Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Íslenskupróf vegna ríkisborgararéttar

Mímir - Símenntun hefur umsjón með skráningu og gefur upplýsingar um íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt.

English version of this website is here.

Skráning í prófið er rafræn - Skráning
Registration for the test is online - Registration

Haldin að vori í Reykjavík, Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði.
Haldin að hausti í Reykjavík og Akureyri.

Um prófið
Próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt eru haldin tvisvar á ári, að vori og hausti. Prófið miðast við lokamarkmið í grunnnámi í íslensku fyrir útlendinga (240 stundir), samkvæmt námskrá menntamálaráðuneytisins sem samsvarar hæfni A2 á evrópska tungumálarammanum (Common European Framwork of Reference for Language: CEFR). Hér má sjá sjálfsmatsramma fyrir íslensku.

Umsækjandi þarf:

  • að geta bjargað sér við daglegar aðstæður í skóla, vinnu og einkalífi;

  • að geta bjargað sér við óvæntar aðstæður

  • að hafa öðlast nægilegt vald á orðaforða til að geta tekið þátt í umræðum um kunnugleg málefni

  • að geta skilið einfaldar samræður milli manna

  • að geta lesið stutta texta á einföldu máli um kunnugleg efni

  • að geta skrifað stuttan texta á einföldu máli um kunnugleg efni

  • að geta greint aðalatriði í ljósvakamiðlum, sjónvarpi og útvarpi, þegar um kunnugleg efni er að ræða.

Prófið skiptist í fjóra (4) hluta: Hlustun, lestur, ritun og tal.
Ekki er gefin einkunn, heldur aðeins tilkynnt hvort próftaki hafi staðist eða EKKI staðist lágmarkskröfur.

Sýnispróf

Applying for Icelandic citizenship? Further information at www.utl.is

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Heim­il­is­fang

Víkurhvarfi 3
203 Kópavogi
Kennitala: 660124-1280

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@mms.is