Fara í próf
Handbók um notkun lesfimi- og stuðningprófa Matsferils
Í handbókinni eru upplýsingar um notkun lesfimi- og stuðningsprófa Matsferils. Þar er fjallað um prófin sjálf, undirbúning, hagnýt atriði varðandi fyrirlögn prófanna, framsetningu á niðurstöðum og notkun þeirra í skólastarfi. Loks er komið inn á mikilvægi góðrar læsisstefnu, viðfangsefni í lestrarkennslu og heimalestri, og að lokum er fjallað um samstarf skóla og forsjáraðila í lestrarnámi barna.

QR kóði sem vísar á próf
Ef próf er tekið í iPad þá er hægt að fara inn í prófið með því að skanna þennan QR kóða. Safe Exam Browser þarf að vera til staðar í spjaldtölvunni. Lykilorðið 1234 er svo nauðsynlegt til að komast út úr vafranum.
Taka próf í Chromebook tölvu
Ef próftaka fer fram í Chromebook tölvu er farið í prófið í gegnum upphafsskjá tölvunnar hafi tölvan verið undirbúin undir próftöku.
Opna próf - Skref fyrir skref
Hér er að finna skref fyrir skref leiðbeiningar fyrir kennara og nemendur. Það sem þarf eru aðgangsupplýsingar nemenda inn í prófakerfið (notendanafn og lykilorð) og fjögurra stafa kóði fyrir prófið sjálft. Þessar upplýsingar eru sendar á skólastjórnendur.
Spurt og svarað - Meðan á fyrirögn stendur
Hér er listi yfir möguleg vandamál sem gætu komið upp á við próftöku og mögulega er hægt að leysa á staðnum af kennara í yfisetu eða tækniaðila á vettvangi. Hér er einnig að finna upplýsingar um hvert er hægt að leita ef ekki næst að leysa út hlutunum.