerfum bæði hliðrænum og stafrænum.
Notar viðeigandi mælitæki við störf sín og framkvæmir bilanaleit og viðgerðir á fjarskiptabúnaði og fjarskiptalögnum.
Tryggir öryggi og viðhefur viðeigandi varnarráðstafanir í rafiðnaði og þekkir eftirlitsstofnanir og hlutverk þeirra vegna eftirlits og öryggismála.
Þekkir umhverfismál og viðeigandi umgengni um landið og samskipti við landeigendur. Hann staðsetur fjarskiptalagnir samkvæmt kortum og GPS mælingum.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, er fær um að tileinka sér nýjungar og hagnýta þá þekkingu í starfi.
Sýnir fagmennsku og siðferðisvitund og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Hann tjáir sig af öryggi, munnlega og skriflega, s.s. með verkdagbókum, vinnuseðlum og skýrslum.
Vinnur sjálfstætt, metur eigin getu og forgangsraðar viðfangsefnum, greinir hvaða aðferðir eiga við hverju sinni og rökstyður þær aðferðir sem hann notar.
Leiðbeinir öðrum, sýnir leikni í samstarfi og samskiptum við samstarfsfólk og tekur fullt tillit til þarfa viðskiptavina og aðstæðna.
Þekkir skipulag og uppbyggingu fyrirtækja og stofnana rafiðnaðarmanna og gerir grein fyrir hlutverki þeirra.
Samgöngu-, farartækja- og flutningsgreinar
Starfalýsing
Bifreiðasmiður annast réttingar, viðgerðar og mælinga á burðarvirki og yfirbyggingu hvers kyns ökutækja s.s. fólksbifreiða, vörubifreiða. Bílasmiðir starfa m.a. á réttingar-, og málningarverkstæðum. Í starfinu felst einnig að vinna eftir viðgerðarleiðbeiningum/tækniupplýsingum og verkferlum framleiðenda hvers ökutækis sem unnið er í hverju sinni. Bílasmiður hefur sérhæfða þekkingu á til að ástandsmeta og gera kostaðaráætlun á ökutæki og eftirvagna eftir tjón.
Bifreiðamiður býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt og getur leiðbeint öðrum.
Hæfnikröfur
Meðhöndlar og sér um umskipti á límdum rúmum bílsins.
Þekkir rekstur, skipulag og uppbyggingu fyrirtækja, þekkir stofnanir í greininni og gerir sér grein fyrir hlutverki þeirra.
Réttir, metur og lagfæri burðavirki og mælir í réttingabekkjum.
Fylgir kröfum um umhverfisvernd, flokkar, skilar og sýnir ábyrga umhverfisvitund í starfi.
Meðhöndla fylliefni/viðgerðarefni fyrir frágang verka.
Gerir kostnaðaráætlun áður en viðgerð og viðhaldsvinna hefst samkvæmt tjónamatskerfi.
Hefur til hliðsjónar við verk sín að gæta þarf umferðarlaga, við ásetningu eða breytingar á gerð og búnaði ökutækja.
Lagfærir og réttir skemmdir og slit á yfirbyggingu bifreiða.
Vinnur með og skiptir út öryggisbúnaði, loftpúða, öryggisbelti og búnaði honum tengt.
Lagað og skiptir um innréttingar, sæti og aðra íhluti í ökutækjum.
Gerir við plast og hefur þekking á meðhöndlun þess.
Tekur í sundur og setur saman íhluti s.s bretti, hurðir og stuðara og fl.
Ástandsmetur og útfærir viðgerð á burðavirki og yfirbyggingu allra helstu gerða ökutækja og eftirvagna.
Vinnur að bilanagreiningu, viðhaldi og stillingu (kvörðun) öryggisskynjara ökutækja sem og búnaðar sjálfökuhæfra ökutækja.
Annast viðgerð á ökutækjum samkvæmt viðgerðarleiðbeiningum framleiðanda.
Á góð samskipti við samstarfsmenn og viðskiptavini og hefur tileinkað sér kurteisi, snyrtimennsku, þjónustulund og umburðarlyndi.
Skráir vinnuskýrslu og verklýsingu, meðal annars í ferilskrá ökutækis og heldur bókhald þannig að sjá megi jafn óðum hver staða verkefnis er miðað við kostnaðaráætlun.
Ráðleggur viðskiptavinum um mögulegar viðgerðir út frá öryggi og hagkvæmni en tekur jafnframt tillit til óska þeirra eins og skylt er samkvæmt lögum um neytendavernd.
Fylgir lögum um vinnuvernd, tryggir öryggi sitt og annarra á vinnustað, er fær um að beita skyndihjálp í kjölfar slyss eða óhapps.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, er fær um að tileinka sér nýjungar og hagnýta þá þekkingu í starfi.
Vinnur á öruggan hátt í háspenntum ökutækjum eftir leiðbeiningum framleiðanda.
Sýnir fagmennsku og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Þekkir og getur unnið eftir gæðakerfi.
Starfalýsing
Bifvélavirki annast skoðun, viðhald, viðgerðir og bilanaleit á hvers kyns ökutækjum s.s. fólksbifreiðum, vörubifreiðum, vinnuvélum. Orkugjafar ökutækjanna eru fjölbreyttir s.s. bensín, dísil, gas og raforka. Hann vinnur aðallega á bifreiðaverkstæðum, skoðunarstöðvum, véla og tækjaverkstæðum, lager og varahlutasölum eða skyldum vinnustöðum. Vegna örra tæknibreytinga í greininni hefur bifvélavirki til hliðsjónar upplýsingar framleiðanda, skoðunarhandbók, reglugerðir um gerð og búnað ökutækja og umferðarlög hverju sinni. Bifvélavirki hefur sérhæfða þekkingu á virkni hverskyns vél- og rafbúnaði ökutækja. Bifvélavirki notar viðeigandi mælitæki og verkfæri við störf sín, framkvæmir bilanaleit og viðgerðir. Hann býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt og getur leiðbeint öðrum.
Hæfnikröfur
Metur, greinir og lagfærir allar algengustu bilanir helstu gerða ökutækja, vinnuvéla og eftirvagna.
Gerir við eða skiptir um slitna eða bilaða hluti í helstu gerðum ökutækja, vinnuvéla og eftirvagna ásamt því að framkvæma reglulegar ábyrgðar og viðhaldsskoðanir til að tryggja endingu ökutækis.
Hefur umferðaröryggi, ástand, útlit og notagildi ökutækisins að leiðarljósi í viðgerðum.
Hefur til hliðsjónar við verk sín umferðarlög, lög og reglugerðir um hættuleg efni og vinnubrögð og um gerð og búnað ökutækja.
Ráðleggur viðskiptavinum um mögulegar viðgerðir út frá öryggi og hagkvæmni en tekur jafnframt tillit til óska þeirra eins og skylt er samkvæmt lögum um neytendavernd.
Gerir kostnaðaráætlun áður en viðgerð og viðhaldsvinna hefst. Skráir vinnuskýrslu og verklýsingu, meðal annars í ferilskrá ökutækis og heldur bókhald þannig að sjá megi jafn óðum hver staða verkefnis er miðað við kostnaðaráætlun.
Getur leyst verkefni sín með aðstoð tækni og viðgerðarupplýsinga framleiðenda á íslensku og ensku.
Vinnur á öruggan hátt í háspenntum ökutækjum.
Vinnur að bilanagreiningu, viðhaldi og stillingu (kvörðun) öryggisskynjara ökutækja sem og búnaðarsjálfökuhæfra ökutækja.
Uppfyllir kröfur opinberra aðila um kvörðun tækja, hæfni og vottun við vinnu með sérhæfðan búnað.
Fylgir kröfum um umhverfisvernd, flokkar, skilar og sýnir ábyrga umhverfisvitund.
Á góð samskipti við samstarfsmenn og viðskiptavini og hefur tileinkað sér kurteisi, snyrtimennsku, þjónustulund og umburðarlyndi.
Þekkir rekstur, skipulag og uppbyggingu fyrirtækja, þekkir stofnanir í greininni og gerir sér grein fyrir hlutverki þeirra.
Fylgir lögum um vinnuvernd, tryggir öryggi sitt og annarra á vinnustað, er fær um að beita skyndihjálp í kjölfar slyss eða óhapps.
Þekkir og getur unnið eftir gæðakerfi.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, er fær um að tileinka sér nýjungar og hagnýta þá þekkingu í starfi.
Sýnir fagmennsku og siðferðisvitund og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Starfalýsing
Bílamálari annast undirbúnings hvers kyns ökutækja s.s. fólksbifreiða, vörubifreiða, vinnuvéla fyrir sprautun. Þá sprautar bílamálari ökutæki og hefur til hliðsjónar við störf sín fyrirmæli framleiðanda ökutækja og framleiðenda málningar- og fylliefna og nýjustu tækni í bílamálun. Hannar uppdrátt og teiknar merkingar á ökutæki. Bílamálari býr yfir sérþekkingu á efnisfræði og litafræði. Vinnustaður bílamálara er bílasprautunar-, réttinga- eða bifreiðaverkstæði, eða skyldir vinnustaðir.
Bílamálari býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt og getur leiðbeint öðrum.
Hæfnikröfur
Metur og útfærir bílamálun miðað við fyrirmæli framleiðanda ökutækja og framleiðenda málningarog fylliefna ásamt nýjustu tækni í bílamálun.
Annast viðgerðir og viðhald hvers kyns ökutækja og hluta þegar beita þarf málunartækni bílamálara.
Vinnur á öruggan hátt í háspenntum ökutækjum ásamt ökutækjum á öðrum nýjum orkugjöfum.
Blandar lit eftir forskrift og skönnun. Getur aðlagað lit að undirlagi.
Undirbýr ökutæki fyrir viðgerð og sinnir frágangi að viðgerð lokinni.
Umgengst efni í með tilliti til eiginleika, gæða og heilsufarslegra áhrifa þeirra.
Hefur til hliðsjónar við verk sín umferðarlög, lög og reglugerðir um hættuleg efni og vinnubrögð og lög og reglugerðir um gerð og búnað ökutækja.
Leysir verkefni með aðstoð tækni og viðgerðarupplýsinga framleiðenda á íslensku og ensku.
Fylgir kröfum um umhverfisvernd, flokkar, skilar og sýnir ábyrga umhverfisvitund.
Ráðleggur viðskiptavinum um mögulegar viðgerðir út frá öryggi og hagkvæmni en tekur jafnframt tillit til óska þeirra eins og skylt er samkvæmt lögum um neytendavernd.
Gerir kostnaðaráætlun áður en viðgerð og viðhaldsvinna hefst.
Skráir vinnuskýrslu og verklýsingu, meðal annars í ferilskrá ökutækis og heldur bókhald þannig að sjá megi jafn óðum hver staða verkefnis er miðað við kostnaðaráætlun.
Á góð samskipti við samstarfsmenn og viðskiptavini og hefur tileinkað sér kurteisi, snyrtimennsku, þjónustulund og umburðarlyndi.
Þekkir rekstur, skipulag og uppbyggingu fyrirtækja, þekkir stofnanir í greininni og gerir sér grein fyrir hlutverki þeirra.
Fylgir lögum um vinnuvernd, tryggir öryggi sitt og annarra á vinnustað, er fær um að beita skyndihjálp í kjölfar slyss eða óhapps.
Þekkir og getur unnið eftir gæðakerfi.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, er fær um að tileinka sér nýjungar og hagnýta þá þekkingu í starfi.
Sýnir fagmennsku og siðferðisvitund og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Annast viðhald og umhirðu áhalda og tækja.
Sjávarútvegs- og siglingagreinar
Starfslýsing
Sá sem lokið hefur skipstjórnarnámi C hefur, að öðrum skilyrðum uppfylltum, öðlast rétt til þess að fá útgefið atvinnuskírteini til skipstjórar sem veitir réttindi: Til að gegna stöðu yfirstýrimanns og skipstjóra á fiskiskipum og öðrum skipum án takmarkana í stærð eða farsviði. Til að gegna stöðu undirstýrimanns á farþega- og flutningaskipum án takmarkana í stærð og farsviði, ( skírteini STCW II/1). Til að gegna stöðu yfirstýrimanns og skipstjóra á farþega- og flutningaskipum allt að 3000 brúttótonn, (skírteini STCW II/2 (3000 BT))
Skipstjóri hefur í öllum efnum æðsta vald á skipi. Stýrimenn og aðrir í áhöfn eru skipstjóra til aðstoðar við siglingu skips og sinna þeim störfum sem skipstjóri felur þeim. Yfirstýrimaður gegnir hlutverki skipstjóra í fjarveru skipsstjóra og stendur siglingavakt á móti skipstjóra. Hann skal annast um að skip sé haffært og að það sé vel útbúið, þ.e. nægilega vel mannað, búið vatni og vistum til fyrirhugaðrar ferðar og öryggisbúnaði í samræmi við þau ákvæði í lögum og reglugerðum sem um hann gilda. Skipstjóri skal sjá um að stöðugleiki skips sé á hverjum tíma fullnægjandi og að skip sé ekki ofhlaðið, að öll viðeigandi skírteini séu í gildi og að lögboðnar skoðanir á skipi fari fram. Hann skipuleggur siglingu skips og tekur ákvarðanir um siglingaleið, stefnu og siglingalag á hverjum tíma með aðstoð siglingatækja og sjókorta, auk fiskileitartækja þegar það á við. Hann gefur stýrimönnum fyrirmæli um siglinguna, gætir þess að siglingareglum sé fylgt og að tímaáætlanir standist. Hann stjórnar skipi í neyðartilvikum, þegar nákvæmni er þörf vegna veðurfars eða hafstrauma, þegar lagst er að bryggju og við siglingu á erfiðum og/eða fjölförnum siglingaleiðum. Skipstjóri ber ábyrgð á fjarskiptum, á meðferð hættulegra efna og á að viðeigandi ákvæðum um varnir gegn mengun sjávar og stranda og um umhverfisvernd sé fullnægt.
Skipstjóri annast um að tryggilega sé gengið frá farmi, annast um farþega og þau ökutæki sem tekin eru til flutnings. Honum ber að sjá um að áhöfn og farþegum sé leiðbeint um aðgerðir á neyðarstundu og að framkvæmdar séu æfingar í viðbrögðum við neyðarástandi í samræmi við reglur. Skipstjóri samræmir störf skipverja, sér til þess að skráðar séu skipsdagbækur og sér um að koma sjúkum skipverjum undir læknishendur. Hann velur fiskimið og skipuleggur veiðar í samræmi við aflaheimildir, lög og reglur um veiðar og veiðisvæði. Skipstjóri hefur umsjón með fermingu og affermingu skips og ber ábyrgð á réttri hleðslu þess og stöðugleika miðað við fyrirhugaða siglingu. Hann er tengiliður milli útgerðar og skipverja og gætir hagsmuna beggja, annast samskipti við hafnaryfirvöld og eftirlitsyfirvöld. Skipstjóri annast ráðningar og lögskráningu skipshafnar og gætir þess að skipverjar hafi tilskilin réttindi, ber ábyrgð á velferð skipverja og aðbúnaði, að skip sé haffært og lögboðnir pappírar þess séu í gildi. Skipstjóri vinnur ávallt samkvæmt gildandi öryggisstöðlum. Skipstjóri ber ábyrgð á öllum rekstri skipsins gagnvart útgerðaraðila, farm- eða aflaeigendum og stjórnvöldum, þ.m.t. siglingu skips, störfum allra skipverja, meðhöndlun farms eða afla, velferð farþega, viðhaldi skips, ástandi öryggismála um borð og þjálfun áhafnar. Hann ber einnig ábyrgð á ástandi og lögmæti veiðarfæra fiskiskips, velur fiskimið og skipuleggur veiðarnar svo þær samræmis aflaheimildum.
Sá sem öðlast atvinnuréttindi til samræmis við skipstjórn C fullnægir hæfniskröfum sem gerðar eru til skipstjórnarmanns samkvæmt starfalýsingu fyrir skipstjórn A og B stigs .Fullnægir að auki eftirfarandi hæfnikröfum umfram þær sem gerðar eru samkvæmt skipstjórn A og B stigs:
Hæfnikröfur
Siglir skipi, af þeirri stærð og gerð sem réttindi hans ná til af öryggi, semur og fylgir siglingaáætlun, fer að siglingareglum og öðrum þeim reglum sem ná yfir siglingu skipsins á farsviði þess.
Tekur ákvarðanir sem við eiga um skipið, siglingu þess og áhöfn með tilliti til gildandi laga og reglugerða.
Tekur tillit til og tileinkar sér góða umgengni um hafið og aflann sem dreginn er úr sjó.
Semur siglingaáætlun og notar til þess þær siglingafræðilegu upplýsingar sem við eiga með hliðsjón af fyrirhugaðri ferð skipsins.
Beitir þekkingu sinni til þess að viðhalda tryggu öryggisstigi um borð t.d. með viðeigandi aðferðum öryggisstjórnunar og með markvissum björgunaræfingum um borð.
Þekkir til hlutverks eftirlitsstofnana og skyldu skipstjóra gagnvart hlutverki þeirra.
Sýnir fagmennsku og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins/skipsins.
Tjáir sig af öryggi, munnlega og skriflega s.s. með siglingadagbókum og aflaskýrslum.
Getur reiknað út stöðugleika skips og séð til þess að skipið uppfylli stöðugleikakröfur með tilliti til m.a. umhverfisþátta og við þyngdartilfærslur innan skipsins.
Þekkir uppbyggingu og virkni vél- og rafbúnaðar skipsins, þekkja þau áhrif og afleiðingar sem bilanir í vél- og tækjabúnaði skipsins geta haft og um þann vara- eða neyðarbúnað sem skipið skal búið í samræmi við reglur.
Getur brugðist á viðeigandi hátt við bilunum á vél- og tækjabúnaði skipsins.
Þekkir uppbyggingu og virkni fjarskiptatækja um borð.
Reiknar út stöðugleika skips og tryggir að skipið uppfylli stöðugleikakröfur með tillliti til m.a. umhverfisþátta og við þyngdartilfærslur innan skipsins og með tilliti til álags á skipsbolinn.
Þekkir uppbyggingu og virkni vél- og rafbúnaðar skipsins, þekkir þau áhrif og afleiðingar sem bilanir í vél- og tækjabúnaði skipsins geta haft og þekkja þann vara- eða neyðarbúnað sem skipið skal búið í samræmi við reglur.
Hefur kynnt sér til hlítar lög og reglur um stjórn fiskveiða
Getur beitt stjórnunarþekkingu til þess að stýra vinnu áhafnar.
1.17. Þekkir lög og reglur sem eiga við í alþjóðlegum siglingum varandi skipið, siglingu þess og áhöfn.
Þekkir uppbyggingu og virkni vél- og rafbúnaðar skipsins.
Nýtir af öryggi ARPA ratsjá við siglingu skipsins.
Bregst á viðeigandi hátt við bilunum á vél- og tækjabúnaði skipsins.
Nýtir af öryggi rafrænt sjókorta og upplýsingakerfi ECDIS
Kann að gera siglingaráætlanir vegna langsiglinga.
Getur beitt kunnáttu sinni við færslur í leiðarbók og við gerð siglingarskýrsla.
Þekkir flokkunarkerfi fyrir flutning á hættulegum farmi og þær ráðstafanir sem þarf að viðhafa við slíkan flutning.
Sinnir öllum fjarskiptum og notar fjarskiptabúnað skipsins.
Reiknar út stöðugleika skipsins og sér til þess að skipið uppfylli stöðugleika- og hleðslukröfur og leggur mat á hvort og hvenær hætta sé á að skip verði ofhlaðið.
Beitir aðferðum og úrlausnum í anda sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgja vistvænum viðmiðum í starfi.
Beitir samskiptafærni til að geta átt farsæl samskipti við einstaklinga með ólíkar þarfir og hefur færni til að takast á við erfið samskipti í starfi.
Beitir þeim veiðarfærum sem skipið er útbúið.
Nýtir þau siglinga- og fiskileitartæki sem skipið er búið með markvissum hætti.
Beitir þekkingu sinni til þess að velja viðeigandi veiðislóð eftir því sem við á hverju sinni.
Beitir aðferðum við að hafa stjórn á farþegum á neyðarstundu og veitir áhöfn fullnægjandi þjálfun við að takast á við slíkar aðstæður.
Beitir stjórnunarþekkingu til þess að skipuleggja og stýra vinnu áhafnar.
Siglir skipi með aðgæslu við erfiðar og þröngar aðstæður svo sem innan hafnar.
Vinnur eftir gæðaviðmiðum, þekkir til vinnuverndar og öryggisferla á skipum og bregst rétt við neyðaraðstæðum sem upp geta komið um borð.
Beitir faglegri þekkingu til þess að skipuleggja siglingu, veiðar og vinnu um borði í skipinu.
Er fær um að veita skyndihjálp ef slys, veikindi eða óhöpp ber að höndum.
Beitir færni í að greina veðurskilyrði, þekkir þær hættur sem skapast geta á siglingu skipsins vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi ógnar og bregst við með viðeigandi hætti hverju sinni.
Tryggir öryggi skips, áhafnar, farms og farþega og beitir viðeigandi varnarráðstöfunum á skipinu hverju sinni.
Þekkir reglur um framkvæmd eftirlits og um viðbrögð þegar að slys eða óhöpp verða umborð.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, er fær um að tileinka sér nýjungar og hagnýta þá þekkingu í starfi.
Vinnur eftir gæðaviðmiðum, gerir sér grein fyrir mikilvægi öryggisvarna, þekkir til helstu orsaka vinnuslysa og þeirra reglna sem gilda um vinnuvernd, m.a. um rétta líkamsbeitingu.
Skrifstofu- og verslunargreinar
Starfalýsing
Verslunarfagmaður er með djúpa þekkingu á þjónustu og viðskiptum og vinnur almennt undir stjórn verslunarstjóra eða sambærilegs stjórnanda í verslun. Hann þarf að þekkja meginlínur í stefnu fyrirtækis, daglegar áherslur og þekkja vöruframboð verslunarinnar. Verslunarfagmaður þarf að hafa sérhæfða fagþekkingu allt eftir tegund verslunar. Verslunarfagmaður hefur umsjón með skilgreindum verkefnum, hann sinnir víðtækri þjónustu við viðskiptavini verslunar og hefur umsjón með sínum hluta verslunarinnar. Í sínu daglega starfi þarf hann að geta brugðist við óvæntum aðstæðum. Verslunarfagmaður veitir óreyndari starfsmönnum stuðning og leiðbeinir þeim eftir atvikum og getur jafnframt haft umsjón með almennu starfsfólki á sínu sviði.
Hæfnikröfur
Þjónustar og á í samskiptum við viðskiptavini (sala, ráðgjöf, úrlausn kvartana, eftirkaupaþjónusta, tilboðsgerð o.s.frv.). Tekur við ábendingum og hugmyndum frá viðskiptavinum og starfsfólki og leysir úr viðfangsefnum sem upp koma. Þekkir hvað er mikilvægt fyrir neytendur og getur sett sig í sporþeirra.
Afgreiðir á kassa og þjónustar í verslun (móttaka greiðslu, uppgjör, peningaumsýsla)
Annast framsetningu á vöru (áfylling, árstíðabundin framsetning, verðmerking, þjófamerking)
Hefur umsjón með húsnæði og búnaði (fylgir eftir öryggisreglum fyrirtækis, fylgir verkferlum við opnun og lokun, þrif og tiltekt, innkaup á rekstrarvörum)
Annast birgðahald (útskráning vara (útrunnar/gallaðar), innra eftirlit, pöntun á vörum, sölugreiningu, eftirlit með vörubirgðum/vöruafhendingu). Hefur grunnþekkingu í birgðarstjórnun.
Hefur umsjón með starfsmönnum (samskipti og miðlun upplýsinga til samstarfsfólks, hvetur og leiðbeinir öðrum starfsmönnum, getur séð um skipulagningu mönnunar, hefur auga með frammistöðu starfsmanna). Getur leiðbeint öðrum í verkefnum og útdeilt verkefnum, þjálfað og stutt við annað starfsfólk. Getur séð um viðveruskráningu/aðstoðað við vaktaskipulag þegar við á.
Annast samskipti við aðrar deildir, birgja, verktaka o.s.frv. Er fær um að eiga jákvæð samskipti og takast á við erfið samskipti við viðskiptavini og aðra.
Fylgist með daglegum áætlunum og getur greint helstu rekstrartölur. Hefur grunnþekkingu í fjármálalæsi og bókfærslu.
Fylgist daglega með áætlunum sem snúa að markaðsmálum og fylgir þeim eftir. Hefur grunnþekkingu í markaðslæsi.
Þekkir og getur fljótt tileinkað sér tölvukunnáttu sem felst í upplýsingakerfum verslunar og þekkir til stafrænna miðla.
Þekkir til hagnýtra leiða til að lágmarka rýrnun á vörum.
Er leiðandi afl á vinnustað við framkvæmd á verkefnum sem liggja fyrir hverju sinni.
Er á varðbergi gagnvart þjófnaði og getur brugðist við honum á viðeigandi hátt. Áttar sig á grunsamlegu og/eða óviðeigandi athæfi í verslun.
Getur leyst yfirmann af (deildarstjóra/verslunarstjóra) og hefur almenna þekkingu til að byggja á, við stjórnun verslunar.
Snyrtigreinar
Starfalýsing
Hársnyrtir klippir, litar, formar, mótar, greiðir, blæs, setur permanent og varanlega sléttun í hár og klippir og rakar skegg. Hársnyrtir útfærir hár beggja kynja – allt óháð hárlengd, hárgerð og höfuðlagi. Hann velur vörur og áhöld og útfærir þjónustu á faglegum forsendum og miðar við þarfir og óskir viðskiptavina. Hann vinnur sjálfstætt en getur átt samvinnu við aðrar faggreinar um skipulag og samþættingu verkefna er varða hár og tísku, til dæmis í leikhúsi, sjónvarpi og sýningar. Hársnyrtir fer að lögum og reglum í starfi sínu og hefur tileinkað sér þjónustulund og fagvitund byggða á siðferðilegum grunni. Hann umgengst efni og áhöld með hliðsjón af öryggis- og varúðarráðstöfunum. Hann er virkur í faglegu starfi og hefur hæfni til að kynna sig og verk sín. Þekkir helstu atvinnusjúkdóma og leiðir til vinnuverndar. Hann tekur þátt í skipulagningu og kennslu nema á vinnustað.
Hæfnikröfur
Veitir persónulega ráðgjöf um meðferð og umhirðu hárs, hársvarðar, skeggs og notkun á hársnyrtivörum.
Tekur mið af andlitsfalli, líkamsbyggingu og persónuleika viðskiptavinar þegar þjónusta er veitt og tekur jafnframt fullt tillit til óska hans.
Greinir hár, hársvörð, getur vísað viðskiptavini til meðferðar hjá öðrum sérfræðingum í samræmi við eigin greiningu (frábending), þvær hár og hefur vald á mismunandi nuddaðferðum.
Hefur vald á öllum klippiformunum og margskonar klippitækni fyrir dömur og herra.
Þekkir og beitir mismunandi aðferðum við permanent, sléttun, litun og litatækni.
Formar, klippir og rakar skegg.
Hefur kunnáttu á efnafræðilegum áhrifum og almennri meðhöndlun kemískra efna í
hársnyrtiiðn.
Framkvæmir mismunandi útfærslur á blæstri og hárgreiðslum (dag-, kvöld-, brúðar-, gala-, tímabilagreiðslur og bylgjur).
Velur vörur og meðferð út frá faglegri þekkingu sinni og eiginleikum hárs.
Þekkir sögu hársnyrtigreinarinnar og síbreytilega tísku í aldanna rás, fylgist með tískustraumum og getur tileinkað sér þá.
Teiknar og útbýr verklýsingu í máli og myndum og vinnur eftir sinni eigin og annarra.
Þekkir og fer eftir lögum og reglugerðum um hreinlæti, sóttvarnir öryggi, vinnuvernd, forvarnir, réttindi og skyldur í hársnyrtiiðn.
Er fær um að veita aðstoð í bráðatilfellum og skyndihjálp ef slys eða óhöpp ber að höndum.
Þekkir leiðir til sjálfbærni, lög og reglugerðir um umhverfisvernd, þekkir umhverfisvænar vörur og leiðir til að öðlast viðurkenningu sem umhverfisvænn hársnyrtir.
Sýnir viðskiptavinum, samstarfsfólki og umhverfi virðingu.
Er meðvitaður um mikilvægi þjónustulundar fyrir vinnustaðinn, og hefur tileinkað sér fagtengdar siðareglur, gætir trúnaðar í hvívetna og þekkir lög um persónuvernd.
Hefur færni í notkun upplýsingatækni tengt störfum í hársnyrtiiðn.
Vinnur eftir gæðaviðmiðum, þekkir mikilvægi öryggisvarna, helstu orsakir vinnuslysa og þær reglur sem gilda um vinnuvernd, m.a. um rétta líkamsbeitingu.
Starfalýsing
Snyrtifræðingur hreinsar, nuddar og snyrtir andlit, hendur, fætur og líkama. Hann fjarlægir hár, litar augnhár og augabrúnir, farðar og setur á gervineglur og naglaskraut. Hann velur vörur og áhöld og gerir áætlun um meðferð á faglegum forsendum en miðar einnig við þarfir og óskir viðskiptavina. Snyrtifræðingur fer að lögum og reglum í starfi sínu og sýnir fagleg vinnubrögð byggð á siðferðilegum grunni. Hann umgengst efni og áhöld með hliðsjón af öryggis- og varúðarráðstöfunum. Hann tekur þátt í skipulagningu og kennslu snyrtifræðinema á vinnustað.
Hæfnikröfur
Greinir húð í andliti og á líkama, yfirborðs- og djúphreinsar og setur á andlitsmaska.
Veitir sænskt nudd og spa-meðferðir, þekkir ilmolíur og notkun þeirra.
Fjarlægir andlits- og líkamshár.
Mótar og litar eða fjarlægir lit á augnhárum og augabrúnum og blandar liti og vetnisperoxíð.
Beitir viðeigandi aðferðum og meðferðum við hand- og fótsnyrtingar.
Farðar fyrir mismunandi tilefni með persónulegar þarfir viðskiptavina að leiðarljósi. Hefur tileinkað sér litafræði og þekkir sögu förðunar.
Þekkir eiginleika fagtengdra efna, beitir hitameðferð og notar viðeigandi rafmagnstæki.
Gætir varúðar við meðferð og notkun efna og áhalda.
Hefur grunnþekkingu á lífeðlisfræðilegri uppbyggingu handa, fóta, hárs og vöðva, húðsjúkdómum og ofnæmisviðbrögðum og þekkir einkenni sykursýki 1 og 2.
Útskýrir árangur meðferðar fyrir viðskiptavini og veitir ráðgjöf um framhalds- og eftirmeðferð. Vísar viðskiptavini til meðferðar hjá öðrum sérfræðingum í samræmi við eigin greiningu (frábending).
Er fágaður í framkomu og nærgætinn, veitir persónulega þjónustu í samræmi við greiningu á þörfum viðskiptavinar hverju sinni en tekur jafnframt fullt tillit til óska hans.
Þekkir og fer eftir lögum og reglugerðum um hreinlæti, sóttvarnir öryggi, vinnuvernd, forvarnir, réttindi og skyldur í snyrtifræði.
Er fær um að veita aðstoð í bráðatilfellum og skyndihjálp ef slys eða óhöpp ber að höndum.
Er meðvitaður um mikilvægi þjónustulundar fyrir vinnustaðinn, og hefur tileinkað sér fagtengdar siðareglur, gætir trúnaðar í hvívetna og þekkir lög um persónuvernd.
Er sjálfstæður í vinnubrögðum og ber ábyrgð á eigin verkum.
Hefur færni í notkun upplýsingatækni tengt störfum snyrtifræðings.
Vinnur eftir gæðaviðmiðum, þekkir mikilvægi öryggisvarna, helstu orsakir vinnuslysa og þær reglur sem gilda um vinnuvernd, m.a. um rétta líkamsbeitingu.
Umhverfis- og landbúnaðargreinar
Starfalýsing
Skrúðgarðyrkjufræðingur starfar við nýframkvæmdir og viðhald í görðum og á opnum svæðum auk þess að veita ráðgjöf um garðplöntur og garðrækt. Nýframkvæmdir telja m.a. hellulagnir, kantsteinalagnir, hleðslur, gerð grasflata, beða og annarra grænna svæða auk útplöntunar, uppsetningu leiktækja, lagningu fallvarnarefna og gerð malarstíga. Viðhald garða og annarra opinna svæða telur m.a. grasslátt, trjá og runnaklippingar, illgresishreinsun bæði í beðum og á hellulögðum svæðum, áburðargjöf og almenna hreinsun. Skrúðgarðyrkjufræðingur starfar hjá sjálfstætt starfandi skrúðgarðyrkjumeistara, sveitarfélagi, fyrirtæki eða stofnun, þá gjarnan sem verkstjóri eða garðyrkjustjóri.
Skrúðgarðyrkja er löggild iðngrein.
Hæfnikröfur
Hefur víðtæka sérþekkingu á jarðvegs- og yfirborðsefnum í skrúðgarðyrkju s.s. hellum, hleðslusteinum, náttúrugrjóti, frostfríum jarðvegi, ræktunarjarðvegi, fallvarnarefnum á leiksvæði og öðru því sem notað er við lóðaframkvæmdir.
Getur skilið og lesið teikningar hönnuða og er fær um að setja þær út í land.
Skipuleggur lóðaframkvæmdir og áætlar efnisþörf, innkaup og annað sem þarf við nýframkvæmdir eða endurnýjun lóða og annarra útisvæða.
Mótar land eftir teikningum og tryggir frárennsli vatns eftir viðeigandi leiðum í samræmi við gildandi lög og reglugerðir.
Hefur þekkingu og færni á frostfríu burðarlagi og uppbyggingu þess undir m.a. hellulagnir, hleðslur og annan búnað s.s. skjólgirðinga, sólpalla, leiktækja og umhverfi þeirra.
Hleður veggi úr forsteyptum einingum eða náttúrugrjóti, leggur hellur, kantsteina og gúmmíhellur auk annarra yfirborðsefna sem tengjast yfirborðsfrágangi á lóðum og opnum svæðum.
Hefur þekkingu og færni við uppbyggingu grænna svæða s.s. mismunandi tegunda grasflata, gerð gróðurbeða, útplöntun, uppbindingar auk þekkingar er varðar gerð mismunandi íþróttavalla.
Útbýr leiksvæði, setur upp leiktæki og leggur fallvarnarefni svo þau uppfylli lög og reglur sem varða öryggi leiktækja, leiksvæða og eftirlit auk þess að þekkja viðeigandi staðla.
Hefur þekkingu og færni í að útfæra og framkvæma blágrænar ofanvatnslausnir á lóðum og öðrum opnum svæðum auk rótarvæns burðarlags fyrir götutré
Hefur þekkingu og færni við uppbyggingu og framkvæmdum við þakgarða og græna veggi.
Þekkir og leiðbeinir um val og meðferð helstu tegunda garðplantna fyrir íslenskar aðstæður og algengustu skaðvalda í garðrækt og mótvægisaðgerðir gegn þeim.
Útbýr og fylgir eftir umhirðuáætlunum fyrir lóðir og opin svæði.
Skipuleggur og framkvæmir umhirðu trjáa, klippingar, mótun og/eða fellingu þannig að ekki hljótist af eigna- eða mannskaði.
Getur gert rekstraráætlanir og tilboð í verk hvort sem er á sviði nýframkvæmda, endurnýjunar eða umhirðu lóða og annarra útisvæða auk þess að hafa innsýn í rekstur skrúðgarðyrkjufyrirtækis með þeim skyldum er því fylgir.
Er hæfur til að beita viðeigandi tækjabúnaði og verkfærum og meta hvaða búnaður hentar aðstæðum hverju sinni.
Þekkir grundvallaratriði sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir vistvænum viðmiðum við efnisval og framkvæmdir og reglum um meðferð og notkun hættulegra efna.
Þekkir gæðakröfur, gæðakerfi og gæðahandbækur og er fær um að leiðbeina öðrum s.s. iðnnemum og neytendum um fagleg verkefni.
Getur unnið sjálfstætt og leiðbeint öðrum í starfi auk þess að leggja mat á eigin vinnu.
Getur tjáð sig, munnlega og skriflega, um stöðu og framtíð greinarinnar út frá faglegum sjónarmiðum.
Þekkir og fer eftir lögum og reglum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Er meðvitaður um siðferðilega stöðu sína.
Upplýsinga- og fjölmiðlagreinar
Starfalýsing
Prentsmiður/grafískur miðlari starfar við hönnun, uppsetningu, móttöku og breytingar á mismunandi efni ætluðu fyrir prent- og skjámiðla. Prentsmiður/grafískur miðlari þekkir til helstu staðla prent- og skjámiðla og getur undirbúið og skilað verkum frá sér með tilliti til þeirra. Hann þekkir öll helstu texta-, teikni-, myndvinnslu-, umbrots-, og vefforrit og hefur umtalsverða tölvukunnáttu. Prentsmiður/Grafískur miðlari hefur þekkingu til að stýra stafrænum prentvélum. Starfsvettvangur hans er m.a. hjá prentfyrirtækjum, auglýsingastofum, blaðaútgáfum, innan markaðsdeilda fyrirtækja og sem sjálfstæður atvinnurekandi. Hann býr yfir hæfni til að vinna sjálfstætt og getur leiðbeint öðrum, samhliða því að tileinka sér þjónustulund og fagvitund.
Hæfnikröfur
Tekur á móti efni til prentunar, sinnir forskoðun og útbýr útskot með hliðsjón af frágangi verksins í samræmi við gæðakröfur framleiðslunnar; prentunar og bókbands.
Hannar verk fyrir mismunandi miðla, s.s. skjái, vef og prent eftir hugmyndum viðskiptavina og mismunandi markhópa.
Tekur tillit til lita, stærðartakmarkana, upplausnar og leturnotkunar fyrir mismunandi miðla.
Beitir myndvinnslu, litgreiningu og lagfærir myndir eftir þörfum. Hefur kunnáttu til að meta gæði mynda og vistar þær á réttan hátt miðað við notkun.
Hefur sérhæfða þekkingu á vélbúnaði og hugbúnaði fyrir prent- og skjávinnslu og meðhöndlar gögn tengd öllum sviðum grafískrar miðlunar.
Beitir íslenskri textameðhöndlun og rithætti, s.s. gæsalappir, orðskiptingar, greinarmerki, inndrætti o.s.frv., sem og notkun á leiðréttingamerkjum. Þekkir mikilvægi prófarka.
Hefur kunnáttu til að stjórna stafrænni prentvél og viðhalda litstýringu. Kann að velja viðeigandi pappír með hliðsjón af mismunandi verkum.
Þekkir formhönnun á umbúðum og getur fullunnið umbúðir frá grunni með tilliti til notagildis.
Þekkir vel vinnsluferlið frá upphafi til enda og tekur á móti gögnum af ýmsu tagi sem ekki eru ætluð til vinnslu ýmissa miðla og gert úr þeim nothæf skjöl.
Útbýr efni fyrir rafræn form fyrir mismunandi miðla m.a. vefsíður og rafbækur.
Notar helstu umbrotsreglur og staðla, nýtir sér öll helstu hjálpartæki í umbroti s.s. stílsnið, síðugrind og aðra sjálfvirkni.
Þekkir vel til týpógrafíu; leturgerða, stílbrigða ásamt samspili mismunandi mynda, texta og lita.
Býr yfir samskiptafærni til að geta átt farsæl samskipti og veitir persónulega þjónustu í samræmi við greiningu á þörfum viðskiptavinar hverju sinni, en tekur jafnframt fullt tillit til óska hans.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, er fær um að tileinka sér nýjungar og hagnýta þá þekkingu í starfi.
Þekkir og fer eftir lögum og reglugerðum tengdum faginu, s.s. reglum um höfundarrétt og vinnuvernd, ásamt því að vinna að heilindum og viðhafa trúnað gangvart viðskiptavinum.
Sýnir fagmennsku og siðferðisvitund og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Þekkir leiðir til sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir vistvænum viðmiðum í starfi, við efnisval tengt prentiðnaði og pappír.
Kann rétt viðbrögð við neyðaraðstæður og er fær um að veita skyndihjálp ef slys eða óhöpp ber að höndum.
Vinnur eftir gæðaviðmiðum, þekkir mikilvægi öryggisvarna, helstu orsakir vinnuslysa og þær reglur sem gilda um vinnuvernd, m.a. um rétta líkamsbeitingu.
Starfalýsing
Verkefni bókbindara felast í stjórnun þess vélakosts sem notaður er til þess að ganga frá prentgripum. Vélakosturinn telur brotvélar, skurðarvélar, heftivélar, fræsara, gyllingarvélar, saumavélar og aðrar vélar sem skera, binda og brjóta bækur. Verkefnin krefjast ítarlegrar þekkingar á vinnuferli bókbands; handverki, vélbúnaði, efnisfræði, iðntölvum og vélalínum sem notaðar eru á bókbandsverkstæðum. Bókband er að þessu leyti fyrst og fremst stjórnun véla á verkstæðum og innan prentsmiðja.
Hæfnikröfur
Stillir og brýtur 8 til 32 bls. bókabrot
Grunnnámskeið í vélfræði (almennt viðhald á vélum)
Framkvæmir opnu-, velti- og harmonikkubrot
Hefur vald á að nota iðntölvu til stillingar
Beinskeri: Setur inn skurðarprógram og sker
Beitir réttum aðferðum við skipti á skurðarblöðum
Býr yfir kunnáttu til að meta gæði afurðar
Þrískeri: Setur inn skurðarprógram og sker
Beitir réttum aðferðum við skipti á skurðarblöðum
Býr yfir kunnáttu til búa til skurðarklossa
Stillir heftivél
Þekkir milliskurð
Þekkir hvernig fræsari vinnur
Þekkir grunneiningar fræsilínu
Býr yfir kunnáttu til að skipuleggja vinnu við fræsilínu
Þekkir hvernig bókalína vinnur
Setur upp klisju og gyllt á bindi
Keyrir gyllingarvél
Þekkir samspil efna og fólía
Setur upp bindi í höndunum
Þekkir hvernig saumavél vinnur
Býr yfir kunnáttu til að skipuleggja vinnu við saumavél
Þekkir mismunandi saumspor
Gyllir kjöl í höndum
Framkvæmir; sauma í höndum, spjaldað í grunnfals, lokafrágang við grunnfals
Gyllir kjöl í gyllingarvél
Tileinkar sér verkkunnáttu til að vinna sjálfstætt
Sýnir fagmennsku og siðferðisvitund og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Þekkir og fer eftir lögum og reglugerðum tengdum faginu, s.s. reglum um höfundarrétt og vinnuvernd, ásamt því að vinna að heilindum og viðhafa trúnað gagnvart viðskiptavinum.
Þekkir leiðir til sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir vistvænum viðmiðum í starfi, við efnisval tengt prentiðnaði og pappír.
Kann rétt viðbrögð við neyðaraðstæður og er fær um að veita skyndihjálp ef slys eða óhöpp ber að höndum.
Vinnur eftir gæðaviðmiðum, þekkir mikilvægi öryggisvarna, helstu orsakir vinnuslysa og þær reglur sem gilda um vinnuvernd, m.a. um rétta líkamsbeitingu.
Starfalýsing
Prentari starfar innan upplýsinga- og fjölmiðlagreina, vinnur í prentsmiðjum við prentun á blöðum, tímaritum, bókum, bæklingum, smáverkum, nótum, umslögum, auglýsingum o.fl. sem og í blaðaprentsmiðjum. Prentari starfar í umbúðaprentsmiðjum við prentun á umbúðum, vörumerkingum, merkimiðum o.fl. (offset- og flexóprentun). Þá vinnur prentari á stafrænum prentstofum við fjölbreytt verkefni í minni upplögum. Prentari er í samstarfi við prentsmiði, bókbindara, grafíska miðlara og hönnuði, teiknara, ljósmyndara, fjölmiðlatækna, pappírsskurðarmenn, framleiðslustjórnendur og aðstoðarfólk. Prentari hefur sérþekkingu á eðli og virkni prentvéla og samvirkni efna sem notuð eru í prentvinnslu og kann skil á fræðilegum þáttum prentunar sem varða lita- og ljósmælingar, rastafræði, litrófsmælingar, flutning á stafrænum gögnum, gerð og meðhöndlun prentplatna. Prentari getur unnið sjálfstætt og leiðbeint öðrum, auk þess sem hann tileinkar sér þjónustulund og fagvitund.
Hæfnikröfur
Stýrir prentvélum.
Kann skil á verkferlum innan prentiðnaðarins.
Notar þekjumæla við mat á prentgæðum.
Metur punktastækkun í prentun.
Þekkir pappírstegundir og staðla sem notaðir eru við val á pappír í prentverki.
Sker pappír í prentvélum og frá þeim.
Notar verkseðla, verklýsingar og metur upplagstölur.
Meðhöndlar liti og fonta, kann skil á eiginleikum þeirra.
Metur gæði prentunar, litaáferð og efnisgæði.
Sinnir daglegri umhirðu og viðhaldi á vélbúnaði.
Býr yfir samskiptafærni til að geta átt farsæl samskipti og veitir persónulega þjónustu í samræmi við greiningu á þörfum viðskiptavinar hverju sinni og óska hans.
Ber ábyrgð á eigin starfsþróun, er fær um að tileinka sér nýjungar og hagnýta þá þekkingu í starfi.
Þekkir og fer eftir lögum og reglugerðum tengdum faginu, s.s. reglum um vinnuvernd, ásamt því að vinna að heilindum og viðhafa trúnað gagnvart viðskiptavinum.
Sýnir fagmennsku og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Þekkir leiðir til sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir vistvænum viðmiðum í starfi við efnisval tengt prentiðnaði og pappír.
Kann rétt viðbrögð við neyðaraðstæðum og er fær um að veita skyndihjálp ef slys eða óhöpp ber að höndum.
Vinnur eftir gæðaviðmiðum, þekkir mikilvægi öryggisvarna og helstu orsakir vinnuslysa.
Starfalýsing
Starf atvinnuljósmyndara greinist í tvö svið: Ljósmyndatöku í ljósmyndaveri og myndatöku á vettvangi. Þessi tvö svið skarast því sami búnaður er notaður þótt viðfangsefni og nálgun séu ólík. Við myndatöku í ljósmyndaveri hefur ljósmyndarinn fullkomna stjórn á aðstæðum og vinnur af nákvæmni með ljós, uppstillingar og blæbrigði. Við myndatöku á vettvangi leitast ljósmyndari við að hagnýta sér umhverfisþætti, segja fréttir, fanga náttúru og landslag svo nokkuð sé nefnt. Skipta má ljósmyndun í undirgreinar eftir viðfangsefnum svo sem persónuljósmyndun, fréttaljósmyndun, iðnaðar- og auglýsingaljósmyndun og drónaljósmyndun. Undirgreinar ljósmyndunar er hægt að stunda eftir atvikum í ljósmyndaveri eða á vettvangi. Greinarnar skarast og ljósmyndari þarf oft að kunna skil á mörgum undirgreinum. Margir ljósmyndarar hafa einnig lagt fyrir sig ljósmyndaleiðsögn og þjónustu við ferðamenn, kennslu í ljósmyndun og námskeiðshald. Listræn ljósmyndun er samofin faginu og nær hámarki með sýningarhaldi og myndgerð fyrir ljósmyndabækur. Mjög sérhæfð ljósmyndun fer fram á stofnunum, spítölum og rannsóknastofnunum við skrásetningu upplýsinga, vísinda- og heimildavinnu og önnur svið þar sem myndefni er notað til að koma boðskap til skila á faglegan hátt. Myndvinnsla og eftirvinnsla ljósmynda er stór þáttur í starfi ljósmyndara auk vefsíðu- og hreyfimyndagerðar sem eru vaxandi svið í vinnu margra ljósmyndara. Mikilvægt er að ljósmyndarar kunni skil á geymslu mynda, stafrænna gagna og filma og að viðskiptavinir geti gengið að gögnum vísum nú og um ókomna tíð þar eð ljósmyndir eru mikilvægar heimildir um tíðaranda og sögu samfélags.
Hæfnikröfur
Beitir ljósmyndavél og tilheyrandi búnaði við ólíkar og óvæntar aðstæður með hliðsjón af fjölbreyttum forsendum.
Beitir margvíslegum tækjabúnaði s.s. ljósabúnaði og aðferðum við myndatökur í myndveri og á vettvangi.
Þekkir grunnlögmál ljós-, linsu- og litafræði. Þekkir vel tjáningarmöguleika ljósmyndunar og góða myndbyggingu.
Getur beitt helstu myndvinnsluforritum og hefur góða innsýn í alla þætti grafískrar miðlunar. Þekkir einnig mismunandi aðferðir við eftirvinnslu mynda í tölvum.
Er fær um að skipuleggja og framkvæma myndatökur með öðrum fagaðilum.
Hefur tileinkað sér tækni við eftirvinnslu mynda til útprentunar eða birtingar á vef og öðrum skjámiðlum.
Hefur vald á stafrænni ljósmyndatækni og þekkingu á filmutækni.
Vinnur við myndasöfn með hliðsjón af forsendum myndaritstjórnar, siðfræði og höfundarrétti.
Varðveitir og skráir myndefni á öruggan hátt.
Tileinkar sér hugtök eins og rekstur, arðsemi, þjónustu og gæðavitund.
Kann skil á rekstri fyrirtækis sem sjálfstætt starfandi ljósmyndari.
Býr yfir faglegri hæfni, ábyrgð, sjálfstæði og færni í mannlegum samskiptum.
Sýnir fagmennsku og siðferðisvitund og starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar og vinnustaðarins.
Þekkir og fer eftir lögum og reglugerðum tengdum faginu, s.s. reglum um höfundarrétt og vinnuvernd, ásamt því að vinna að heilindum og viðhafa trúnað gagnvart viðskiptavinum.
Þekkir leiðir til sjálfbærni og umhverfisverndar og fylgir vistvænum viðmiðum í starfi, við efnisval tengt prentiðnaði og pappír.
Kann rétt viðbrögð við neyðaraðstæðum og er fær um að veita skyndihjálp ef slys eða óhöpp ber að höndum.
Vinnur eftir gæðaviðmiðum, þekkir mikilvægi öryggisvarna, helstu orsakir vinnuslysa og þær reglur sem gilda um vinnuvernd, m.a. um rétta líkamsbeitingu.
Hefur réttindi til að stýra dróna.
Eldri starfalýsingar
Starfalýsing
Sérsaumar kvenfatnað og annast viðeigandi vinnu sem því tengist. Veitir viðskiptavinum persónulega ráðgjöf og þjónustu og ber ábyrgð á útkomu vinnu sinnar gagnvart viðskiptavinum. Annast innkaup á efnum og öðrum vörum sem þarf á saumastofu. Hefur umsjón með verkefnum á saumastofu, starfar í fataverksmiðjum, á saumastofum eða eigin verkstæði. Vinnur í samræmi við almennar siðareglur og gæðastaðla viðkomandi fyrirtækis. Annast samskipti við verkkaupa og leiðbeinir kaupendum um val á efni og vinnuaðferðum. Er meðvitaður um kostnað og getur gert einfaldar kostnaðaráætlanir.
Hæfnikröfur
Tekur mál, útfærir snið og breytir þeim eftir atvikum.
Sníður og sérsaumar kvenfatnað samkvæmt eigin útfærslu eða óskum viðskiptavinar.