Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Samræmd verkfæri fyrir skóla og skólaþjónustu: nálgun Heillaspora

16. febrúar 2026

Heillaspor er heiti á verkefni sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sinnir og snýst um að skapa öruggt umhverfi í skólu- og frístundastrfi fyrir öll börn með tengslamiðaðri nálgun. Þátttökuskólar eru dreifðir um allt land og greina frá miklum árangri í kjölfar innleiðingar verkefnisins, m.a. færri ofbeldisatvika í skólum og betri líðunar starfsfólks.

Nú á árinu hafa verið haldin námskeið á grundvelli hugmyndafræði Heillaspora fyrir annars vegar skólastjórnendur og hins vegar starfsfólk skólaþjónustu sveitarfélaga. Á námskeiðunum fá skólar og skólaþjónusta sömu verkfæri í hendurnar, en vinna út frá ólíkum hlutverkum sínum innan kerfisins.

Markmiðið er að efla sameiginlegan skilning, samræmda nálgun og markvissri innleiðingu með farsæld barna að leiðarljósi.

Stjórnendur rýna í skólaumhverfið

Á skólastjóranámskeiði fengu stjórnendur innsýn í hugmyndafræði Heillaspora, vörðurnar sex og gæðaviðmið þeirra. Áhersla var lögð á hvernig nýta má þessi viðmið til að rýna í skólaumhverfið með markvissum hætti og aðlaga það að þörfum barna.

Jafnframt var fjallað um aðferðir inntra mats sem styðja gagnadrifna ákvarðanatöku og hvernig það má þrepaskipta verklagi og viðhorfum gagnvart börnum þannig að stuðningur sé veittur á réttum tíma og á réttum stað.

Skólaþjónusta styrkir leiðtogahlutverk sitt

Á námskeiði fyrir skólaþjónustur sveitarfélaga var lögð áhersla á að efla þekkingu á hugmyndafræði Heillaspora og þeim verkfærum sem styðja gagnamiðaða vinnu. Sérstaklega var horft til leiðtogahæfni og þeirra viðhorfa sem þurfa að vera til staðar þegar innleiðingarteymi eru leidd.

Skólaþjónustur fengu aðgang að verkfærum sem styðja við skimun, lausnamiðaða nálgun og mat á árangri breytinga. Þá var einnig lögð áhersla á að dýpka skilning á stöðu jaðarsettra hópa og hvernig ryðja megi kerfislægum hindrunum úr vegi til að tryggja aukið aðgengi, þátttöku og farsæld.

Sameiginleg sýn - skýr hlutverk

Þótt hlutverk skóla og skólaþjónustu séu ólík byggja þau á sameiginlegum grunni. Með því að vinna með sömu hugtök, sömu gæðaviðmið og sömu verkfæri skapast sterkari heildarsýn og betra flæði milli aðila.

Þannig eykst samræmi í stuðningi við börn, starfsfólk og skólasamfélagið í heild.

Nánar um Heillaspor

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280