Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Rafræn ferilbók

Birtingaskrá/umsóknargátt (nýskráning notenda) er grunnskráning lögaðila/fyrirtækja í rafræna ferilbók og er gerð með rafrænum skilríkjum tengd við viðkomandi fyrirtæki/iðnmeistara/stofnun.
Hún er gerð einu sinni og veitir eftir það aðgang að rafrænni ferilbók undir flipanum Innskráning fyrir notendur. Ef skipt er um meistara eða tilsjónaraðila eru breytingar skráðar að nýju í Birtingaskrá/umsóknargátt.


Áður en skráning hefst er gott að hafa tiltæk nauðsynleg gögn s.s. meistarabréf eða sveinsbréf ef annar en meistari er tilsjónarmaður (pdf. eða word-skjal best).

Ferilbók upplýsingar

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur umsjón með innleiðingu rafrænnar ferilbókar í vinnustaðanámi. Ferilbókin byggir á reglugerð um vinnustaðanám sem tók gildi 1. ágúst 2021.

Markmið rafrænnar ferilbókar er að efla gæði vinnustaðanáms með því að skapa sameiginlegan samskiptavettvang fyrir nemendur, vinnustaði, skóla og aðra sem koma að starfsnámi. Ferilbókin heldur utan um þá verkþætti og hæfni sem nemandi þarf að hafa tileinkað sér við lok starfsnáms.

Ferilbókin byggir á starfslýsingum og hæfnikröfum sem starfsgreinaráð unnu í samstarfi við Menntamálastofnun og síðar Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Starfslýsingar og hæfnikröfur endurspegla þarfir atvinnulífsins fyrir þekkingu og hæfni og liggja til grundvallar námsbrautalýsingum viðkomandi starfsgreina sem eru hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla.

Rafræn ferilbók tryggir að nemendur fái þjálfun í þeim verkþáttum sem hæfnikröfur starfsins gera ráð fyrir. Hún stuðlar að auknum gæðum starfsnáms, markvissari þjálfun og styrkir réttindi starfsnámsnema. Námssamningar eru jafnframt vistaðir í ferilbókinni.

Ferilbókin einfaldar samskipti milli skóla og atvinnulífs og auðveldar utanumhald vinnustaðanáms.

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur tekið saman helstu spurningar og svör er varða vinnustaðanám og notkun rafrænna ferilbóka.

Þegar lögaðili/fyrirtæki hefur skráð sig í birtingaskrá staðfestir Miðstöð Menntunar og skólaþjónustu hann með tölvupósti. Þá getur skóli stofnað rafræna ferilbók fyrir nemann (þegar hann skráir sig í skóla) og sent til undirritunar rafrænt. Eftir að meistari/tilsjónarmaður og nemi hafa undirritað samninginn rafrænt getur vinna í rafrænni ferilbók hafist.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur umsjón með innleiðingu rafrænnar ferilbókar í vinnustaðanámi. Markmið ferilbókarinnar er að efla gæði vinnustaðanáms með því að mynda samskiptavettvang nemenda, vinnustaða, skóla og annarra sem koma að starfsnámi.

Hefur þú athugasemdir varðandi verkflokka eða verkþætti einstakra ferilbóka? Hægt er að senda ábendingar á netfangið ferilbok@mms.is.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Borgartún 33

105 Reykjavík

Kennitala: 660124-1280