Stöðu- og framvindupróf fram undan – kynntu þér Matsferil
23. febrúar 2026
Í mars fara fram stöðu- og framvindupróf í lesskilningi og stærðfræði í grunnskólum landsins. Prófin eru hluti af Matsferli, samræmdu námsmati sem styður við betri yfirsýn yfir stöðu og framvindu nemenda í námi.

Prófin eru útbúin fyrir alla árganga frá 4. upp í 10. bekk en eru skyldubundin fyrir nemendur í 4., 6. og 9. bekk.
Markmið Matsferils er að veita skýrar og gagnlegar upplýsingar um stöðu og framvindu nemenda. Niðurstöðurnar eru nýttar til að bregðast við þörfum hvers og eins, hvort sem það felur í sér aukinn stuðning, markvissari kennslu eða meiri áskoranir, þannig að hægt sé að styðja við nám barna með réttum stuðningi á réttum tíma.
Á upplýsingasíðu um Matsferil má meðal annars finna:
Skýra umfjöllun um markmið og framkvæmd prófanna
Hvernig niðurstöður eru birtar og túlkaðar
Svör við algengum spurningum
Við hvetjum nemendur, forsjáraðila og foreldra til að kynna sér Matsferil á mms.is/matsferill. Einnig er alltaf velkomið að senda okkur fyrirspurnir á hjalp@midstodmenntunar.is.
Hér má finna bréf til forsjáraðila og nemenda (foreldrabréf)
Undanþágur frá skyldubundnu samræmdu námsmati eru skráðar af skólastjórum inn í stafrænt viðmót Matsferils. Þar sem samþykkis forsjáraðila er krafist hefur MMS útbúið eyðublað sem skólastjórar geta notað þegar leitast er eftir samþykki þeirra.